Sjálfsbjörg - 01.07.1964, Qupperneq 40

Sjálfsbjörg - 01.07.1964, Qupperneq 40
Hjálparlyfta fyrir lamaða Samstarf félaganna Multiple Sclerosis Sosiety og Canadian Paraplegic Associa- tion hefur leyst þann vanda að koma frú Marie Hansen, 505 Taylor Street, Saska- toon, út úr húsinu hennar og inn í það aftur. Frú Hansen er haldin dularfullri löm- unarverki, sem nefnist multiple sclerosis. Fyrir 5 árum var hún ötul bóndakona í Saskatoon. Þá tók lamandi veiki, sem læknavísindin átta sig ekki á, að breiðast um neðri hluta líkama hennar. Maður hennar seldi jörð sína, og f jölskyldan flutti til Saskatoon. Þar var unnt að stunda frú Hansen. Innan þriggja ára var hún sett í hjólastól, og henni huguð þar vist til ævi- loka, nema því aðeins að vísindin fyndu allt í einu undursamlega lækningu. Erfiðast er fyrir lamað fólk að kom- ast upp og ofan stiga. Frú Hansen býr á efri hæð í tvíbýlishúsi. Maður hennar hef- ur tvisvar sinnum legið í sjúkrahúsi vegna meiðsla í baki. Síðara skiptið þurfti hann að láta gjöra á sér aðgerð, og varð hon- um því ómögulegt að lyfta konu sinni og stólnum upp og ofan stigaþrepin. Frú Bessie Sweet, formaður Multiple Sclerosis Society í Saskatoon ræddi málið við Don Faygen frá Canadian Paraplegic Association. En hann bar málið undir H. Hiebert, vélameistara í Fort Qu’Appelle. Hiebert lagði hugann í bleyti, og með ráð- um og atbeina Mc Faygen bjó hann til lyftu, sem lætur frú Hansen komast upp og niður frá dyrum sínum, niður í garð- inn og upp aftur. Lyftan er smíðuð úr steypujárni og mjög einföld. Stólnum er hjólað á pall. Þar eru að framan tvær vængjahurðir með ör- yggjum, svo að þær opnist ekki af tilvilj- un. Umhverfis stólinn og sjúklinginn eru stálgrindur. Lyftunni er rennt upp og nið- ur tvennar stálgrindur á stálkaðli, sem gengur frá stórri trissu efst til annarrar minni neðst. Fyrst þegar lyftan var sett upp, þurfti að koma henni á stað með handafli. En Hansen er hugkvæmur eins og flestir bændur og hleypti á rafstraumi frá vél með einum þriðja hestafls. Nú lætur Han- sen lyftuna síga og stíga á 27 sekúndum. Árangurinn af þessari framkvæmd er sá, að frú Hansen kemst út á grasflötina fyrir framan húsið, og fer í ökuferðir miklu oft- ar en áður, meðan svo erfitt var að kom- ast inn og út úr húsinu. Hiebert vélameistari hefur síðan smíð- að aðra lyftu í Saskatchewan, og hyggst leggja fyrir sig í stórum stíl að framleiða slíkar lyftur. Vinnur hann að nýjum upp- drætti. Lyfta frú Hansen kostaði 189 doll- ara, og greiddi Muliple Sclerosis Society fyrir hana. Það mun ekki aðeins vera nægur mark- aður fyrir framleiðslu hans, heldur munu þúsundir lamaðra sjúklinga njóta góðs af. I Canada aðeins eru 2500 multiple sclerosis sjúklingar. Og engan órar fyrir því, hve mörg sjúkdómstilfelli hafa ekki enn leitt til lömunarstigsins. Þessum sjúkdómi er sem sé þannig farið, að menn geta gengið með hann um hríð áður en hann gjörir vart við sig. Á. G. þýddi úr kanadisku blaði. 40 SJÁLFSBJÖRG
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Sjálfsbjörg

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjálfsbjörg
https://timarit.is/publication/1654

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.