Strandapósturinn - 01.06.1997, Blaðsíða 21
þess að fá þar upp kalt vatn. Sú aðgerð mistókst, því að ekkert
vatn kom úr holunni, en hins vegar kom fram að þarna var
meiri hiti í iðrum jarðar en venjulegt er á köldunr svæðum.
Þetta gaf vonir um að unnt væri að finna heitt vatn í grenndinni
og vorið 1997 var hafm tilraunaborun eftir heitu vatni. Boraðar
voru 12 tilraunaborholur og eins og að framan greinir rættist
draumurinn uni heitt vatn þann 10. júní við borholu nr. 7. Hún
er 130 metra djúp og gefur enn 60 gráðu heitt vatn, en vatns-
magnið hefur nú minnkað í 8 lítra á sekúndu.
Fyrstu viðbrögð Drangsnesinga urðu þau að koma með nokk-
ur fiskker að borholunni, blanda í þau hæfilegt baðvatn og gátu
þannig fengið misjafnlega heita potta. Fljótlega stækkuðu þó
heitu pottarnir því að Guðmundur Halldórsson, sem lengi hefur
stundað fiskeldi á Asmundarnesi, kom með nokkur fiskeldisker
og gaf börnunum á Drangsnesi. Síðan hafa böð mikið verið
stunduð við skólann á Drangsnesi og geta vegfarendur vottað
það, því að pottarnir eru skammt frá þjóðveginunr og sjaldan
mannlausir. Og mörgum sýnist að oft séu baðgestirnir komnir af
barnsaldri.
Nú eru komnar upp ráðagerðir um framtíðarnýtingu á heita
vatninu. Sá galli er á gjöf Njarðar að samkvæmt lögum á Orkubú
Vestfjarða allan virkjunarrétt á hvers konar jarðorku á Vestfjörð-
um. í þessu tilfelli og öðrum líkum gæti það torveldað orkunýt-
ingu. Aform eru uppi um borun á vinnsluholu á svæðinu. Hug-
myndir unr sundlaug eru að sjálfsögðu ofarlega. Ylrækt hefur
líka heyrst nefnd. Nú þegar hefur verið sett bráðabirgða hita-
veita í skólahúsið og í frystihúsið. í það fer þó aðeins áttundi
hluti þess vatnsmagns sem sjálfkrafa kemur upp úr tilraunahol-
unni.
Sunnan megin Steingrímsþarðar gekk ekki jafn vel að ná upp
hita úr iðrum jarðar og á Drangsnesi. Boraðar voru 5 tilrauna-
borholur í grennd við Idólmavík og 8 í Kirkjubólshreppi. Engar
af þessum holum gáfu heitt vatn, en þó er talið ómaksins vert að
athuga einhverjar þeirra nánar.
Dálítið var um framkvæmdir við hafnirnar í Kokkálsvík og á
Hólmavík. I Kokkálsvík var hafnargarðurinn hækkaður, rifin af
honum grjótklæðning og endurraðað á hann grjóti. Einnig var
19