Sjálfsbjörg - 01.07.1981, Síða 43

Sjálfsbjörg - 01.07.1981, Síða 43
er þessi stefnuyfirlýsing fyrir níunda áratug tuttugustu ald- ar birt. Markmiðum hennar, sem 611 eru jafnmikilvæg og jafnbrýn, verður því aðeins náð að sérhvert þjóðfélag breyti í grundvallaratriðum afstöðu sinni til fötlunar og viðbrögðum sínum við vanda- málum fatlaðra. Markmiðin eru: AÐ hver þjóð hrindi af stað áformum til þess að koma í veg fyrir fötlun á eins mörgum sviðum og hægt er, og til þess að tryggja sér að nauðsynlegar fyrir- byggjandi aðgerðir nái til hverrar fjölskyldu og hverrar manneskju. AÐ tryggja að sérhver fatlaður maður, og sérhver fjölskylda þar sem í er fatlaður maður, fái hvers konar endurhæfingarþjón- ustu og aðra aðstoð og hjálp sem þörf er á til þess að draga úr skerðingar- áhrifum fötlunarinnar og gera hverri manneskju kleift að lifa eðlilegu lífi og taka virkan þátt í sam- félaginu. AÐ gera allar nauðsynleg- ar ráðstafanir til þess að tryggja fötluðum fyllsta jafnrétti og þátttöku á öll- um sviðum félagslífsins. AÐ dreifa vitneskju um fatlað fólk og getu þess, og um fötlun, hvernig kom- ið verði í veg fyrir hana og farið með hana, til þess að auka þekkingu og skiln- ing almennings á þessum vandamálum og mikilvægi þeirra fyrir hvert þjóð- félag. Sérhvert land er hvatt til þess að undirbúa víðtæka heildaráætlun um fram- kvæmd þessara markmiða með hliðsjón af þeim megin- reglum sem settar eru fram í þessari stefnuyfirlýsingu, og af eigin aðstæðum. Áætl- unin ætti að ná til allra meg- inþátta þjóðlífsins og skipa háan sess í öllum fyrirætlun- um um þróun þjóðarinnar; hún ætti að sjá fyrir fullri þátttöku fatlaðra í þvílíkum fyrirætlunum. Það er meginatriði að hvert land hafi innan stjórnarráðs síns skrifstofu eða háttsett- an einstakling, sem beri ábyrgð milliliðalaust gagn- vart þjóðhöfðingja eða ríkis- stjórn, eins og við á, til þess að stjórna undirbúningi heild- aráætlunarinnar og samræma framkvæmd hennar. Þessi skrifstofa eða einstaklingur ætti að njóta aðstoðar ráð- gjafanefndar sem í eru full- trúar allra stjórnardeilda sem máli skipta, samtaka fatlaðra og hópa sjálfboðaliða og sér- fræðinga. Stefnuyfirlýsingin fyrir ní- unda áratug er samróma álit um leiðir til þess að gera mannkyninu fært að vernda og efla réttindi og ábyrgð allra manna, bæði þeirra sem taldir eru fatl- aðir og þeirra sem eru það ekki. Stefnuyfirlýsingin hefur verið samþykkt af Alþjóða endurhæfingarráðinu eftir að um hana var fjallað á 14. Heimsþinginu í Winnipeg, Manitoba, Canada, þann 26. júní 1980, og er birt heimin- um sem mikilvægt framlag til Alþjóðaárs fatlaðra. Framkvæmdastjóri Alþjóða- endurhæfingarsambandsins, Norman Acton, dvaldi hér á landi dagana 16.—19. sept. s.l. í boði Öryrkjabandalags íslands. Við þetta tækifæri afhenti hann forseta ís- lands, Vigdísi Finnbogadótt- ur, þessa stefnuyfirlýsingu sambandsins fyrir níunda áratuginn, sem unnin var í tilefni alþjóðaárs fatlaðra. SJÁLFSfíJÖRG 41

x

Sjálfsbjörg

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjálfsbjörg
https://timarit.is/publication/1654

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.