Sjálfsbjörg - 01.07.1981, Page 30
Síðustu skjól
staklega aðstæður á vinnu-
stöðum á félagssvæðinu með
tilliti til fjölgunar atvinnu-
tækifæra fyrir fatlaða.
Nauðsynlegt er að fatlaðir
eigi kost á starfi á vernduð-
um vinnustað og/eða vemd-
uðum stöðugildum á almenn-
um vinnumarkaði í sinni
heimabyggð.
Þingið lýsir ánægju yfir
lögum frá 22. maí 1981 um
breytingar á lögum vegna
umbóta á opinberum bygg-
ingum í þágu fatlaðra, en
leggur jafnframt þunga
áherslu á að gjörðar verði
breytingar einnig á öðrum
opinberum byggingum, svo
sem stjórnsýslustofnunum,
söfnum og fleiri byggingum
í sama tilgangi.
Aukaþingið leggur áherslu
á samþykktir reglulegs þings
Sjálfsbjargar í trygginga-
málum.
Því til viðbótar samþykkir
þingið eftirtalin atriði:
1. Breyting verði gerð á 12.
gr. laga um almannatrygg-
ingar í þá veru að tekju-
viðmiðun greinarinnar
verði felld niður.
Örorkumat verði fram-
kvæmt af fjölskipaðri
nefnd, sem í væru m.a.
læknir, félagsráðgjafi og
lögfræðingur.
2. Að bensínstyrkur verði
greiddur öllum öryrkjum
sem eru metnir 65% eða
meira án tekjuviðmiðunar.
3. Að ákvörðun um sérskött-
un hjóna verði látin gilda
við greiðslu bóta.
4. Að Tryggingastofnun ríkis-
ins starfræki sjálfstæðar
umboðsskrifstofur utan
Reykjavíkur.
5. Fræðslu- og upplýsinga-
starf T.R. verði stóraukið.
6. Fatlist maður af völdum
slyss eða sjúkdóms verði
leitað allra leiða til að
koma honum í atvinnu —
en málið ekki eingöngu af-
greitt með úrskurðun ör-
orkulífeyris, eins og alltof
algengt er.
Aukaþingið undirstrikar,
að í yfirlýsingu Sameinuðu
þjóðanna um réttindi fatlaðra
segir m.a.:
„Fatlaðir eiga rétt á fjár-
hagslegu og félagslegu ör-
yggi og mannsæmandi lífs-
kjörum. Þeir eiga rétt á, eftir
því sem hæfileikar þeirra
leyfa, að fá atvinnu og halda
henni eða taka þátt í nyt-
samlegu, frjóu og arðgefandi
starfi og að ganga í verka-
lýðsfélag. Fatlaðir eiga kröfu
á að tekið verði tillit til sér-
þarfa þeirra á öllum stigum
fjárhagslegrar og félagslegr-
ar skipulagningar".
Þel manns.
Lítil orð.
Vinátta.
Þegar degi hallar
að vera mettur
af lífi.
H.S.
Pennavinir
Ritstjórn tímarits lands-
sambands fatlaðra í Svíþjóð,
hefur beðið okkur að koma
á framfæri auglýsingu frá
Sri Lanka, þar sem „æsku-
fólk“ á öllum aldri óskar eftir
að skrifast á við Norður-
landabúa.
Þeir sem hafa áhuga,
skrifi til:
Svensk Handikapptidskrift
c/o Björn Arnell
Stora Nygatan 4, Box 2053
103 12 Stockholm 2, Sverige.
Björn mun síðan koma er-
indinu áfram til Sri Lanka.
Sri Lankabúar óska eftir að
bréfaskriftir fari fram á
ensku.
28 SJÁLFSBJÖRG