Saga - 2013, Blaðsíða 42
hefði verið pólitískur vilji fyrir því hjá fyrri ríkisstjórn landsins að
kanna hvað hæft væri í ásökunum um, að Evald Mikson hefði gerst
sekur um stríðsglæpi árið 1941. Það græfi undan orðspori Eistlands
sem réttarríkis ef ásakanirnar yrðu ekki rannsakaðar.116
Vorið 1993 hélt Simon Wiesenthal-stofnunin áfram að þrýsta á
íslensk stjórnvöld. Fulltrúa Íslands hjá Sameinuðu þjóðunum í New
York var t.d. afhentur listi með 835 undirskriftum, þar sem skorað
var á Davíð Oddsson að gera eitthvað í máli Miksons. Þessi þrýst -
ingur bar að lokum árangur 10. ágúst. Ríkissaksóknari ákvað þá að
skipa Jónatan Þórmundsson, prófessor í lögum við Háskóla Íslands,
til að rannsaka málið.117 Jónatan hafði þá þegar unnið að því í nokk-
urn tíma og gert ráðstafanir til að afla frekari gagna.118 Þórir Odds -
son, vararannsóknarlögreglustjóri ríkisins, var honum til aðstoðar
við rannsóknina. Daginn áður en skýrt var frá ákvörðun ríkissak-
sóknara opinberlega höfðu 85 þingmenn á ísraelska þinginu skorað
á íslensk stjórnvöld að höfða mál á hendur Mikson fyrir meinta
stríðsglæpi. Wiesenthal-stofnunin átti frumkvæði að því að bréfið
var sent en meðal þeirra sem undirrituðu það voru Yitshak Shamir,
fyrrverandi forsætisráðherra, og David Levy, fyrrverandi utanríkis -
ráðherra. Í bréfinu voru íslensk stjórnvöld hvött til að hreinsa sig af
ásökunum um að halda hlífiskildi yfir stríðsglæpamanni. Bréfið var
undirritað af fulltrúum allra flokka ísraelska þings ins að undan-
skildum minnsta þingflokknum, Lýðræðisflokki Araba. Þeir höfðu
ekki heimild til að undirrita slíkt bréf og var sú staðreynd óháð
skoðun þeirra á málinu.119
Zuroff fagnaði mjög ákvörðun ríkissaksóknara að efna til opin-
berrar lögreglurannsóknar á sakargiftunum og taldi ranglega að
bréf þingmannanna hefði haft eitthvað um það að segja. Hann
orðaði það svo: „85 ísraelskir þingmenn [senda] forsætisráðherran-
um ykkar bréf, og Peres [utanríkisráðherra] kemur til Íslands á
þriðjudaginn. Hvílík tilviljun! Vegir sögunnar eru órannsakan -
legir“.120 Það var rétt að Peres kom hingað til lands í lok ágúst.
valur ingimundarson40
116 Morgunblaðið 13. febrúar 1993, bls. 18.
117 Skjalasafn ríkissaksóknara, mál Eðvalds Hinrikssonar, 60.20. 5, fréttatilkynn-
ing (Embætti ríkissaksóknara), 10. ágúst 1993.
118 Skjalasafn ríkissaksóknara, mál Eðvalds Hinrikssonar, 10.20. 4, bréf Hallvarðs
Einvarðssonar ríkissaksóknara til Boga Nilssonar rannsóknarlögreglustjóra
ríkisins, 10. ágúst 1993.
119 Morgunblaðið 13. ágúst 1993, bls. 2.
120 Morgunblaðið 14. ágúst 1993, bls. 2.
Saga vor 2013 NOTA_Saga haust 2004 - NOTA 8.5.2013 12:22 Page 40