Sjálfsbjörg - 01.07.1981, Blaðsíða 28
Ályktanir aukaþings
Sjálfsbjargar 1981
Aukaþing Sjálfsbjargar,
landssambands fatlaðra, hald-
ið á alþjóðaári fatlaðra 1981,
lýsir ánægju yfir þeirri sam-
vinnu sem komist hefur á
milli Alþýðusambands Islands
og Sjálfsbjargar, landssam-
bands fatlaðra.
Þingið styður eindregið
þær kröfur um réttindi fatl-
aðra sem samstarfsnefnd
þessara aðila hefur lagt fram,
svohljóðandi:
„Allt fatlað fólk, sem vinn-
ur á vernduðum vinnustöð-
um og almennum vinnumark-
aði, njóti þess ótvíræða laga-
réttar að eiga í raun aðild
að verkalýðsfélögum með
fullum félagsskyldum og fé-
lagsréttindum, svo sem orlofi,
atvinnuleysisbótum, lífeyris-
sjóðum, sjúkrasjóðum, or-
lofsheimilum og öðrum stofn-
unum verkalýðshreyfingar-
innar.
Tryggja verður reksturs-
grundvöll verndaðra vinnu-
staða.
Niðurlagi 51. gr. laga um
almannatryggingar verði
breytt þannig, að öryrkj-
26 SJALFSBJÖfíG