Sjálfsbjörg - 01.07.1981, Page 9

Sjálfsbjörg - 01.07.1981, Page 9
atvinnu, húsnæði, tómstunda- starf o.s.frv. Að því ber að stefna með markvissum aðgerðum stjórnvalda, í formi laga- setningar. Að þessu hefur verið unn- ið ötullega á árinu á vegum ALFA-nefndarinnar og er nú tilbúið frumvarp til laga um þjónustu við fatlaða sem ALFA-nefndin vonast til að verði samþykkt á Alþingi á þessu ári. Þar með væri kom- inn grundvöllur til að sam- ræma og skipuleggja upp- byggingu þessara mála yfir landið allt, þar sem leitast yrði við að mæta þörfum hinna fötluðu á þeirra heima- slóðum, eftir því sem unnt er. En framkvæmd iaga er m.a. háð viðhorfunum í sam- félaginu, og félagslegar um- bætur eiga margfalt greiðari leið, ef þær styðjast við vel- vilja almennings. Nokkrum spurningum má varpa fram í þessu sambandi. Er vinnumarkaðurinn t.d. til- búinn að taka við fötluðu fólki í vinnu? Eru skólarn- ir tilbúnir að veita fötluð- um börnum og unglingum kennslu og þjálfun? Eru æskulýðsfélög og klúbbar tilbúin að opna starfsemi sína og veita fötluðum tæki- færi til þátttöku? Því miður er langt í land þangað til jafnrétti verður jafnt í orði og á borði í mál- efnum fatlaðra. Hitt skal jafnframt undir- strikað að á síðustu áratug- um hefur margur áfanginn náðst i jafnréttisbaráttu fatl- aðra, fyrst og fremst fyrir þrotlaust starf og baráttu hagsmunasamtaka fatlaðra sjálfra og styrktarfélaga þeirra. ALFA-nefndin hefur sem sagt leitast við eftir megni að nota árið til að móta framtíðarstefnu í málefnum fatlaðra, sem er byggð á miklu upplýsingamagni frá hagsmunasamtökum fatlaðra, grundvöllur hefur verið lagð- ur — með frumvarpi til laga — sem gerir stjórnvöldum kleift að vinna markvisst að framkvæmdum þessara mála í framtíðinni, og síðast en ekki síst hefur nefndin leit- ast við að beita áhrifum sín- um í því skyni að samfélags- leg viðhorf yrðu jákvæðari. ALFA-nefndir í hinum ýmsu bæjar- og sveitarfélög- um úti um landsbyggðina hafa unnið mikið og gott starf hver á sínum stað. Er ekki vafi að áhrifa þeirra á eftir að gæta um mörg ókom- in ár. Allt starf, sem unnið er í tilefni alþjóðaárs fatlaðra hefur markmið sitt og leiðar- ljós fólgið í einkunnarorðun- um sem eru: Full þátttaka og jafnrétti. SJÁLFSBJÖRG 7

x

Sjálfsbjörg

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjálfsbjörg
https://timarit.is/publication/1654

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.