Morgunblaðið - 03.09.2021, Síða 6
6 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 3. SEPTEMBER 2021
Laugavegi 178 | 105 Reykjavík | Sími 551 3366
Opið virka daga kl. 11-18, laugardaga kl.11-15
Verð kr. 8.870,-
UPPÁHALDS
HALDARINN
kominn aftur
Haustið er tími tilhlökkunar hjá
bændum og þeirra fólki, því þá fara
smalar til fjalla og koma með fé og
hross til byggða. Í réttum er ævin-
lega mikið fjör, dregið í dilka,
sungið og rekið heim. Þetta árið,
rétt eins og í fyrra, verða hömlur á
hversu margt fólk má koma til
rétta, vegna smitvarna og fjölda-
takmarkana. Fólk er hvatt til að
kynna sér vinnulag á hverjum stað
áður en haldið er til rétta. Fyrstu
réttir þessa árs verða nú um
helgina. Í dag, föstudag 4. sept., og
á morgun, laugardag 5. sept., verð-
ur réttað í Borgarhafnarrétt í Suð-
ursveit. Laugardag 4. sept verður
réttað í Mýrarrétt í Bárðardal,
Hraungerðisrétt og í Möðruvalla-
rétt í Eyjafjarðarsveit, Nesmelsrétt
í Hvítársíðu, Hraunsrétt í Skutuls-
firði, Hrútatungurétt í Hrútafirði,
Hvammsrétt í Langadal, Miðfjarð-
arrétt í Miðfirði, Rugludalsrétt í
Blöndudal og í Eyrarrétt í Kolla-
firði. Sunnudag 5. sept. verður rétt-
að í Hlíðarrétt í Mývatnssveit,
Svalbarðsrétt, Tungurétt í Öxar-
firði, Vallarétt, Vatnsendarétt,
Þverárrétt ytri, Árrétt í Bárðardal,
Baldursheimsrétt í Mývatnssveit,
Fjallalækjarselsrétt, Garðsrétt í
Þistilfirði, í Kaldárbakkarétt,
Teigsrétt og Beinakeldurétt í
Húnavatnssýslu. Á vef Bænda-
blaðsins, bbl.is, er að finna lista yfir
dagsetningar allra rétta í haust,
fjárrétta og stóðrétta.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Réttir um helgina
- Fjár- og stóðréttir verða með öðrum
brag vegna kórónuveirufaraldurs
venjur íbúa á höfuðborgarsvæðinu
til og frá vinnu voru kynntar á fundi
skipulags- og samgönguráðs
Reykjavíkurborgar 1. september.
Fulltrúar bókuðu mikið.
Maskína gerði könnunina fyrir
borgina dagana 3.-30. júní í sumar.
Hún var gerð á netinu og voru svar-
endur 1.571 talsins. Svarendur voru
vinnandi fólk af öllu höfuðborgar-
svæðinu og á aldrinum 18 ára og
eldri. Við úrvinnslu voru gögnin veg-
in til samræmis við tölur Hagstof-
unnar þannig að hópurinn endur-
speglaði þjóðina út frá kyni, aldri og
búsetu. gudni@mbl.is
Íbúar á höfuðborgarsvæðinu notuðu
einkabílinn meira við að fara til og
frá vinnu í sumar en í febrúar og júní
í fyrra. Þeir sem fóru á einkabílnum
sem bílstjórar voru 88,2% í sumar en
82,9% í fyrrasumar. Þeir sem hjól-
uðu til og frá vinnu í sumar (27,7%)
voru einnig færri en þeir sem hjól-
uðu í júní í fyrra (33,8%).
Færri (21,1%) tóku strætó til og
frá vinnu í sumar en í fyrrasumar
(22,5%) og enn færri en í ágúst 2019
(26,2%). Þá vekur athygli að 8,5%
kváðust hafa notað rafhlaupahjól til
ferða til og frá vinnu í sumar.
Niðurstöður könnunar um ferða-
Fleiri óku til vinnu
en færri með strætó
Ferðavenjur íbúa á höfuðborgarsvæðinu til og frá vinnu
Þannig ferðast fólk oftast skv. könnun í júní sl. Helstu ferðamátar í síðustu fjórum könnunum
50%
40%
30%
20%
10%
0%
Reiknað vægi svara um fyrsta,
annað og þriðja val á ferðamáta
Ferðamáti sem er oftast notaður
Ferðamáti sem fólk vill helst nota
Einkabíll, sem bílstjóri eða farþegi
Reiðhjól eða fótgangandi
Strætó
Bílstjóri Farþegi Reiðhjól Fótgangandi Strætó Rafskúta* Mótorhjól Annað
30%
44%
9%
14%
20%
14%
17%
12% 12%
10%
8%
4%
Einkabíll
2%
1%
2%
1%
70%
35%
0%
ágúst 2019 febrúar 2020 júní 2020 júní 2021
61% 58%
27% 26%
11% 10%
Heimild: Reykjavíkurborg
*Fyrst með í könnun í júní sl.
