Sjálfsbjörg - 01.07.1964, Page 33

Sjálfsbjörg - 01.07.1964, Page 33
arbið, reynslutími, sem gerir manninn hæf- ari til þess að inna af höndum það köll- unarverk, sem honum er ætlað að vinna hér í þessum heimi. Ungt fólk sem gengið hefur í gegnum líkamlega eða andlega heilsubilun, en orðið heilt aftur á hinu unga blómi, að nokkru leyti, þá er hægt að líkja því við eldskírn. Það er tvennt sem þer að hafa í huga í sambandi við veikindi og heilsuleysi, því það eru tvær hliðar á því máli eins og öllum öðrum. Það má með sanni segja að veikindin séu fyrst og fremst kvöl og þjáning, og það er sú hliðin sem allir verða áþreyfanlega varir við. Hin hliðin er fremur sálræn, skynjun en áþreyfanleg. Það lögmál ríkir í þessum heimi, að ekkert fæst án erfiðis né fyrir- hafnar, og því meir sem menn leggja á sig til þess að ná settu marki, þess dýrmæt- ari verður sigurinn, þegar hann vinnst. Og þá gleðst maðurinn innra með sér af öllu hjarta og færir guði sínum þakkar- gjörð. Þeim guði, sem í hæðum býr, og öllu stjórnar. Síðastliðinn áratug hef ég dvalið að mestu á sjúkrahúsum og heilsuhælum, þar hef ég verið samtíða og kynnzt mjög mörgu fólki, sennilega svo þúsundum skiptir. Þarna hefur að sjálfsögðu verið misjafn sauður í mörgu fé. Þetta fólk var úr öllum stéttum þjóðfélagsins, fólk með mismun- andi viðhorf og sjónarmið til vandamála nútíðar og framtíðar. En þau mál hafa undantekningarlaust verið lögð til hliðar. Áhugamál flest allra, sem hljóta það hlut- skipti, að gista sjúkrahúsin, er sameigin- legt: Baráttan við sjúkdóminn. Það er öllum Ijóst sem þessum málum kynnast, að sjúklingarnir bregðast mis- jafnlega við þeim vanda sem veikindin óhjákvæmilega leggja þeim á herðar. Og árangurinn fer líka eftir því, hvernig sjúkl- ingurinn sjálfur lítur á viðhorf líðandi stundar, hversu vel og mikið hann leggur sig fram í baráttunni. Eftir eigin reynslu, hygg ég að gott sé að dvelja á öllum sjúkrahúsum og heilsuhælum landsins. Þjónusta og hjúkrun er í té látin eins og þörf er fyrir og frekast verður á kosið, jafnvel oft á tíðum meiri og betri en sann- gjarnt er að krefjast, því miður er það ekki alltaf þakkað sem skyldi. Eiginleikar mannanna eru svo ólíkir, og þeir svo mis- gerðir að allri innri sem ytri gerð, að ekki er að undra, þótt þeir bregðist misjafn- lega við þeim erfiðleikum, sem mæta þeim af völdum sjúkdóma og þjáninga. Á með- aðnjótandi skilnings, hlýleika og uppörv- unar. Sú aðstaða samferðafólksins er mjög mikils virði. Á því getur byggzt að miklu leyti hvernig honum tekst að stuðla að endurheimta heilsuna. En aftur á móti er of mikil meðaumkun stór hættuleg, sem skapað getur hugarvíl og minnimáttar- kennd þess, sem sjúkur er.Þetta ber öllu fremur að forðast. Að minni hyggju verða sjúkdómar bezt yfir unnir, hafi maðurinn traust á sjálfum sér og trúi raunverulega á batann. 1 flestum tilfellum verður fólki að trú sinni. Sjúklingarnir ieggja alla jafnan mis- munandi skilning í veikindi sín, og út frá þeim hugsunum verður stundum vart beiskju yfir eigin ástandi og ekki ósjaldan heyrast þær raddir, er nú skulu nefndar: Hvers vegna þurfti ég að verða fyrir þessu? Hvers á ég að gjalda. fremur en Pétur og Páll. Ég hygg að þessi skoðun á málunum og hugsunarháttur sé rangur. Maðurinn verður á hverjum tíma að setja sig inn í aðstæðurnar, sem umhverfið skapar honum hverju sinni. Honum verður að skiljast að þessi veikindi sem á menn eru lögð og þeir ganga í gegnum, eru til þess á einn eða annan hátt að búa ein- staklinginn undir óunnin störf, gera hann hæfari starfsmann til þess að ynna af höndum sómasamlega hvert það starf, sem honum hefur verið ætlað að leysa af hönd- um hér í þessum jarðneska heimi. Það er Framhald á bls. 36. SJÁLFSBJÖRG 33

x

Sjálfsbjörg

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjálfsbjörg
https://timarit.is/publication/1654

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.