Morgunblaðið - 03.09.2021, Síða 19
✝
Kara Guðrún
Melstað fæddist
á Akureyri 22. sept-
ember 1959. Hún
lést á heimili sínu í
Wendgräben í
Þýskalandi 31. maí
2021.
Eiginmaður Köru
er Alfreð Gíslason,
fæddur 7. sept. 1959.
Þau gengu í hjóna-
band árið 1980.
Börn þeirra eru: 1) Elfar, fæddur
6. júní 1983, giftur Andreu Eiðs-
Horn, fæddur 25. júní 1990. 3)
Andri Grétar, fæddur 15. sept-
ember 1994.
Foreldrar Köru voru Grétar
Stefán Melstað, fæddur 4. október
1931, dáinn 6. janúar 1986, og
Anna Sæmundsdóttir, fædd 22.
janúar 1937, dáin 5. september
1979.
Systkini Köru eru Sæmundur,
fæddur 18. mars 1961, Margrét,
fædd 27. júli 1963 og Valgerður,
fædd 20. maí 1965.
Kara ólst upp á Akureyri og
gekk þar í skóla. Hún var kennari
að mennt. Um langt árabil bjó hún
ásamt eiginmanni sínum og fjöl-
skyldu í Þýskalandi.
Minningarathöfn um Köru
Guðrúnu Melstað fer fram í Ak-
ureyrarkirkju 3. september 2021
klukkan 13.
dóttur, fædd 8. októ-
ber 1985. Börn
þeirra eru Herdís,
fædd 29. júní 2011,
Eiður, fæddur 27.
september 2013 og
Kara, fædd 22. júlí
2018. Barn Elfars af
fyrra sambandi með
Helgu Margréti
Guðjónsdóttur, fædd
22. júní 1986, er
Karítas Hrönn, fædd
11. maí 2006. 2) Aðalheiður, fædd
4. júlí 1990, maki hennar er Falk
Minningarorð um Köru tengda-
móður mína.
Fyrir tæpum tólf árum kynntist
ég Köru þegar leiðir okkar Elfars
lágu saman. Ekki gerði ég mér
grein fyrir því þá hvað það var mik-
il lífsins lukka. Við vorum ákveðnar
báðar tvær og nokkuð ljóst að við
þyrftum að stilla saman okkar
strengi, en eftir það var ekki aftur
snúið. Samband þeirra mæðgina
var einstakt og náið þrátt fyrir
fjarlægð milli tveggja landa og það
var mér ráðgáta í fyrstu hvernig ég
ætti eða gæti staðið mig eins vel og
þessi ótrúlega kona, því Kara var
engin venjuleg kona. Hún skipu-
lagði, framkvæmdi, skipti oft um
skoðun en á endanum lét hún verk-
in tala, hvort sem það voru fram-
kvæmdir á heimilinu, vera ofur-
amma eða skipuleggja ferðalög og
flutninga innan fjölskyldunnar.
Kara gekk undir nafninu Drek-
inn í fjölskyldunni og hún kallaði
sig sjálf Drekann í daglegu tali.
Það gustaði af henni þegar hún
mætti á svæðið og tók til hendinni,
hún sá um allt, gekk í allt, sama
hvað og hún hafði ráð undir rifi
hverju. Kara hafði mikinn áhuga á
saumaskap og þar naut hún sín í að
finna upp og búa til allt milli himins
og jarðar. Það var henni því mikið
hjartans mál að tengdadóttirin
eignaðist saumavél og linnti hún
ekki látunum fyrr en vélin var
komin í hús. Hún tók mig oft í
kennslu í hinu og þessu, pússa al-
mennilega skó, þrífa viftuna eða
skipta um síur og við gerðum grín
að okkur og hlógum þegar hún,
Drekinn, sagðist vera að þjálfa
Litla-Dreka. Hún kenndi mér ótal-
margt sem er mér dýrmætt í dag.
Það voru alltaf miklar gleði-
stundir barnanna okkar þegar
amma Kara og Alli afi komu til
landsins eða þau fóru út til þeirra.
Þar voru samverustundirnar nýtt-
ar vel, farið í skógarferðir, dýra-
garða, verslunarferðir, handbolta-
leiki og hin ýmsu ævintýri
skipulögð og það er engin betri en
amma Kara að segja sögur fyrir
svefninn, helst um dreka og risa-
eðlur. Þetta voru góðir tímar fyrir
okkur öll sem við erum svo þakklát
fyrir í dag.
