Sjálfsbjörg - 01.07.1964, Síða 35

Sjálfsbjörg - 01.07.1964, Síða 35
VIRÐIN GARVERÐ HJÁLPSEMI Frú nokkur hafði verið gift í fjögur ár. Hún var hamingjusöm í hjónabandinu, nema hvað hún þráði að eignast barn, en ekkert benti til, að þess væri von á næst- unni. ,,Þú verður að fara til sérfræðings", sagði maðurinn hennar dag einn, ,,ef til vill getur hann hjálpað þér, þig vantar kannske hormóna eða eitthvað þess hátt- ar“. Frúin fór fúsum vilja til eins bezta sérfræðings bæjarins. „Jæja, hvað gengur nú að yður, kæra frú?“ spurði læknirinn. ,,Ja, sjáið þér til, læknir“, sagði frúin, ,,ég og maðurinn minn, okkur langar til að eignast barn, en það er vist eitthvað ekki í lagi“. „Nújá, ekki í lagi. Hvað eruð þið búin að vera gift lengi?“ „Fjögur ár“. „Fjögur ár og ekkert barn eingnast?" „Nei, því miður“. „Það lítur nú ekki vel út“, sagði lækn- irinn með samúð. „En ég skal nú gera hvað ég get fyrir yður. Viljið þér gera svo vel og afklæða yður“. Frúin roðnaði og leit feimnislega niður fyrir sig um leið og hún smeygði sér úr kjólnum og sagði í hálfum hljóðum: „Mér hefði nú fundizt skemmtilegra, læknir, að eiga fyrsta barnið með manninum mín- um“. Hann (við konu sína, sem var að hnýta upp á sér lausa hárið): Það get ég ekki skilið, hvaða ánægju þú hefur af því að hengja annarra manna hár á höfuðið á þér. Hún: Ójá, smekkur okkar er misjafn. Ég fæ heldur ekki skilið, að þú skulir vilja hafa ull á þínum skrokk af öðrum sauð- kindum. í SPAUGI SJÁLFSBJÖRG 35

x

Sjálfsbjörg

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjálfsbjörg
https://timarit.is/publication/1654

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.