Saga


Saga - 2013, Blaðsíða 182

Saga - 2013, Blaðsíða 182
Frá þessu erfiða og á stundum óbærilega lífi segir Sveinn Þórarinsson í dag- bókum sínum. Þegar Jón Sveinsson kemur höndum yfir þessar bækur á full- orðinsárum kemst hann að ýmsu um hjónabandserjur foreldra sinna, pen- ingaleysi, öfundsýki, óhamingju, afbrýðisemi, veikindi og þunglyndi. Hann fær áfall við lesturinn. Dagbækurnar voru Jóni þó mikilvægar og í þeim fann hann söguefni í eigin bækur, en auk þess vildi hann, eins og Gunnar segir, „kynnast föður sínum sem hafði alla tíð verið svo fjarlægur í minningunni, eins og glöggt má sjá í bernskusögum hans“ (bls. 15). Í Nonnabókunum segir þó ekkert um hvorki sult og seyru né missi og aðra erfiðleika, og þar ríkir „heiðríkjan ein“ (bls. 59). Jón Sveinsson vildi eiga píningarsögu föður síns með sjálfum sér, segir Gunnar. Þær áttu ekkert erindi í nostalgískar bernskuminningar. Þar er rétt að í Nonnabókunum er varla minnst á föðurinn nema í örfá skipti, en spyrja má hvort þessa þögn sem umlykur föðurinn megi ekki gera að stærra umtalsefni. Þögnin beinlínis hrópar á lesendur Nonnabókanna og svona hávær þögn hlýtur að vera merkingarbær. Spyrja má um samband þeirra feðga því ljóst er af dagbókum Sveins að Nonni var ekki hans upp- áhaldsbarn, en um þetta fjallar Gunnar og segir að Nonni hafi ekki birst sem sjálfstæð persóna í dagbókum föðurins fyrr en eftir að hann var farinn á annan bæ sem tökubarn. Þögnina sem umlykur föðurinn og fjarveru hans mætti túlka sem uppreisn og afneitun á honum og má styðja þessa tilgátu með því sem segir í Nonnabókunum um að í Frakklandi muni drengurinn eignast nýjan föður sem muni mennta hann, hugsa um og elska hann sem sinn eigin son. Hinn góði, franski greifi, Marie-Albéric de Foresta, sem Gunnar greinir ítarlega frá, skipti sér þó aldrei persónulega af íslenska drengnum og Jón Sveinsson hitti hann aldrei nokkurn tíma. Móðirin er stór persóna í Nonnabókunum og að henni beinist öll athygli, þrá og ást. Henni þakkar Jón Sveinsson allt gott og meira til. Jón Sveinsson kvaddi móður sína 12 ára að aldri og þau hittust aldrei framar. Aðskilnaðurinn við móðurina var umfjöllunarefni bæði í Nonna - bókunum og óteljandi fyrirlestrum sem Jón Sveinsson hélt um ævina. Ávallt komst hann við þegar hann rifjaði upp þessa stund, og áheyrendur líka. Nonni var þó ekki uppáhaldsbarn móður sinnar, ekki frekar en föðurins. Um þetta segir Gunnar: Hann fann að móðir hans hafði meiri mætur á Manna en honum sjálf- um, og sú hugsun vék aldrei frá honum, jafnvel ekki eftir að hann var orðinn fullorðinn og farinn að skrifa bækur. Ef til vill var vanstilling hans og skapþungi á stundum leið hans til að kalla á athygli móður sinnar. Mörgum árum síðar, þegar þau voru bæði orðin einstæðingar, hvort í sínu landi, myndaðist loks það samband milli þeirra sem hann hafði þráð sem drengur. Þá verður til það einlæga samband móður og sonar sem lýst er í Nonnabókunum (bls. 73–74). ritdómar180 Saga vor 2013 NOTA_Saga haust 2004 - NOTA 8.5.2013 12:23 Page 180
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128
Blaðsíða 129
Blaðsíða 130
Blaðsíða 131
Blaðsíða 132
Blaðsíða 133
Blaðsíða 134
Blaðsíða 135
Blaðsíða 136
Blaðsíða 137
Blaðsíða 138
Blaðsíða 139
Blaðsíða 140
Blaðsíða 141
Blaðsíða 142
Blaðsíða 143
Blaðsíða 144
Blaðsíða 145
Blaðsíða 146
Blaðsíða 147
Blaðsíða 148
Blaðsíða 149
Blaðsíða 150
Blaðsíða 151
Blaðsíða 152
Blaðsíða 153
Blaðsíða 154
Blaðsíða 155
Blaðsíða 156
Blaðsíða 157
Blaðsíða 158
Blaðsíða 159
Blaðsíða 160
Blaðsíða 161
Blaðsíða 162
Blaðsíða 163
Blaðsíða 164
Blaðsíða 165
Blaðsíða 166
Blaðsíða 167
Blaðsíða 168
Blaðsíða 169
Blaðsíða 170
Blaðsíða 171
Blaðsíða 172
Blaðsíða 173
Blaðsíða 174
Blaðsíða 175
Blaðsíða 176
Blaðsíða 177
Blaðsíða 178
Blaðsíða 179
Blaðsíða 180
Blaðsíða 181
Blaðsíða 182
Blaðsíða 183
Blaðsíða 184
Blaðsíða 185
Blaðsíða 186
Blaðsíða 187
Blaðsíða 188
Blaðsíða 189
Blaðsíða 190
Blaðsíða 191
Blaðsíða 192
Blaðsíða 193
Blaðsíða 194
Blaðsíða 195
Blaðsíða 196
Blaðsíða 197
Blaðsíða 198
Blaðsíða 199
Blaðsíða 200
Blaðsíða 201
Blaðsíða 202
Blaðsíða 203
Blaðsíða 204
Blaðsíða 205
Blaðsíða 206
Blaðsíða 207
Blaðsíða 208
Blaðsíða 209
Blaðsíða 210
Blaðsíða 211
Blaðsíða 212

x

Saga

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Saga
https://timarit.is/publication/775

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.