Saga - 2018, Síða 145
að viðbættum breytingum samkvæmt lögum nr. 50/1989.68 Með
sameiningu sveitarfélaga fækkaði hreppstjórum og fjárframlag til
þeirra á fjárlögum var skorið niður um helming í fjárlögum 1997 og
stefnir allt í að hreppstjórar hverfi af sjónarsviðinu sem embættis -
menn og fulltrúar sýslumanna.69 Í árslok 2017 er aðeins einn hrepp -
stjóri starfandi á landinu sem embættismaður og fulltrúi sýslu -
manns. Hann er hreppstjóri í Eyja- og Miklaholtshreppi á Snæfells -
nesi.70 Helstu verkefni hreppstjóra varða nú utankjörfundar kosn -
ingar og ýmis mál viðkomandi búfé og fjallskilum.71
Hreppum hefur einnig fækkað til muna og mest á síðustu árum.
Árið 1703 töldust hreppar á Íslandi 163. Fjöldi þeirra náði hámarki
árið 1951, þegar þeir voru 229, en árið 1993 hafði þeim fækkað niður
í 164. Frá 1993 hefur áfram verið unnið að sameiningu sveitarfélaga
og þarafleiðandi fækkar hreppum er þeir leggjast af sem einingar
þegar ný og stærri sveitarfélög verða til. Sveitarfélög eru 74 í lok árs
2017.72
Skjalasöfn hreppstjóra
Skjöl hreppstjóra og hreppsnefnda eru almennt ekki aðgreind í
skrám Þjóðskjalasafns eða héraðsskjalasafna eftir 1875, þegar hrepps -
nefndir tóku til starfa, þó að þá hafi átt að myndast tvö aðskilin
skjalasöfn, sbr. tilskipunina um sveitarstjórnarmál 1872, sem tók
gildi 1875, og reglugerð um hreppstjóra 1880. Skýringin gæti annars
vegar verið sú að hreppstjórum bar að vinna með hreppsnefndinni,
hreppstjórar og skjalasöfn þeirra 143
68 Vef. Lagasafn Alþingis. Lög um breytingu á lögum um hreppstjóra, nr. 32/
1965, nr. 50/1989. http://www.althingi.is/altext/stjt/1989.050.html
69 Dómsmálaráðuneyti. Málasafn 130, fjárlög almennt. Mál nr. 96110320. Bréf um
fjárframlag til hreppstjóra.
70 ÞÍ. Málasafn 7.4. Fyrirlestrar og greinaskrif starfsmanna. Mál nr. 1712002.
Svarpóstur Ólafs k. Ólafssonar, sýslumanns á Vesturlandi, til Sigurðar Sigurðs -
sonar, framkvæmdastjóra sýslumannaráðs, dagsettur 24. nóvember 2017.
Áframsendur til höfundar sama dag.
71 Dómsmálaráðuneyti. Málasafn 10.5. Innlendar og erlendar fyrirspurnir um lög -
gæslu. Tölvupóstur, dagsettur 18.2. 2008, framsendur af Sólveigu Bjarna dóttur,
skjalaverði dómsmálaráðuneytis, frá Ólafi k. Ólafssyni, sýslumanni í Snæ -
fellsnessýslu.
72 Einar Laxness, Íslandssaga I, bls. 210; Vef. Samband íslenskra sveitarfélaga.
http://www.samband.is/sveitarfelogin/upplysingar-um-sveitarfelog/. Skoð -
að 7.12. 2017. Sjá einnig: Sigurður Líndal, ,,Vörn fyrir hreppa og þúsund ára
gamalt stjórnkerfi“, Skírnir 163:1 (1989), bls. 181–196.
Saga vor 2018.qxp_Saga haust 2004 - NOTA 30.4.2018 12:12 Page 143