Sjálfsbjörg - 01.07.1964, Síða 32

Sjálfsbjörg - 01.07.1964, Síða 32
Haraldur Hallsson: SKIPBROT Orðið skipbrot, sem ég ætla að hugleiða, eða réttara sagt hugtakið, er það nær yfir, er öllum gamal kunnugt. Sennilega hefur orðið fyrst orðið til í málinu í fornöld. Þegar hafskipin og iitlu fiskifleyturnar brotnuðu í spón í lendingunni, ýmist í mjúkum, fíngerðum fjörusandinum eða stórgrýttri urð við brimótta strönd í æðis- gegnum hamförum ránardætra, sem leika sér oft að þessum varnarlausu skipum sem köttur að mús, þar til yfir lýkur. Eftir það hafa ótal atburðir og atvik í lífi og starfi kynslóðanna, verið heimfærð undir þetta hugtak og það með réttu. Oftast höfum við heyrt talað um orðið í þeirri merkingu eða í sambandi við mis- heppnaðar athafnir og framkvæmdir ein- staklingsins, áföll hans, heilsubrest, von- brigði og víxlspor í ástamálum og svo framvegis. Ég ætla aðeins að taka eitt þessara framan greindra atriða lítilelga til yfir- vegunar, og sný mér þá strax að efninu, sem á að verða uppistaða þessarar smá- greinar. Sem sagt, þeim hinum miklu hol- skeflum mannlífsins, heilsuleysinu. Heils- an er dýrmætasta eign mannsins, — al- hliða heilbrigði — andlegt og líkamlegt atgerfi. Heilbrigð sál í hraustum líkama er náð- argjöf, sem fólki ber skylda að efla og þroska, varðveita og vernda sem sjáöldur augna sinna. Til þess er manninum gef- inn sjálfsákvörðunarréttur, vit, vilji. En hvernig fara mennirnir með þessar náðar- gjafir drottins. Vissulega í sumum tilfell- 32 SJÁLFSBJÖRG um síður en skyldi. Á meðan að allt leikur í lindi, virðast öll gæði lífsins sjálfssögð. Hverjum degi er látin nægja sín þjáning. Þá er kjörorðið að lifa og leika sér. Þá er ekki tími til að hugleiða alvarlegri hliðar lífsins. En einn góðan dag kannski syrtir skyndilega í lofti, ský dregur fyrir sólu. Fram undan ríkir sólarlaus veröld og mað- urinn innilokast í nokkurs konar hjúp, sem nefna mætti myrkur sólarinnar. Og hon- um finnst hann vera að detta fram af hárri brún í hyldýpis gjá. Það er heilsan sem hefur bilað, fram undan blasa við ýmsir örðugleikar, vonleysi, volæði og eymd. Já, draumaborgir framtíðarinnar hafa hrunið í rúst, það er staðreynd sem er afhjúpuð naprasta veruleika. Einstaklinugrinn hefur verið sviptur lífsgleði, lífshamingju, þrótt- urinn er þrotinn. En eitt eignast hann um leið, hinn dýrmæta gimstein, vonina. Og öðlast jafnframt sterkari trú á Jesú Krist en fyrr. Þá fyrst finnur hver og einn hvað átt hefur, þegar misst hefur. Vissulega er það mikið áfall og þungt fyrir fólk í blóma lífsins að sjá og finna mátt sinn þverra. Hugsjónir og áhugamál komast ekki í framkvæmd. Þau verður að leggja til hlið- ar að sinni og ef til vill fyrir fullt og allt. En þó að svo virðist vera, er þar með ekki sagt, að ekki geti birt um síðir, því að vitanlega er ekki hægt að segja að fram- tíðarstakkurinn sé skorinn á meðan lífið varir, því að framtíðin er hulin oss og við vitum eigi hvað hún ber í skauti sínu. Þetta getur verið tímabilsástand, stund-

x

Sjálfsbjörg

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjálfsbjörg
https://timarit.is/publication/1654

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.