Sjálfsbjörg - 01.07.1964, Page 9

Sjálfsbjörg - 01.07.1964, Page 9
var lagður bílvegur þangað. Hann var að segja mér frá þessu hóteli, jafnvel þótt hann vissi að mig varðaði ekkert um sport og þaðan af síður hús, sem byggð voru yfir það á fjöllum. — Og næst verður að hlaða skjólgarða, þar sem fólkið rennir sér niður, til að vindurinn næði ekki um það, sagði hann, og þá skildi ég að allt þetta umstang var ekki annað en grín í hans augum. Þetta var á björtum og hlýjum sumardegi að við töluðum um þetta. Ég hafði stanzað nokkra daga og var að reyna að vinna, og vinnan fór mest í kjafthátt þarna í húsinu frammi við sjóinn. Eins og aðrir einförulir menn vissi hann hvað mér leið, og lét móðan mása þótt hann sæi ég heyrði ekki sumt og skildi ekki annað, af því hann vissi að stundum gat mönnum verið nauðsyn að einhverjir töluðu við þá, og allt í einu sagði hann: — Við skulum skoða hjallinn. — Hvaða helvítis hjall. — Þetta skíðahús þeirra. — Er þannig hótel ekki lokað í júlí- mánuði. Ekki hafa þeir snjó. — Nei. Við getum drukkið kaffi. Marg- ir stunda ekki annað sport þar efra. — Eigum við að fara á bílnum. — Ja, ekki förum við á trillunni. — Ég meinti hvort við ættum heldur að ganga. — Séu vegir til einhvers, þá eru þeir til að létta lífið mönnum eins og þér. — Þakka þér fyrir, fjallageit. Og við ókum upp í fjallið. Þetta var ekki lengi farið en nokkuð bratt og dýja- veiturnar voru sinnepsgular í sterkri dags- birtunni og mýrarsundin bleikgræn, og sumsstaðar sáust gamlir skálar með grón- um þökum. Þetta voru skíðaselin, sem skólar og unglingasamtökin í plássinu höfðu reist löngu fyrir stríð, þegar skíða- hótel voru aðeins til í erlendum bókum. Þessi sel voru neðar í hlíðinni en hótelið. Það lágu engir bílvegir þangað og þau voru of Iangt frá f jallsegginni til að hvarfl- aði að mönnum að setja upp skíðalyftur hjá þeim. En þetta voru góð sel að vetr- inum með lykt af olíubornum viði og dauf lampaljós og snjóhröngl inni á miðju gólfi og ungt fólk að leikjum eða sitjandi á rúmstæðunum með fingurna dökka af skíðaáburði. Stundum voru piltur og stúlka send út til að telja stjörnurnar. Og er þau höfðu talið eins margar og þau gátu, sneru þau aftur inn og nefndu ein- hverja óheyrilega háa tölu í sakleysi sínu, og urðu síðan að kyssast eins oft og stjörn- urnar höfðu verið margar á meðan hin hlógu og æptu eins og þau væru að etja saman knattspyrnuliðum. Og þetta við- gekkst sjálfsagt enn þegar snjór var góð- ur í fjöllunum og stjörnurnar tindruðu á frostbláum skammdegishimni er geymdi hina glöðu mannabyggð undir væng sín- um. Við sveigðum inn á malborið stæðið fyrir framan hótelið og þegar við stig- um út næddi svalur vindur um okkur, sem var hressandi eftir lognið niðri í pláss- inu. Grámálaðir járnturnar stóðu í röð upp eftir gróðurlausri urðinni fyrir ofan húsið unz þeir hurfu í hvarfi við melbungu nokkru fyrir neðan sjálfa fjallsbrúnina, sem bar móleita og dálítið fjarlæga við heiðan himinn. Við gengum inn í hótelið. Það voru tveir eða þrír menn í veitinga- salnum. Þeir sátu við gluggana og horfðu niður yfir byggðina og plássið á milli þess þeir sötruðu kaffið, sem hægt var að fá í sjálfsafgreiðslu. Þarna inni var allt snyrtilegt og stúlkan á bak við stóru kaffikönnuna með látúnskrananum, sem lét renna í bollana okkar, var líka snyrtileg og ekki jöskuð í útliti þótt nú væri sunnu- dagur og þær, sem þurftu að vakna snemma, kæmu með laugardagskvöldið og nóttina á andlitinu í vinnuna ef þær þá mættu yfirleitt á þessum sjálfsafgreiðslu- stöðum, sem komnir voru um allt, einnig í plássinu og hér. Kannski hafði hún ekki SJÁLFSBJÖRG 9

x

Sjálfsbjörg

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjálfsbjörg
https://timarit.is/publication/1654

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.