Strandapósturinn - 01.06.1997, Blaðsíða 63
Segja má að allt undirbúningsstarfið hafi verið unnið í ung-
mennafélagsanda, af hugsjón og ánægju án þess að greiðsla
kæmi fyrir.
Hvað var þá gert?
Það voru settar upp þrjár sýningar í skólahúsinu á Borðeyri.
Fyrst skal nefna sögusýningu, þar sem safnað var saman ljós-
myndum frá liðnum tíma, þær stækkaðar og settar á veggi með
sögulegum skýringartextum. Elstu myndirnar voru frá því um
1886 og svo allt til síðustu áratuga. Myndskeiðið spannaði um
það bil 100 ár. Margar þessara mynda eru frá fýrstu áratugum
þessarar aldar. Einnig voru uppi myndir frá stjórnendum land-
símastöðvarinnar, sem var á Borðeyri frá 1908 til 1951 og mikið
af myndum er tengjast skólastarfl barnaskólans.
Einnig var sýning á gömlum munum er tengjast verslun og
mannlífi á staðnum. Meðal annars voru gamlar verslunarbækur
til sýnis, þær elstu frá dögum Félagsverslunarinnar við Húnaflóa.
Þar var margan fróðleik að finna um verðlag þess tíma svo og
um úttekt og innlegg hvers og eins viðskiptamanns. Byggðasafn-
ið á Reykjum var afar vinsamlegt og greiðugt á að lána marga
merkilega gripi. Eins var með Þjóðminjasafnið, þaðan komu
gripir til sýningar og ber að þakka hve forystumenn safnanna
voru þessu afmælissýningarhaldi velviljaðir. Þór Magnússon
þjóðminjavörður heiðraði afmælishátíðina á Borðeyri með
heimsókn einn daginn og þótti okkur það mikill fengur.
Þriðja sýningin var yfirlitssýning á málverkum eftir Þorvald
Skúlason listmálara, en hann var fæddur á Borðeyri. Við Hrút-
firðingar viljum eigna okkur hlut í þessum frábæra listamanni
og því urðu myndir hails fyrir valinu. Listaverkin voru fengin að
láni hjá Listasafni Háskóla Islands og sett upp af starfsmanni
þess. Eftir á að hyggja held ég að margir hafi gefið sér of skamm-
an tíma til að skoða verk Þorvaldar Skúlasonar meðan þau voru
til sýnis á Borðeyri. Það er göldrum líkast hvernig þessi snilling-
ur hefur beitt penslinum, hvernig sumar mynda hans horfa á
eftir manni eins og þær renni augum til og frá.
Loks ber að nefna að handverkshópurinn Grúska, sem starfar
61