Saga - 2013, Qupperneq 137
fessor og fleiri sagnfræðingar hafa bent á.17 Guðmundur byggir
rannsóknir sínar á kenningum franska heimspekingsins Maurice
Halbwacks18 um það hvernig minningar um fortíðina móta sífellt
söguskoðun samtímans og bendir einnig á hvernig þær eru af -
byggðar (deconstructed)19 í pólitískum tilgangi.20 Sköpun þjóðarsög-
unnar hérlendis birtist fyrst og fremst í upphafningu höfunda á borð
við Jón Aðils og Jónas frá Hriflu á sjálfstæði Íslendinga í fornöld, þ.e.
frá landnámi til Gamla sáttmála. Þetta er tímabilið þegar við réðum
okkur sjálf og víkingarnir unnu glæsta sigra í hetjulegum bardög-
um sem lýst er svo vel í smáatriðum í Íslendingasögunum. Fram -
tíðin blasti þá við ungri þjóð, allt þar til Íslendingar misstu sjálfstæði
sitt og Noregskonungur og síðar Danakonungur fór með stjórn
landsins. Mikilvægt var að ná því að nýju og knýja fram barát-
tugleði gömlu víkingaþjóðarinnar með vísun til góðra minninga frá
löngu gleymdum tíma. Þannig varð mýtan um Sögulandið Ís land
og arfgengt hugrekki víkinga til, hugrekkið sem lá að baki upp-
byggingu þess efnahagslífs sem síðar hrundi hér á landi.
Íslendingasögurnar hafa með þessum hætti leikið stórt hlutverk
í endursköpun þjóðarsögunnar, með hjálp almennings og ráða -
manna en ekki síst fræðimannanna sjálfra, sem hafa viðhaldið henni
í frásögnum, áherslum í rannsóknum og fræðastarfi. Þetta er sagan
sem foreldrar okkar og við sjálf lesum um í kennslubókum og
skoðum á söfnum og sögustöðum landsins. Íslandssaga handa börn-
um eftir Jónas frá Hriflu var til að mynda kennd í 70 ár en við af
henni tók kennslubók Gunnars Karlssonar Sjálfstæði Íslendinga I, II
og III.21 Og undir þessa þjóðarsögu taka fornleifafræðingar enn
þann dag í dag, sé horft til áðurnefndrar greiningar Adolfs Friðriks -
lyfjaglas eða lyfseðill? 135
17 Guðmundur Hálfdanarson, Íslenska þjóðríkið, uppruni og endimörk (Reykjavík:
Hið íslenska bókmenntafélag og ReykjavíkurAkademían 2001). Sjá einnig
Sigríður Matthíasdóttir, Hinn sanni Íslendingur — þjóðerni, kyngervi og vald
(Reykjavík: Háskólaútgáfan 2004).
18 Maurice Halbwachs, On Collective memory/Maurice Halbwacks. Þýð. Lewis A.
Coser (Chicago: University of Chicago Press 1992).
19 Samkvæmt kenningum Jacques Derrida um afbyggingu (e. deconstruction). Sjá
Jacques Derrida, Of Grammatology [í enskri þýðingu Gayatri C. Spivak],
(Baltimore, 1976).
20 Guðmundur Hálfdanarson, Íslenska þjóðríkið, uppruni og endimörk.
21 Dagný Arnarsdóttir og Guðlaug Vilbogadóttir, „Hvar eru hinir? Rýnt í
kennslubækur í Íslandssögu á grunnskólastigi fyrr og nú“, Ólafía, rit Fornleifa -
fræðingafélags Íslands I (2006), bls. 34.
Saga vor 2013 NOTA_Saga haust 2004 - NOTA 8.5.2013 12:23 Page 135