Bifreiðastöð Oddeyrar, BSO, mun
þurfa að víkja af lóð sinni fyrir 1. apr-
íl 2022 vegna breytinga á deiliskipu-
lagi miðbæjar Akureyrar og vegna
sjónarmiða um umferðaröryggi.
Bæjarráð Akureyrabæjar staðfesti
þetta á fundi í gær.
BSO var stofnuð 1953 og hefur
starfað á sama stað síðan, við Strand-
götu á Akureyri. Félagið rekur einu
leigubílastöð bæjarins sem og einu
sjoppuna í miðbæ Akureyrar. Í fund-
argerð bæjarráðs kemur fram að
mannvirki leigubifreiðastöðvarinnar
hafi verið á bráðabirgðastöðuleyfi
með sex mánaða uppsagnarfresti frá
árinu 1955 og enginn leigusamningur
liggi fyrir.
„Við viljum alls ekki fara. Við er-
um á stað sem er búinn að sýna það
og sanna síðastliðin 65 ár, sem þetta
hús er búið að vera, að það hafi
menningarlegt gildi fyrir marga
Akureyringa sem koma hingað dag-
lega. Eins er það mikilvægt fyrir
næturlífið,“ segir Margrét Elísabet
Imsland Andrésardóttir, fram-
kvæmdastjóri BSO, í samtali við
Morgunblaðið.
Kaupmaður á horninu
Margrét segir BSO vilja halda
stöðu sinni sem kaupmaðurinn á
horninu og leggur áherslu á þau séu
eina sjoppan í miðbæ Akureyrar.
„Eins og staðan er núna í miðbænum
geturðu ekki keypt þér eina kók-
flösku nema að fara inn á kaffihús,“
segir Margrét.
Margrét segir að þó að tæknin
bjóði upp á að geta starfað hvar sem
er þá vilji þau vera í miðbænum.
„Það þarf að vera hús fyrir fólk þar
sem það getur beðið inni, sérstaklega
eins og á Akureyri þar sem er harður
vetur,“segir Margrét. Aðspurð hvort
félagið hafi skoðað annað húsnæði
segir Margrét það vera að skoða í
kringum sig en eins og nýjasta skipu-
lagið gefi til kynna sé ekki gert ráð
fyrir fyrirtækinu neins staðar
Hún segir næsta skref að ræða við
lögmenn fyrirtækisins.
Einhugur í bæjarráði
Guðmundur Baldvin Guðmunds-
son, formaður bæjarráðs Akureyrar,
segir í samtali við Morgunblaðið að
málið hafi verið langan tíma í ferli en
vonir standi til að húsnæði finnist í
miðbænum þar sem BSO geti haldið
áfram rekstri sjoppunnar og leigu-
bílaþjónustunnar. Þá segir hann hús-
ið vissulega eiga langa sögu en nýja
deiliskipulagið geri ekki ráð fyrir því
og þetta sé því lokaniðurstaða máls-
ins. Einhugur var um málið innan
bæjarráðs.
Leigubílar víkja á Akureyri
- Einu leigubílastöð Akureyrar og einu sjoppu miðbæjarins gert að víkja - Hafi
menningarlegt gildi fyrir Akureyringa - Vilji til að finna húsnæði í miðbænum
Morgunblaðið/Þorgeir Baldursson
Gert að víkja Bifreiðastöð Oddeyrar þarf að víkja fyrir 1. apríl 2022.
Maður er í haldi lögreglunnar í
Vestmannaeyjum vegna gruns um
kynferðisbrot gegn konu í heima-
húsi í fyrrinótt. Bæði eru þau á þrí-
tugsaldri.
Þetta staðfestir Jóhannes Ólafs-
son, yfirlögregluþjónn í Vest-
mannaeyjum.
Konan var flutt til Reykjavíkur í
sjúkraflugi á neyðarmóttöku Land-
spítalans. Jóhannes segir það vera
eðlilegt þegar um kynferðisafbrot
er að ræða.
Hann segir þann grunaða hafa
verið handtekinn fljótlega eftir að
tilkynningin barst lögreglu. Brota-
þoli hafi sjálfur tilkynnt atburðinn.
Lögregla kveðst ekki geta veitt
nánari upplýsingar um málið.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Eyjar Málið kom upp í Vest-
mannaeyjum í fyrrinótt.
Grunur um
kynferðisbrot