Saga - 2013, Page 190
andi í mörgum löndum Evrópu allt fram á tuttugustu öld. Það er því hæpið
að telja áhrif Marx skipta sköpum í þeim þjóðfélagsbreytingum sem áttu sér
stað á síðari hluta nítjándu aldar.
Þrátt fyrir þessa annmarka er Örlagaborgin fróðleg og skemmtileg bók
og áhugamenn um hugmyndasögu og söguspeki munu finna þar margt
umhugsunarvert. En fræðilegt gildi bókarinnar er hverfandi sökum þess
óþarflega áróðurskennda brags sem einkennir stóra hluta hennar á kostnað
þeirrar gagnrýnu en yfirveguðu meðhöndlunar sem efnið þarfnast.
Vilhelm Vilhelmsson
Guðmundur Hálfdanarson, Magnús Guðmundsson og Sigríður Matt -
hías dóttir, ALDARSAGA HÁSKÓLA ÍSLANDS 1911–2011. Ritstjóri
Gunnar Karlsson. Háskólaútgáfan. Reykjavík 2011. 864 bls. Myndir,
myndrit, töflur, skrá yfir rektora Háskóla Íslands, myndaskrá, bendi -
skrá, tilvísana- og heimildaskrá og útdráttur á ensku.
Undanfarin ár hefur verið talsverð gróska í útgáfu rita á sviði fræðslusögu.
Nægir hér að nefna doktorsritgerð Erlu Huldu Halldórsdóttur, Nútímans
konur, frá árinu 2011 og ritið Almenningsfræðsla á Íslandi 1880–2007 sem gefið
var út árið 2008 í tilefni af því að hundrað ár voru liðin frá setningu barna -
fræðslulaganna 1907. Bókin sem hér er til umræðu var svo rituð í tilefni af
hundrað ára afmæli Háskóla Íslands.
Höfundar verksins eru þrír, sagnfræðingarnir Guðmundur Hálfdanar -
son prófessor, Sigríður Matthíasdóttir sjálfstætt starfandi fræðimaður og
Magnús Guðmundsson sérfræðingur. Ritstjóri bókarinnar er Gunnar Karls -
son, prófessor emeritus, en hann er jafnframt myndritstjóri. Auk Gunnars
var ritnefnd skipuð einum frá hverju fræðasviði háskólans, að undanskildu
menntavísindasviði sem varð ekki hluti háskólans fyrr en Kennaraháskóli
Íslands sameinaðist Háskóla Íslands árið 2008. Þetta fræðasvið fær litla sem
enga umfjöllun í ritinu. Frá þessu er greint í formála þess og bent á að starf-
semi Kennaraskóla Íslands og síðar Kennaraháskóla Íslands hafi verið gerð
skil á öðrum vettvangi. Þó er vert að geta þess að kennaramenntun fær tals-
verða umfjöllun í bókinni enda var BA-nám við skólann, sem kom til sög-
unnar upp úr 1940, upphaflega ætlað verðandi kennurum. Þá er greint frá
hugmyndum um að færa kennaranám inn í háskólann sem komu fram
þegar á 6. áratugnum (bls. 215–216).
Ritinu er ekki ætlað að vera stofnunarsaga í hefðbundnum skilningi
heldur félagssaga þar sem öllum hliðum háskólastarfsins eru gerð skil.
Alþjóðlegt og félagslegt samhengi skólans er til umfjöllunar, og aðalleik-
endur sögunnar — einkum kennarar og stúdentar — fá talsvert rými í bók-
ritdómar188
Saga vor 2013 NOTA_Saga haust 2004 - NOTA 8.5.2013 12:23 Page 188