Sjálfsbjörg - 01.07.1964, Side 15
eiam
<5$^
Val«\v Jónasdóttir
er fædd á Siglufirði 21. nóv. 1931. Hún
fékk mænuveikina á fyrsta aldursári. Hún
brautskráðist úr Kennaraskóla Islands
1955 og var síðan tímakennari við Barna-
skólann á Siglufirði og smábarnakennari.
Er gift Gunnari Jóhannssyni, sjómanni, og
á fimm börn.
Valey var ein af stofnendum Sjálfsbjarg-
ar á Siglufirði — fyrsta Sjálfsbjargarfé-
lagsins á landinu — og fyrsti formaður
þess. Hún tók mikinn þátt í félagsstarf-
inu, einkum fyrstu árin, áður en heimili
lagsins voru t. d. haldin á heimili hennar,
hennar stækkaði. Vikuleg vinnukvöld fé-
áður en Sjálfsbjörg eignaðist eigið hús-
næði.
Valey er góður félagi, boðin og búin til
starfa í þágu félagssamtakanna, þegar hún
getur.
Adoll Inginmrsson
er fæddur á Akureyri 19. marz 1914 og
ólst upp í Eyjafirði og á Akureyri. Hann
var skorinn upp 1934 vegna meinsemdar
í kné, sem ekki fékkst bót á, og hefur
gengið með staurfót æ síðan. Síðustu 17
árin hefur hann unnið í Dúkaverksmiðj-
unni á Akureyri og er þar verkstjóri. —
Kvæntur er Adolf Jónu Jónsdóttur frá
Goðdölum í Skagafirði og eiga þau þrjá
syni.
Adolf var einn af stofnendum Sjálfs-
bjargar á Akureyri og gjaldkeri í fyrstu
stjórn félagsins, en hefur síðan ýmist verið
formaður félagsins eða varaformaður, og
er nú formaður þess. Einnig annast hann
umsjón með húsi félagsins, Bjargi.
Adolf hefur átt sæti á öllum landsþing-
um Sjálfsbjargar og löngum átt sæti í sam-
bandsstjórn. Hann hefur sýnt mikinn áhuga
á málefnum samtakanna í heild og reynzt
einkar nýtur starfsmaður félags síns.
SJÁLFSBJÖRG 15