Strandapósturinn - 01.06.2003, Page 156
Frá Sauðárkróki var haldið klukkan eitt og ekið áleiðis til
Akureyrar. Hafði Skagafjörður skinið við sólu allan tímann og
svo var enn er við ókum inn Blönduhlíðina og um hlaðið í
Miklabæ. Slæmur og hættulegur vegur var um Giljareitina á
Oxnadalsheiðinni þar til hallaði norður af, þá tók við nýlagður
og góður vegur niður Oxnadalinn. Stansað var móti Hrauni og
horft athugunaraugum á fæðingarstað listaskáldsins góða og hið
hrikalega og þó fagra landslag meðan við sungum kvæði Hann-
esar Hafstein: Þar sem háir hólar / hálfan dalinn fylla. Síðan var
förinni hraðað niður Oxnadal og Hörgárdal. Gat maður aðeins
rennt augum að Möðruvöllum. Um leið flaug manni í hug hver-
su ótrúlega margir af nemendum Möðruvallaskólans, er starfaði
þó aðeins fá ár, hafa orðið þjóðnýtir menn.
Þegar komið var á Moldhaugnaháls var stansað og litið yfir
Eyjafjörðinn sem þá blasti við. Að því búnu var rennt til Akureyr-
ar og komum við þangað klukkan rúmlega sex síðdegis. Fóru nú
sumir til frænda og vina en aðrir á gistihús. En um kvöldið var
kaffiboð hjá Búnaðarsambandi Eyjafjarðar. Voru þar fluttar
margar ræður undir borðum.
Sunnudagsmorguninn 17. júní notuðum við til að skoða
Gróðrarstöðina og Lystigarð Akureyrar en sumir fóru í kirkju
klukkan ellefu. - Eftir að hafa setið miðdagsboð hjá KEA ókum
við fram í Eyjafjörð um búsældarlegar sveitir og skoðuðum m.a.
hina fögru kirkju á Grund og samkomuskálana á Hrafnagili.
Við vorum snemma á fótum mánudagsmorguninn 18. júní.
Klukkan var sjö er við lögðum leið okkar að verksmiðjum KEA
og SIS sem þá þegar voru allar í fullum gangi.
Er það mikið menningar- og framfaraátak sem þar hefur verið
gert. Það var ánægjulegt að fylgja hráefnunum eftir, ull, skinn-
um og húðum, frá því þau fóru fyrst í vélarrnar og þar til þau
komu fullunnin úr verksmiðjunni sem fatnaður og skór. Eiga
þeir miklar þakkir skildar sem stjórna þessari framleiðslu með
dugnaði og hagsýni. Því miður var tími okkar of naumur til að
sjá allt sem þarna fór fram, þar sem lagt skyldi af stað klukkan
tíu, og enginn vildi óhlýðnast boði fararstjórans. A tilsettum
tíma var því haldið áleiðis innfyrir botn Eyjafjarðar og sem leið
liggur um þær fögru byggðir.
154