Vorið var komið og við vissum
að veikindi Köru höfðu tekið yf-
irhöndina. Það var erfitt en á
sama tíma gott að fara öll út til
Þýskalands og dvelja hjá henni
síðustu vikurnar. Þar fengu
börnin mín tækifæri til að eiga
með henni stundir og ég trúi því
að hún hafi notið þess að heyra
húsið sitt fyllast af lífi og leik, í
bland við fuglasöng og sólar-
geisla sem teygðu sig inn til
hennar.
Það er komið að kveðjustund,
við fjölskyldan stöndum þétt
saman og höldum minningu þinni
á lofti um ókomna tíð eins og þú
myndir vilja.
Þín
Andrea Eiðsdóttir.
Elsku Kara, hvernig eigum við
að kveðja þig, ætluðum ekki að
þurfa að gera það strax, en stund-
um rennur tíminn bara út. Við töld-
um okkur hafa nógan tíma til að
fara að ferðast saman, gera
skemmtilega hluti, leika okkur og
njóta. Hittingurinn okkar í
Wendgräben, í tilefni afmælis ykk-
ar Alla, var yndislegur og ógleym-
anlegir dagar, mikið spjallað, hleg-
ið, gantast og rifjaðar upp sögur
frá uppvaxtarárum okkar í
Bjarmastígnum. Við systkinin
unnum í systkinalottóinu þegar við
fæddumst, við höfum alltaf verið
svo ánægð hvert með annað, pass-
að upp á hvert annað og notið þess
að vera saman þegar við höfum
getað. Stundum liðið langur tími á
milli hittinga vegna búsetu en það
hefur aldrei skipt máli, alltaf eins
og við höfum verið saman í gær. Þú
varst alltaf kletturinn, elst og tókst
strax ábyrgð á okkur þegar veik-
indi mömmu komu upp. Hélst okk-
ur við verkefnin og studdir okkur
sama hvað var. Okkur fannst þú
samt stundum aðeins of stjórnsöm
þegar þú komst heim í frí úr kenn-
aranáminu og lést okkur fara að
þrífa heimilið. Við gátum ekki
séð að það væri ekki allt í lagi þó
gólfin væru ekki nýskúruð, leir-
tauið glansaði ekki eins og nýtt
og ekki alltaf búið um rúmin. En
í dag vitum við að þetta var bara
væntumþykja og ást. Það er svo
yndislegt að hugsa til þess hvað
þú hefur verið okkur mikilvæg,
þó þú hafir búið mikið erlendis
þá varst það samt alltaf þú sem
maður leitaði til með allt og ekk-
ert, úrræðagóð, glöð og lausna-
miðuð, aldrei nein vandamál
bara verkefni. Alltaf tilbúin að
leyfa krökkunum að koma í
heimsókn til Þýskalands svo þau
gætu verið með frændsystkinum
sínum, styrkt tengslin, sem eru
svo sterk og góð í dag. Stundir
sem þau munu aldrei gleyma,
stundir sem þú bjóst til með þeim
og þú sem hefur alltaf verið þeim
svo kær.
Tómarúmið sem situr eftir er
sárt og erfitt að sætta sig við, en
tíminn á eftir að deyfa sársauk-
ann og gera hlutina bærilegri, en
tilhugsunin um að fá ekki símtal,
geta ekki hringt, fengið heim-
sókn eða heimsótt þig er svo erf-
ið. Minningarnar eru margar og
yndislegar og þær munu lifa með
okkur og ylja, þín er og verður
sárt saknað.
Elsku Alli, Elfar, Aðalheiður,
Andri Grétar og fjölskyldur,
innilegar samúðarkveðjur og
megi góðar minningar um fallega
konu hjálpa ykkur á erfiðum tím-
um og lifa með ykkur.
Svefninn þinn langi
Hvert sem ég fer,
hvað sem ég geri,
í lífi sem dauða,
mun mynd af þér endurspeglast
í augum mér.
Gylltur rammi.
Og bros þitt
og hjarta gert úr demanti.
Og birtan sem umlykur þig
færir mér yl.
Allt þetta mun ég varðveita djúpt í huga
mér, og minningin um hlátur þinn og
gleðina sem þú færðir mér mun fylgja
mér hvar sem ég er, hvert sem ég fer
inn í eilífðina
(Höf. Dimma)
Elsku sis, hvíldu í friði og megi
allar góðar vættir umlykja þig.
Margrét (Magga), Vala og
Sæmundur (Sammi).
