Saga - 2013, Page 99
Breiðafjörð sem eins konar samnefnara. Hann segir framarlega í
Íslendingabók frá fjórum landnámsmönnum (sé það ekki innskot);
einn var Auður í Hvammi í Dölum sem „byggði vestur í Breiðafirði;
þaðan eru Breiðfirðingar komnir“. Þá segir hann frá Þorsteini surti
og skrifar „hann var breiðfirskur“ og bætir við að faðir hans hafi
verið Hallsteinn Þórólfsson, en Þórólfur var landnemi á Þórsnesi.
Enn fremur lætur Ari þess getið að Þórður gellir hafi verið sonur
Óleifs feilans „úr Breiðafirði“ og voru þeir þó Dalamenn. Og hann
lætur ekki hjá líða að nefna að Eiríkur rauði hafi verið breiðfirskur
og hefur líklega talið hann vera frá Dröngum á Skógarströnd.
Íslendingabók endar svo á ættartölu um langfeðga Breiðfirðinga en
það eru forfeður Ara í beinan karllegg.
Ari miðar við Breiðafjarðarsvæðið sem landræna og félagslega
heild en hvorki við Þórsnesþing né Þorskafjarðarþing sem afmörk uð
svæði, né talar hann um Snæfellinga, Dalamenn eða Barðstrendinga.
Umrætt fólk átti það sameiginlegt að eiga heima við Breiðafjörð eða
í námunda við hann. Breiðafjörður bauð upp á sérstaka lifnaðar-
hætti, með bátsferðum, sjávar- og fjörunytjum, selveiði og fugli, og
stórbændur í Dölum munu margir hafa notið þessara hlunninda og
greitt fyrir í fríðu; þetta olli vísast samvitund. En þess ber líka að
gæta að forfeður Ara fluttust úr Dölum og settust að á Helgafelli og
hefði kannski mátt búast við að Ari setti Dali á oddinn eða Helga -
fells sveit, fremur en Breiðafjörð, en það gerir hann ekki. Merkilegast
er þó að Ari kallar Vestfirðingafjórðung Breiðfirðingafjórðung sem
styrkir þá skoðun að hann hafi séð Breiðafjarðarsvæðið sem mikil-
væga félagslega heild. Hér var líklega forystuafl að mati hans en þó
vart komin upp pólitísk heild við fjörðinn.
Fyrsti höfðinginn sem varð voldugur báðum megin fjarðar, eftir
því sem helst er að sjá, var Þórður Sturluson á Öndurðareyri
(d. 1237). Þeir Sturla Sighvatsson og Órækja Snorrason reyndu að
leika sama leik, án verulegs árangurs, en löngu síðar átti Þórður eftir
að eignast sporgöngumenn í Birni ríka á 15. öld og Eggerti Björns -
syni á 17. öld. Báðir áttu heima á Skarði á Skarðsströnd. Viðleitni
Þórðar og staða hinna vekur áhuga og þessu verða gerð skil hér
aftar.
Auðskilið er að staðhættir valda því að fólk greinist að eftir
héruðum. Fjöll og nokkuð örðugar samgöngur skilja á milli svæða,
svo sem Skagafjarðar og Eyjafjarðar, en innan svæða eru samgöng-
ur jafnan greiðar. Við Breiðafjörð voru þrjár sýslur við lok miðalda
og munu flestir telja að það hafi verið eðlilegt sökum víðlendis og
ódrjúgshálsar og sæbrautir 97
Saga vor 2013 NOTA_Saga haust 2004 - NOTA 8.5.2013 12:22 Page 97