Saga - 2013, Qupperneq 135
hafi reynt að ögra henni hafi líka staðið um hana vörð.11 Þessi vandi
birtist hvað skýrast við rannsóknir fornleifafræðinga á fyrstu öldum
Íslandsbyggðar en markmiðið með þeim hefur gjarnan verið að
sanna eða afsanna þá opinberu sögu sem hefur verið túlkuð sam-
kvæmt rituðum heimildum um landnám Íslands. Hún er öxullinn
sem allt snýst um. Sífellt er verið að sannreyna uppruna Íslendinga
eða kanna með aldursgreiningum hvort landið hafi verið numið
árið 874 eða ekki.12
Þá bendir Þóra réttilega á það í grein sinni að fornleifarnar séu
eins konar subaltern í hinni opinberu sögu.13 Kenningar um subaltern
eru sprottnar úr kjarna síðnýlendustefnu og vísa til þess sem er á
jaðrinum og stendur utan ríkjandi (hegemonic) viðhorfa. Hér er ekki
beinlínis átt við minnihlutahópa heldur fremur þá sem hljóta ekki
áheyrn innan opinberrar söguskoðunar og orðræðu.14 Forn leifar eru
þannig, í skilningi kenninga um subaltern, ekki álitnar fyllilega trú-
verðug gögn við mótun sögulegrar þekkingar því þær segi umfram
annað sögu þess sem er á jaðrinum, varpi ljósi á hversdaginn og
myndi þess vegna ekki endilega vörður í hinni opinberu sögu. Þær
afhjúpa jú oftar en ekki gleymskuna í sögu þjóðarinnar og það sem
er síður eftirsóknarvert að muna. Ritaðar heimildir, eins og þær sem
varðveittar eru í Fornbréfasafni, lagabálkum og úttektum hvers kon-
ar, eru á hinn bóginn einskonar stjórnsýsluheimildir og opinber
gögn — hin opinbera saga: þjóðarsagan. Er ekki Íslendingabók Ara
einmitt fyrst og fremst stjórnsýsluheimild sem var samin fyrir opin-
bera stofnun?
Fornleifarannsóknin á Skriðuklaustri varpar ágætu ljósi á hug-
myndina um fornleifar sem subaltern. Töluvert er varðveitt af
lyfjaglas eða lyfseðill? 133
11 Þóra Pétursdóttir, „Small Things Forgotten Now Included, or What Else Do
Things Deserve?“ International Journal of Historical Archaeology 16 (2012), bls.
589.
12 Sjá t.d. Orri Vésteinsson, Helgi Þorláksson og Árni Einarsson, Reykjavík 871 +/-
2: landnámssýningin. Ritstj. Bryndís Sverrisdóttir (Reykjavík án árs); Vala
Garðarsdóttir, „Alþingisreiturinn. Upphaf landnáms í Reykjavík,“ Árbók Hins
íslenzka fornleifafélags 2011 (2011), bls. 5–45.
13 Þóra Pétursdóttir, „Small Things Forgotten Now Included, or What Else Do
Things Deserve?“, bls. 585.
14 Sjá nánar Edward Said, Orientalism, (New York: Vintage Books 1979); Gayatri
C. Spivak, „Can the Subaltern Speak?“ Marxism and the Interpretation of Culture.
Ritstj. Gary Nelson og Lawrens Grossberg (Champaign: University of Illinois
Press 1988), bls. 271–313.
Saga vor 2013 NOTA_Saga haust 2004 - NOTA 8.5.2013 12:23 Page 133