Sjálfsbjörg - 01.07.1964, Síða 42

Sjálfsbjörg - 01.07.1964, Síða 42
Snorri Gunnlaugsson: FALINN ELDIIH Einar lítur út um gluggann enn er sama hnðarmuggan. Nú er sveitin öll í eyði undir köldum fannahjúp. sem hylur bæði hraun og núp. Fram til vorsins hreina heiði hugurinn mœlir tímans djúp. Ennþá styttir stuttan daginn, stœkkar skaflinn kringum bæinn. Hann, sem eldinn kynda kunni, konu og barna ástúð fékk, leysti margan leyndan hlekk. Fram að gömlu félhellunni föstum skrefum bóndinn gekk. Er sem blikni innsta þráin, eldurinn er löngu dáinn. Enn þó vetur hœkki hrannir hugurinn á sumarblœ, sálin mörg og friðhelg frœ. Bœtist nú við aðrar annir eldinn sækja á nœsta bœ. Þegar leið á drottins daginn, dundi hríðin yfir bœinn, eins og brimskafl œgilegur yfir hvélfdist lítinn bát. Nú dugði ekki fum né fát. Þegar hverfur varða og vegur, verður að hafa á öllu gát. Einar lagði út í bylinn, ekki verður karlinn skilinn af okkur, sem áldrei reynum átök, sem í gleymsku bar töframáttur tœkninnar. Við erum kannski í ýmsu greinum eftirbátar þsss, sem var. Höggin drap hann þrjú á þilið. Það var bara á einn veg skilið. Einhver hlaut þar úti að vera örþrota i slikum byl, hér sá ekki handaskil. En gott skal hverjum gesti bera, gefa hugans sólaryl. Einar gekk þó ekki í bæinn. Eldinum hann smeygði laginn inn í káldann klakabarminn, kraumar glóð í tegldum bauk, eimyrjan að augum rauk, sem mœndu út í myrkan daginn. Mjallrokan í sporin fauk. Hríðin eykst og harðna tökin, hvergi skjól og fennt er vökin. Skálmar karl með skrefum vænum, skyggnum huga fram á leið. Vetrarmyrkrið magnar seið. Heima í kálda heiðarbænum hljóð og döpur kona beið. 42 SJÁLFSBJÖRG

x

Sjálfsbjörg

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjálfsbjörg
https://timarit.is/publication/1654

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.