Strandapósturinn


Strandapósturinn - 01.06.1997, Blaðsíða 90

Strandapósturinn - 01.06.1997, Blaðsíða 90
ur var gott, því sem næst logn og urðum við því að róa alla leið- ina. Sóttist okkur ferðin eðlilega. Það var orðið áliðið dags þeg- ar við komum á Kúvíkur. Bárum við sjúklinginn heim til Krist- mundar læknis. Fengum við þar einhverja hressingu. Að því loknu lögðum við af stað heim. Ætlunin var að fara aftur til Ofeigsfjarðar ef veður leyfði. Rérum við út á Reykjarfjörð. En þegar við komum utar á fjörðinn var farið að kæla af norðaust- an og þyngdi það róðurinn. Það kom eðlilega í hlut Finnboga að ákveða um framhald ferðarinnar. Leist honum ekki á að berja út fyrir Gjögur og fyr- ir Ströndina til að komast undir segl og sigla síðan í náttmyrkri annað hvort til Norðurfjarðar eða fyrir Krossnesfjall til Ofeigs- fjarðar. Varð það úr að hann lagði ekki í það og lentum við því á Kjörvogi. Settum bátinn vel undan sjó og síðan var gengið til gistingar á Kjörvogi hjá Magnúsi bróður Finnboga og Guðrúnu konu hans. Attum við þar góða nótt eftir erfiði dagsins. Það man ég sérstakt frá þeirri gistingu að þau Magnús og Guðrún tóku yfirsængina úr sínu rúmi til þess að búa upp rúm fyrir okkur stráklingana. Sjálf lágu þau undir teppi - brekáni - og hjúfruðu sig hvort að öðru til að halda á sér hlýju. Mér fannst þetta svo sérstakt og hefi oft hugsað til þess, að slíkt mundu fáir hafa gert. Svo einstök var umhyggja þeirra fyrir okkur, sem vorum orðnir allþreyttir eftir erfiði dagsins. Veður hafði gengið upp um nóttina og var komið vonskuveð- ur morguninn eftir. Það var þar með útséð að við kæmumst á bátnum heim í Ofeigsfjörð. Við settum bátinn hærra og gengum frá honum svo honum væri óhætt. Við héldum svo heimleiðis gangandi. En hér skall hurð nærri hælum, að koma sjúklingn- um undir læknishendur. - Næsta hálfa mánuðinn var veðri svo háttað að útilokað var að fara á báti þessa leið. Við skildum Heppinn þarna eftir. Síðar um veturinn tókst að koma honum heim. Það er af Pétri að segja að hann lá nokkuð lengi á Kúvík- um. En Kristmundi tókst að lækna meinsemd hans, sem var graftarígerð inn með endaþarmi og ill viðureignar. - Eg held að hann hafi komist heim fyrir jól og náði sér alveg eftir þetta. - En ef okkur hefði ekki gefið þennan dag, er óvíst hvernig farið hefði. Hér var gifta í verki með okkur og öllum sem að þessu 88
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116

x

Strandapósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Strandapósturinn
https://timarit.is/publication/1641

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.