Sjálfsbjörg - 01.07.1981, Side 37
Veðurspá þeirra gömlu
Lokaorð til lesandans:
Viljirðu glæða von og trú,
viljirðu bölið þvinga
með þeim huga mættir þú
minnast Hátýninga.
Þorbjörn Magnússon,
gjaldkeri sjóðsins.
Utanáskrift sjóðsins er:
Ferðasjóður íbúa
Hátúni 12
105 Reykjavik.
Myndagátan
í tímariti
Sjálfsbjargar
1980
Lausn myndagátunnar er:
Of naumt er öryrkjanum
skammtað.
Dregið var úr réttum
lausnum og hlutu þessi vinn-
ing:
Gerður ísberg, Vatnsholti
4, Reykjavík.
Gunnar Hestnes, Stóra-
gerði 22, Reykjavík.
Jóhanna Hjartardóttir,
Fjólugötu 18, Akureyri.
Pálsmessa (25. janúar).
Heiðríkt er og Iriminn klár
á helga Paulus messu,
mun það boða mjög gott ár;
marka’ ég það af þessu.
En ef þokan Óðins kvon
á þeim degi byrgir
fénaðardauða og fellisvon
forsjáll bóndinn syrgir.
Febrúarmánuður:
Febris ef ei færir fjúk
frost né hörku neina,
kuldi sár þá kemur í búk,
karlmenn þetta reyna.
Ef þig fýsir gefa að gætur
gátum fyrri þjóða,
páskafrostið fölna lætur
Februari gróða.
Kyndilmessa (2. febrúar):
Ef í heiði sólin sést
á sjálfri kyndilmessu,
vænta snjóa máttu mest,
maður, upp frá þessu.
Pétursmessa (22. febrúar):
Ef Pétur í feikn og frosti særir,
ferna tíu með sér færir,
vorið víst óvíða nærir,
verða sauðir ei frjóbærir.
Matthíasarmessa (24. febrúar,
25. febrúar í hlaupári = Hlaup-
ársmessa):
Matthias þíðir oftast ís, —
er það greint i versum, -
annars kæla verður vis,
ef vana bregður þessum.
Matthías ef mjúkur er,
máttugt írost þá vorið ver,
vindur, hrið og veðrið hart
verður fram á sumrið bjart.
Jónsmessa (24. júní):
Á Jónsmessu ef viðrar vott,
við því flestir kvíða,
þá mun verða þeygi gott
að þurrka heyin víða.
Þingmaríumessa (2. júlí):
Hvelfi af skýjum höstugt regn
á helgum Mariudegi,
lengi síðan líður megn
loft í votum vegi.
Nema ef áður væta var,
varla skal upp halda,
því dagar og veður dyijast þar,
sem dýr vill guð veraldar.
Marteinsmessa (11. nóvember):
Marteinsmessu merki ég þó
myrkvast nóttin langa,
ef fer þá koma frost með snjó,
frá ég það lengi ganga.
Þá ef hylur þyknið loft,
þíða, en frosið verður oft
veðradimmur verður oft
veturinn frá þeim degi.
Sé þá úti sólskin glatt
og sýnist frostum gegni,
Marteinn segir það merki hratt
meir af frosti’ en regni.
Jól (24. desember):
Iiátíð jóla hygg þú að,
hljóðar svo gamall te.xti,
ársins gróða þýðir það,
ef þá er tungl í vexti.
En ef máninn er þá skerður
önnur fylgir gáta:
árið nýja oftast verður
í harðasta máta.
J.Þ.
Úr Almanaki
Þjóövinafélagsins 1900.
SJÁLFSBJÖRG 35