Elsku Kara, nú er allt breytt og
verður aldrei eins. Það er óendan-
lega sárt að kveðja þig, þú varst
svo margt, gast sett á þig hvaða
hatt sem er, hvenær sem er. En þó
það sé sárt að kveðja, þá erum við
svo þakklát á sama tíma fyrir allt
það sem þú varst okkur.
Ég man hvað ég var spennt og
stressuð að kynna Einar fyrir ykk-
ur Alla í Kiel. Okkar beið, eins og
þér einni var lagið, heitur matur og
kassi af bjór úti á svölum. Svo sát-
um við og spjölluðum fram á kvöld.
Morguninn eftir er morgunn sem
ég gleymi aldrei. Ég kem fram á
undan Einari og þú ert búin að
hella upp á kaffi, vindur þér strax í
það sem ég var stressuðust fyrir:
„Einar virkar bara vel á mig, það
lítur út fyrir að hann geti verið rót-
eindin í lífi þínu og þú verið svona
rafeindin sem svífur í kringum
hann. En eitt – á hann ekki betri
skó? Ég er búin að taka skóna
hans, skipta um reimar, setja ullar-
innlegg í þá en það dugar ekki til,
við förum í bæinn á eftir og kaup-
um á hann nýja skó, humm ók?“
Þar með var Einar búinn að
standast prófið inn í fjölskylduna
án frekari umræðna ef við bara
fyndum á hann betri skó. Eftir
þetta áttum við margar góðar
stundir saman í Kiel. Enda eins og
þið systur allar eruð, bætið hver
aðra upp hvar sem þið eruð stadd-
ar í heiminum. Þú varðst þarna
hálfgerð mamma mín og varst búin
að vera á mínu utanlandsbrölti og
fyrsta tengdamamma Einars.
Alla mína ævi hefur þú kennt
mér svo margt, alla mögulega
praktíska hluti en upp úr stendur
lífsviðhorfið. Kvöld eitt í Wend-
gräben þegar þú sagðir við okkur:
„Krakkar, vitið þið að við Alli höf-
um rætt það að við höfum engan
tíma til að bíða eftir því að verða
gömul til þess að njóta lífsins, við
vitum ekki hversu lengi við höfum
hvort annað og þess vegna gerum
við „allt“ sem okkur langar núna.“
Þú hlóst á eftir, ég heyri þig ennþá
hlæja. Því að jú, þú framkvæmdir
alltaf það sem þú sagðir, dreifst í
hlutunum og lést ekkert stoppa
þig. Ekkert var ómögulegt. Eins
og þegar við gróðursettum þrjú
hundruð sígrænar tveggja metra
háar plöntur á einum degi sem Alli
hafði fengið á tilboði í Hollandi.
Þann morgun vaktir þú okkur með
því að banka á hurðina og segja:
„Krakkar, ég þarf að fá ykkur til að
hjálpa mér smávegis, gengur það?
Það er komið kaffi.“ Í þessari sömu
ferð okkar í Wendgräben, þegar
Vala var líka komin, rissaðir þú
upp startkostnað og mögulegar
tekjur af gistirekstri í Bjarmó og
þar með var það bara ákveðið. Svo
einfalt var þetta alltaf hjá þér og ég
trúi því að ég sé með þessi gen þín.
Ég hef alltaf verið svo stolt af því
þegar fólk segir: „Nú ertu alveg
eins og Kara frænka þín.“
Það eru forréttindi að hafa haft
þig í lífi okkar og sárt að hugsa til
þess að þú sért farin. Hugurinn
leitar á þessum erfiðu tímum til
nánustu fjölskyldu þinnar sem hef-
ur misst eiginkonu, móður, ömmu,
systur og einstaka manneskju.
Þeirra missir er sárastur og skarð-
ið sem eftir situr verður ekki fyllt.
Lífssaga þín er svo sannarlega
merkileg og ómetanleg. Við mun-
um ylja okkur við minningarnar
um ókomna tíð og halda heiðri þín-
um á lofti.
Halla Sif og Einar.
Mikill harmur var kveðinn að
gömlu bekkjarfélögunum úr 6F
1979, Menntaskólanum á Akur-
eyri, þegar fréttir bárust frá
Þýskalandi af ótímabæru andláti
Köru Guðrúnar Melstað. Hún var
á margan hátt andleg og félagsleg
þungamiðja bekkjarins okkar í
þrjú ár og jafnan svo ung, fersk og
björt í sinni að maður hafði á til-
finningunni að hún yrði eilíf. En
sláttumaðurinn slyngi fer ekki í
manngreinarálit og kærir sig koll-
óttan um verðleika og mannkosti.
