Sjálfsbjörg - 01.07.1981, Blaðsíða 22
Boð frá Noregi
Það var í september 1980
að hér á landi var staddur
Nils Böe meðstjórnandi í
Norges Handicapforbund
(Landssambandi fatlaðra í
Noregi).
Mér gafst kostur á að hitta
Nils og bar fundum okkar
saman í Sjálfsbjargarhús-
inu.
Þar bauðst hann til að
kanna hvort mögulegt væri
að komast inn í lýðháskóla
í Noregi, þó svo að skólarnir
hefðu hafist fyrir mánuði.
Nils Böe er þekktur fyrir allt
annað en að svæfa þau mál,
sem hann tekur að sér og svo
fór einnig nú.
Viku seinna fékk ég skeyti
til staðfestingar því að ég
væri orðinn nemandi við
Svanvík lýðháskóla og ætti
að mæta þar eftir tvo daga.
Skólinn liggur á landa-
mærum Rússlands og Noregs
og fannst mér það bara gera
för mína til Noregs ennþá
meira spennandi.
Það var tekið mjög vel á
móti mér þegar ég kom til
Svanvíkur, enda Norðmenn
góðir heim að sækja og ekki
spillti það fyrir að vera ís-
lendingur.
í Svanvíkur lýðháskóla eru
fimm höfuðdeildir, félags-
deild, íþróttadeild, tónlistar-
deild, hússtjórnarsvið og að-
fararnám fyrir búnaðarskóla.
Eina af framantöldum deild-
um verður nemandinn að
velja, valdi ég félagssvið.
Lýðháskólar í Noregi eru
byggðir upp með það fyrir
augum að þroska einstakl-
inginn og láta hann njóta
sín eins vel og unnt er, burt
séð frá hvaða menntun fólk
hefur fyrir. Þess vegna var
mjög lærdómsríkt að vera
þátttakandi í svona skóla-
haldi og finna þá ábyrgð, sem
við nemendurnir þurftum
sameiginlega að bera.
1 skólanum líðst engum að
20 SJÁLFSBJÖRG