Strandapósturinn


Strandapósturinn - 01.06.1985, Page 119

Strandapósturinn - 01.06.1985, Page 119
liggjandi. Stærra húsið var aðeins norðar og skot út úr því vestan- verðu, svo sem tvær álnir á hvorn veg. Líklegast er að þetta séu rústir af beitarhúsum, en í barnaskap mínum lék ég mér að þeirri hugmynd að þarna hafi verið lítið kot — Stapatún. Þessi staður heitir það reyndar. Þarna opnaðist dalurinn. Fyrst er grunnt dalhvolf, Hvappið og fram af því Steinshvammur. Skammt sunnan við hann býlið Helgukot og enn framar á sléttlendinu er svo Gíslakot. Já, ekki voru nú bæjanöfnin stórmannleg. En þarna sást vel hvernig húsa- skipanin hefur verið. Lengra frammi í dalnum er ansi verklegur hólkollur sem nefn- ist Arnarhóll. Þar sunnan undir honum voru einnig rústir en voru svo mikið horínar í jörðina, að ekkert væri hægt að sjá, hvort þar hefðu verið beitarhús eða eitt kotið enn. Nú var riðið áfram enn um stund, en þá komið að eina bænum, sem nokkuð hefur kveðið að, og er enda kunnur úr þjóðsögum, en það eru Feykishólar. Þegar við komum þar, þennan ágæta dag, var þar sóley í túni og fífill í varpa. Allt var vafið í grasi, sem hest- arnir okkar úðuðu í sig með mikilli velþóknun. Við stukkum á milli tóftanna, forvitnar og ákafar og reyndum að geta okkur til, hvað þetta og þetta hefði verið. Auðséð var, að þarna hafði verið mikil velmegun í búi, enda var þetta prestssetur dalbúa og sjálf- sagt útsveitarinnar allrar. Veggir voru ennþá næstum mannhæðarháir og húsakostur virt- ist hafa verið mikill og rúmgóður. Peningshús voru víða á túninu, sem skorið var í sundur af bæjarlæknum, sem grafið hafði sér gil ofan að áreyrinni. Yfir lækinn var byggt brunnhús og haganlega gengið frá vatnsbólinu. Húsið var hringmynduð kúpa, sem enn stóð uppi, og athyglisverð að því leyd, að engin spýta var í henni. Þetta byggingarlag hef ég ekki séð annarsstaðar, en gamla sælu- húsið á Hellisheiði er ekki óáþekkt, þó að það sé hlaðið úr grjóti. Við lágum þarna í sólskininu góða stund og fannst við heyra radd- ir löngu liðinnar tíðar. Eg sagði Sólu söguna um vinnumanninn og prestsdótturina, hvernig stúlkan, sem vakti yfir túninu, lét hnykilinn detta ofan í gröf vinnumannsins og bjargaði þannig lífi prestsdóttur, og aðra um son hennar og draugsa, sem varð prest- 117
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156

x

Strandapósturinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Strandapósturinn
https://timarit.is/publication/1641

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.