Ég kynntist Köru fyrst í lands-
prófi í GA. Allir strákarnir voru
skotnir í Köru, en eins og segir í
Carmínu-grein um hana 1979:
„ung var hún Elfráði gefin“ og hún
ákvað ung að eyða ævinni með
handboltakappanum snjalla sem
seinna átti eftir að auðga F-ið líka.
Kara sagðist hafa notið þeirra for-
réttinda í æsku að alast upp í stór-
fjölskyldu þar sem alltaf var sama-
staður hjá einhverjum ef einn
hvarf á brott. Hún lærði því
snemma það félagslega næmi og
þá samkennd sem einkenndi hana
jafnan síðan.
Út á við virtist Kara oft fjar-
huga, „hnarreist og hnakkakerrt“,
svo að enn sé vitnað í gömlu Carm-
ínu-greinina. Ókunnugir gátu því
fengið þá tilfinningu að hún væri
ögn hrokafull og fjarræn; en ekk-
ert var fjær sanni. Einlægari og til-
finningaríkari persónu var erfitt að
finna. Réttlætiskennd hennar var
líka við brugðið. Til hennar var
ljúft að leita ráða við lausn á vanda-
málum, stórum jafnt sem smáum,
og hún tók lífbrigðum tilverunnar
með stóískri ró, blandinni plat-
ónskri trú á réttlæti, sannleika og
jöfnuð. Í félagslífi bekkjarins var
hún límið sem á endanum hélt öllu
saman. Kara og Alli – og oft leit
maður á þau sem eina lífræna heild
fremur en tvo einstaklinga – voru
lífið og sálin í F-inu. Þegar hún
kenndi síðar við GA nýttust mann-
kostir hennar vel og hún var ákaf-
lega vinsæll kennari.
Kara lét sér ekkert fyrir brjósti
brenna. Hún tók brotsjóm lífsins
með æðruleysi – en var jafnan til
reiðu að rétta hjálparhönd og
greiða veg réttlætisins. Því miður
glataðist samband okkar flestra við
Köru þegar þau Alli fluttu til
Þýskalands og gerðu garðinn
frægan þar. Í minningunni er eilíft
sólskin og akureyrsk Lystigarðs-
blíða í kringum ímynd okkar af
Köru – þessari einstaklega vel inn-
réttuðu manneskju sem stráði rétt-
vísi, einlægni og vináttu í kringum
sig hvar sem spor hennar lágu.
Blessuð sé minning hennar.
Fyrir hönd bekkjarfélaganna úr
F-inu, MA,
Kristján Kristjánsson.
Í minningu góðrar og mikil-
hæfrar konu.
Jarðvist á enda,
lífsgöngu lokið,
ljósið þitt slökknað,
fölnuð brá.
Virðing og þökk,
vegferðin öll
vel í huga geymd.
(Sálmabókin 899)
Árni og Hrefna.
Ég kynntist Alla og Köru í
gegnum handboltann hjá KA upp
úr 1990. Á þeim sex árum sem Alli
þjálfaði liðið komu fjölmargir titlar
í hús og stemningin í KA-húsinu
var hreint ótrúleg. Hún verður
aldrei endurtekin því í dag væri
ekki leyfilegt að troða upp undir
1.600 manns inn í þetta litla
íþróttahús eins og gert var aftur og
aftur á gullaldarárunum.
Við sem sátum í stjórn hand-
knattleiksdeildarinnar áttuðum
okkur ekki á því strax – frekar en
önnur lið sem hafa ráðið Alla til
starfa síðan – að með ráðningu
hans fengum við tvo fyrir einn, eða
öllu heldur tvö fyrir einn. Kara
stóð alltaf þétt við hlið síns manns
og studdi dyggilega í öllu sem við-
kom handboltanum. Þess vegna
segi ég gjarnan „þeirra ferill“ þeg-
ar rætt er um glæstan feril Alla
sem þjálfara. Það má líka orða það
svo að þótt Alli ráði innan vallar
hafi Kara gjarnan ráðið utan vall-
ar, að stórum hluta. Hið sama ein-
kenndi þau hjónin bæði: Vinnu-
semi, reglusemi og aftur
vinnusemi. Þáttur Köru í ein-
stökum þjálfaraferli Alla er ómet-
anlegur.
