Sjálfsbjörg - 01.07.1964, Side 36

Sjálfsbjörg - 01.07.1964, Side 36
Rdsberg G. Snædal Nokkrar vísur úr skemmtiferð Dagana 2.—3. júlí 1960 fóru Sjálfsbjarg- arfélagar á Akureyri í skemmtiferð aust- ur í Herðubreiðarlindir. Lagt var af stað eftir hádegi á laugardag og ekið sem leið liggur með stuttum viðdvölum til áfanga- staðar, Lindanna, en þangað var komið um 9 leytið að kvöldi. Veður var hið bezta og bjartasta, og glatt yfir hópnum, sem mun hafa talið nál. 40 manns. Fararstjóri var Karl Friðriksson, yfirverkstjóri og brúarsmiður. Um nóttina gistum við í sæluhúsi Ferða- félags Akureyrar, Þorsteinsskála, og átt- um þar öll, að ég held, góða nótt. Margt var sér til gamans gert í þessari ferð, bæði í áfangastöðum og á leiðum, mikið sungið og talsvert ort af vísum. Verða hér til- færðar nokkrar og eru þær undirritaðs, nema annað sé tekið fram. SKIPRBOT Framhald af bls. 33. nauðsyn að temja og þjálfa skap sitt, kunna að lagast aðstæðum hverju sinni. Það veitir jafnvægi, líkamlega og andlega vellíðan. Eitt mesta vandamál allra tíma. Aðkallandi mál, sem hverju sinni krefst að leyst sé á viðunandi hátt. Það er að finna hæfileg störf öllum þeim, sem hlotið hafa það hlutskipti í lífinu, að búa við skerta starfsorku. Það að geta haft eitthvað við sitt hæfi, er hverjum ein- stakling nauðsyn til þess að dvelja tímann og dreyfa hugsuninni frá líðandi stund. En þetta ætti ekki að þurfa að vera eins mikl- um vandkvæðum bundið, eins og reynslan oft hefur viljað sýna oss. Af nógu virðist vera að taka. Verkefnin eru alls staðar, hvert sem litið er. Hvar á vegi, sem menn eru staddir í lífsbaráttunni, eiga þeir sín vandamál við að stríða, á mismunandi hátt að vísu, bæði stór og smá. 36 SJÁLFSBJÖRG Mál sem þarf og verður að hugleiða, hugsa og ræða fyrir opnum tjöldum, eigi lækning að fást. Þegar ég horfi yfir æfiárin frá fyrstu tíð, og þá jafnframt síðastliðinn áratug, það tímabil, þegar heilsan þvarr, og geri samanburð á aldursskeiðunum. Þá verður mér Ijóst, að sízt af öllu vildi ég missa þetta síðastnefnda lífsskeið úr æfibók minni. Þótt þessi ár hafi að sumu leyti verið erfið, þá eiga þau einnig sínar björtu og brosmildu minningar, sem auðgað hafa líf mitt heiðríkju, mildi og hlýju. Vinir og félagar, þrátt fyrir allt. En það er skylda okkar að ganga fram, með heið- ríkju í huga og bros á vörum á leiðinni til sólbjörtu landanna í hinztu för, þeirra landa er sjón okkar eygir ekki að baki móðunnar miklu. Leggjum upp djörf og örugg, þá kallið kemur og við eigum að sigla okkar hinztu för. Yfir móðuna miklu að sólgyltri strönd himins hæða.

x

Sjálfsbjörg

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjálfsbjörg
https://timarit.is/publication/1654

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.