Sjálfsbjörg - 01.07.1964, Page 23
um, ekki sízt hvað snertir bætta mögu-
leika fatlaðra til atvinnu, fórust honum
orð eitthvað á þessa leið: „Hvernig eigum
við að halda þeim árangri, sem náðzt hef-
ur, ef kreppa skellur á? Eiga fatlaðir sam-
borgarar okkar að verða hinir fyrstu, til
þess að bera byrðar atvinnuleysisins?
Slíkt má ekki ske. Fólk verður að gera
sér ljóst, að allir geta orðið fyrir því
hlutskipti að fatlast á einn eða annan hátt,
en fatlað fólk verður skilyrðislaust að hafa
sama þjóðfélagslegan rétt og aðrir borg-
arar.“
Bundvad lagði á það ríka áherzlu að
fatlaðra. Kom þar greinilega fram mikil-
vægi þess fyrir fatlað fólk, að búa í hent-
ugu húsnæði.
Svíar sýndu einnig mjög athyglisverða
kvikmynd og fluttu fyrirlestur um íþróttir
fatlaðra, en þeir eru frumkvöðlar á því
sviði á Norðurlöndum. Ótrúlegt er, hversu
góðum árangri þeir hafa náð í ýmsum
greinum, svo sem sundi og margs konar
knattleikjum.
Eftirtektarverðar voru einnig umræður
um stöðuval fatlaðra, en á því sviði hafa
orðið miklar breytingar á síðari árum.
Kemur þar aðallega tvennt til greina, í
Fró setningu þings VNI.
tryggja þyrfti fötluðum sömu aðstöðu og
öðrum, með tilliti til atvinnumöguleika á
krepputímum.
Þingfundir voru haldnir í verzlunar-
háskóla finnsku samvinnufélaganna í út-
jaðri Helsinki. Þar voru, auk venjulegra
þingstarfa, flutt mörg fróðleg erindi. Má
þar nefna erindi um tryggingamál, endur-
hæfingu og verndaðar vinnustofur, en þar
er átt við vinnustofur þær, sem ætlaðar
eru fötluðu fólki, sem ekki getur stund-
að atvinnu á hinum almenna vinnu-
markaði.
Danir sýndu kvikmynd um húsnæðismál
fyrsta lagi endurhæfing fatlaðra og í öðru
lagi hin mikla vélvæðing og vaxandi tækni,
sem gjörir jafnvel mikið fötluðu fólki
kleift að leysa af hendi starf, sem áður
var útilokað.
I sambandi við þingið var haldin yfir-
litssýning um starfsemi hvers lands fyrir
sig.
Næsta þing verður haldið í Osló árið
1968. Ivar Bruu, formaður norska sam-
bandsins, tekur við formannssæti af Aal-
tonen, en sú regla gildir innan bandalags-
ins, að formannssætið komi í hlut þeirrar
þjóðar, sem á að sjá um næsta þing.
SJÁLFSBIÖRG 23