Saga - 2013, Side 197
Guðrún Sveinbjarnardóttir, REYKHOLT. ARCHAEOLOGICAL INVES -
TIGATIONS AT A HIGH STATUS FARM IN WESTERN ICELAND.
Aðrir höfundar: Paul C. Buckland, Phil Buckland, Egill Erlendsson,
Garðar Guðmundsson, James Greig, Guðrún Harðardóttir, Gunnar
Bollason, Alfred Heptner, Gordon Hillman, Tom McGovern, Magnús
Á. Sigurgeirsson, Ólafur Eggertsson, Eva Panagiotakopulu, Halldór
Pétursson, Thilo Rehren, Jon Sadler, Ian Simpson, Kim Vickers, Penelope
Walton Rogers, Cynthia Zutter. Ritstjórn: Margrét Hallgríms dóttir,
Anna Lísa Rúnarsdóttir, Bryndís Sverrisdóttir og Anna Guðný Ásgeirs-
dóttir. Rit Þjóðminjasafns Íslands 29. Þjóðminjasafn Íslands og Snorra -
stofa. Reykjavík 2012. 367 bls. Myndir, kort, uppdrættir, teikningar,
töflur, atriðisorða-, staða- og mannanafnaskrá.
Reykholt: Archaeological Investigations at a High Status Farm in Western Iceland
eftir Guðrúnu Sveinbjarnardóttur fjallar um niðurstöður fornleifarannsókna
á bæjarstæði Reykholts sem stóðu með hléum frá 1987 til 2003. Sú bók sem
hér er til umfjöllunar er fyrsti hluti heildarútgáfu á þeim þverfaglegu rann-
sóknum á Reykholtsstað og nágrenni sem staðið hafa síðan á 9. áratug
síðustu aldar.
Bókin um Reykholt hefur annan markhóp en bækurnar Mannvist eftir
Birnu Lárusdóttur og Upp á yfirborðið frá 2011, sem eru bækur um íslenska
fornleifafræði og er fyrst og fremst ætlað að höfða til almennings. Bókin um
Reykholt er hins vegar hugsuð sem framlag til fræðilegrar umræðu og á þar
nokkuð sameiginlegt með sambærilegri útgáfu um uppgröftinn á Hof stöð -
um í Mývatnssveit, Hofstaðir: Excavations of a Viking Age Feasting Hall in
North-Eastern Iceland, sem ritstýrt var af Gavin Lucas og kom út 2009. Sú
staðreynd að verkið er gefið út á ensku (með íslenskum útdrætti í bókarlok)
hefur augljósa kosti hvað varðar tengsl við alþjóðlegar rannsóknir, en það
er engu að síður rétt að ítreka mikilvægi þess fyrir íslenska fornleifafræði að
skapa hefð fyrir umræðu um fagið á íslensku, bæði meðal almennings og
fræðimanna. Nýútkomin bók um Skriðuklaustur eftir Steinunni Kristjáns -
dóttur, sem höfða á jafnt til almennings og fræðimanna, er dæmi um
hvernig fara má að því og vonandi eigum við eftir að sjá fleiri slíkar útgáfur
á næstu árum.
Bókinni er skipt upp í sjö kafla og 14 viðauka. Í viðaukum eru listar yfir
þá gripi sem fundust við uppgröftinn og skýrslur sérfræðinga. Þessari upp-
setningu svipar til uppgraftarskýrslu og kemur eiginlega í veg fyrir að hægt
sé að tengja umfjöllun sérfræðinga við uppgröftinn og niðurstöður hans.
Uppgröftur á bæjarhólnum í Reykholti hófst árið 1987 að frumkvæði
menntamálaráðuneytisins. Unnið var að uppgreftinum 1987–1989, en síðan
varð langt hlé á rannsóknum vegna fjárskorts enda þá orðið ljóst að verk-
efnið yrði bæði flókið og tímafrekt. Frekara fé til rannsókna fékkst ekki fyrr
en árið 1997, en í raun var sá fjárstuðningur ekki í samræmi við það um -
ritdómar 195
Saga vor 2013 NOTA_Saga haust 2004 - NOTA 8.5.2013 12:23 Page 195