Strandapósturinn - 01.06.2003, Síða 14
fyrr segir var farið upp frá Hunkubökkum meðfram Fjaðrár-
gljúfri, margt var skoðað eins og Fagrifoss sem er stórfenglegur.
Eins benti Jón okkur á og sagði frá ýmsum stöðum, þar á meðal
Gjátindi, Uxatindi og Olduskeri.
Síðan var farið seinna vaðið og komið inn á þar sem kallað er
Kringlur, síðan að Bjarnatanga, svo að Blágiljum, en þar er
gangnamannakofi. Afram var haldið og síðan stoppað við
hraunjaðarinn þar sem var áð í mjög fallegri hraungjótu. Við
vorum með brauð, kleinur og kaffi sem við buðum fólkinu
uppá. Ekki var til setunnar boðið, við urðum að komast upp að
gígunum svo að þeir hraustustu gætu labbað upp á Laka, en hin-
ir fóru bara áleiðis eða tóku því rólega niðri í rútu. Laki er mó-
bergsfell, 818 m á miðri eldrein Lakagíga, gott útsýni er af Laka
í góðu veðri. Farið var sömu leið til baka, stoppað hér og þar,
teknar myndir og sumir tóku létta sveiflu í leiðinni. Síðan skil-
uðum við Jóni aftur við Hunkubakka og þökkuðum honum fýrir
góða leiðsögn. Hópurinn hélt sem leið lá að Skógum í alveg frá-
bæru veðri. Að Skógum var komið um kl. 18:00 svo nú var að
drífa sig í sturtu og síðan í ballfötin, því okkar beið hið marg-
rómaða hlaðborð svo allir gátu boðað eins og þeir vildu. Eftir
matinn fórum við svo inn í leikfimisal þar sem farið var í leiki og
síðan dansað fram á nótt. Sunnudagsmorguninn var byrjað að
skoða safnið á Skógum undir leiðsögn Þórðar Tómassonar safn-
varðar. Var það ansi fróðlegt og skemmtilegt. Nú var komið að
því að halda heim á leið. Lagt var af stað frá Skógum upp úr há-
degi. Aðeins rennt að Skógarfossi og síðan Seljalandsfossi og
auðvitað teknar myndir á báðum þessum stöðum. Nú lá leið
okkar upp í Fljótshlíð og áfram upp Rangárvelli sem endaði hjá
þeim Ingu og Einari í sumarhúsinu þeirra og var þar boðið upp
á kaffi. Allir voru sopanum fegnir og höfðu gaman af. Síðan lá
leið okkar í gegnum Selfoss og að Eyrarbakka því hugmyndin
var að borða í Rauða húsinu. Þar var tekið mjög vel á móti okk-
ur, við fengum dýrindis humarsúpu, brauð og kaffi á eftir. Þetta
var lokaatriðið í þessari frábæru ferð og komu allir ánægðir í
bæinn upp úr kl. 21:00. Haustballið var haldið 2. nóvember. I
þetta sinn var það Ari Jónsson og Hilmar Sverrisson sem sáu um
að halda uppi fjörinu til kl. 03:00.
12