Saga - 2013, Síða 80
Þó var enn mjög sterk andstaða gegn þeim hugmyndum sem
Ingibjörg H. Bjarnason og Jóhanna Sigurðardóttir höfðu barist fyrir,
þ.e. að setja inn í löggjöfina sérstök ákvæði um að „leiðrétta mis-
rétti“ — en slík ákvæði eru í dag þekkt undir heitunum „forgangs-
regla jafnréttislaga“ og „kynjakvótar“.71 Þegar frumvarpið kom til
meðferðar í félagsmálanefnd Alþingis í október 1984 var hins vegar
samið um málamiðlun hvað varðar ákvæðið um sérstakar aðgerðir
sem hafði mætt svo mikilli andstöðu nokkrum mánuðum fyrr.
Mælti nefndin með því að heimila „sérstakar tímabundnar aðgerðir,
sem ætlaðar eru til að bæta stöðu kvenna til að koma á jafnrétti og
jafnri stöðu kynjanna“.72 Málamiðlunin fólst í hugtakinu „tíma-
bundnar aðgerðir“ og má segja að hvatinn að því hafi komið utan úr
heimi, þ.e.a.s. orðið til á grundvelli nýrra hugmynda á alþjóðavett-
vangi sem rötuðu inn í umsögn Jafnréttisráðs. Vísað var til þess að
öll hin norrænu ríkin hefðu viðurkennt „markvissar aðgerðir“ og
ekki síst að vel færi á að enda kvennaáratug Sameinuðu þjóðanna
með slíku ákvæði eins og fram kom í orðum Friðriks Sophussonar,
formanns nefndarinnar:
Það skal tekið fram sérstaklega að sumir þeir sem standa að þessari
brtt. eru gegn þeirri stefnu að beita slíkum aðgerðum, en telja þó að
ástæða sé til að hafa slíkt ákvæði í lögunum ef upp skyldu koma atvik
sem leiddu til þess að heppilegt gæti talist að beita ákvæði á borð við
þetta. Má segja að hugmynd þessara flm. sé svipuð og kom fram í máli
hæstv. utanrrh. þegar rætt var hér á hv. Alþingi um alþjóðasamning
um afnám mismununar gagnvart konum en fyrr í dag samþykkti Sþ.
sigríður matthíasd. og þorgerður einarsd.78
71 Ákvæðið sem Jóhanna Sigurðardóttir talaði fyrir 1981 og lögfest var 1985 hef-
ur verið kallað „forgangsregla jafnréttislaga“ og var skýrt þannig að veita skuli
konu starf „ef hún er að minnsta kosti jafnt að því komin að því er varðar
menntun og annað sem máli skiptir og karlmaður sem við hana keppir, ef á
starfssviðinu eru fáar konur“. Sjá Vef. Forsætisráðuneyti. Skipan í embætti skrif-
stofustjóra skrifstofu stjórnsýslu- og samfélagsþróunar í forsætisráðuneyti. Greinar -
gerð rýnihóps 15. apríl 2011, http://www.forsaetisraduneyti.is/media/frettir
1/rynihopur-greinargerd-15-april-2011.pdf, 29. janúar 2013. Sjá ennfremur
Þorgerður Einarsdóttir, „Aumingjahjálp eða afbygging á umframvaldi? Sér -
tækar aðgerðir, jákvæð mismunun og kvótar í íslenskri jafnréttisumræðu“,
Rannsóknir í félagsvísindum VIII. Erindi flutt á ráðstefnu í desember 2007. Ritstj.
Gunnar Þór Jóhannesson (Reykjavík: Félagsvísindastofnun 2007), bls. 391–402.
72 Vef. Alþingi. Friðrik Sophusson. 13.06.1985. Neðri deild: 95. fundur, 107. lög-
gjafarþing. 48. mál, jöfn staða og jafn réttur kvenna og karla, http://www.
althingi.is/altext/gomulraeda.php4?rnr=5873<hing=107&dalkur=6471, 21.
janúar 2013.
Saga vor 2013 NOTA_Saga haust 2004 - NOTA 8.5.2013 12:22 Page 78