Annað vil ég nefna í þessu sam-
hengi. Menn tóku eftir því – allan
þjálfaraferil Alla í Þýskalandi,
þessari stærstu og erfiðustu deild
handboltans í heiminum – að hann
hafði alltaf færri aðstoðarmenn en
hin liðin. Það var kannski í sjálfu
sér ekki alveg rétt ályktað, menn
gleymdu einfaldlega að telja Köru
með! Eitt af því sem hún gerði alla
tíð listavel var að taka unga og
óharðnaða leikmenn, sem Alli fékk
til liðs síns, undir sinn verndar-
væng. Hún hjálpaði þeim að aðlag-
ast nýjum aðstæðum og breyttri
tilveru og gekk þeim alyngstu nær
því í móðurstað, hlý og umhyggju-
söm eins og alltaf. Það var henni
einhvern veginn eðlislægt. Hún
missti foreldra sína ung að árum
og hélt þá utan um yngri systkini
sín. Það sama gerði hún þegar þau
Alli stofnuðu fjölskyldu, hún hlúði
að börnunum þeirra og seinna
barnabörnum af ástúð og um-
hyggju.
Starfs míns vegna hef ég oft
verið í Þýskalandi á liðnum áratug-
um. Ég hef líka farið á marga
handboltaleiki þar sem Alli var við
stjórnvölinn. Í þessum handbolta-
ferðum mínum bjó ég oftast á
heimili þeirra Alla og Köru og
kynntist þá enn betur hversu náið
og þétt þau unnu saman. Ég hef átt
margar gleðistundir með þeim
hjónum eftir leiki en aldrei ofmetn-
uðust þau þrátt fyrir mikla vel-
gengni – og svo var fljótlega farið
að hugsa um næsta leik. Kara vissi
vel hvað ég gat orðið stressaður í
mestu háspennuleikjunum og í
þeim tilfellum sem við sátum ekki
saman og horfðum á leikinn, spurði
hún mig að leik loknum: „Fórstu
fram á gang, Mái minn?“ Spurn-
ingunni fylgdi gjarnan bros og síð-
an hinn fallegi og smitandi hlátur
Köru. Oftar en ekki varð ég að
svara þessari spurningu játandi.
Ég kveð Köru með söknuði og
virðingu og þakka samfylgdina
og vináttuna. Ég sendi Alla hug-
heilar samúðarkveðjur sem og
börnum þeirra, Elvari, Aðalheiði
og Andra, mökum þeirra og
börnum, systkinum Köru og öðr-
um ástvinum. Blessuð sé minn-
ing Köru Melstað.
Þorsteinn Már Baldvinsson
Kara Guðrún
Melstað
MINNINGAR 19
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 3. SEPTEMBER 2021
Ástkær faðir minn, tengdafaðir og afi,
ODDUR GÚSTAFSSON
hljóðupptökumaður,
Dísarási 19,
lést á líknardeild Landspítalans
miðvikudaginn 25. ágúst. Útför fer fram frá
Árbæjarkirkju föstudaginn 10. september klukkan 13.
Hildur Hrönn Oddsdóttir Sigurður Þórir Þorsteinsson
Paul Terrill
Einar Raymond Terrill
Erna Þórey Sigurðardóttir
Eiður Þorsteinn Sigurðsson
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir og afi,
JENS EIRÍKUR HELGASON,
fyrrv. bóndi,
Hátúnum í Landbroti,
lést miðvikudaginn 1. september á
hjúkrunarheimilinu Klausturhólum á
Kirkjubæjarklaustri.
Útför hans fer fram mánudaginn 13. september klukkan 13
í Prestsbakkakirkju á Síðu. Blóm og kransar afþakkaðir en þeim
sem vilja minnast hans er bent á Velunnarasjóð
Hjúkrunarheimilisins Klausturhóla.
Kári Þór
Helgi Valberg Jensson Margrét Kristín Pálsdóttir
Sveinn Hreiðar Jensson Anastassiya Kim
og barnabörn
Hjartans þakkir til allra þeirra sem sýndu
okkur samúð og hlýhug við andlát og útför
elskulegs sonar okkar,
JÓNS ÁGÚSTAR BERGS JÓNSSONAR
sjómanns.
Sérstakar þakkir fær starfsfólk
gjörgæsludeildar Hringbrautar og Fossvogs.
Fyrir hönd fjölskyldunnar,
Jón Berg Reynisson Guðrún Dröfn Birgisdóttir
Hjartans þakkir fyrir auðsýnda samúð og
hlýhug vegna andláts ástkærs bróður
okkar, mágs og frænda,
SIGURÐAR GUNNARSSONAR.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki
Hrafnistu í Hafnarfirði fyrir góða umönnun.
Ragnheiður Gunnarsdóttir Ásgeir Bjarnason
Magnús Gunnarsson Elísabet Karlsdóttir
og frændsystkin