Sjálfsbjörg - 01.07.1988, Blaðsíða 7

Sjálfsbjörg - 01.07.1988, Blaðsíða 7
Viðtal Þórdís og Richard með afastráknum Davíð Smára. mér svo bréf frá stjórn kaupfé- lagsins þar sem sagði að ég þyrfti ekki að mæta aftur til vinnu. Kominn með töluu, en... Árið 1960 byrjaði ég að vinna á Skattstofunni og var þar í 12 ár. Þegar ég byrjaði var Skatt- stofan í kjallara en flutti svo upp á 3. hæð í lyftulausu húsi. Þá naut ég aðstoðar Reynis Mássonar frænda míns og starfsmanna hans en Reynir var verslunarstjóri í fyrirtæki skammt frá Skattstofunni. Ég kom við þar á leiðinni í vinnu og þeir trilluðu mér upp þessar rúmlega 40 tröppur sem ég þurfti að fara til að komast í vinnuna. Svona gekk þetta til í allmörg ár. Meðfram vinnunni á Skatt- stofunni tók ég að mér að ger- ast umboðsmaður fyrir trygg- ingafélög. Fyrst hafði ég umboð fyrir Vátryggingafé- lagið en það fór á hausinn. Þá tók ég að mér umboð fyrir Almennar tryggingar og gegni því enn. Árið 1972 þurfti ég að liggja á spítala á annan mánuð og að þeirri dvöl lokinni ákvað ég að fara ekki aftur á Skatt- stofuna heldur helga mig umboðinu fyrir Almennar tryggingar. Síðan hef ég sinnt því hér heim og haft mikið að gera. Félagið á verulega hlut- deild í tryggingum hér í Eyjum og ég á hér marga góða og trausta viðskiptavini. Ekki alls fyrir löngu lét félagið mig fá tölvu til umráða svo ég er í beinu sambandi við móðurtölvuna í Reykjavík. Ég er nú ekki alveg orðinn sáttur við hana ennþá en það hlýtur að koma.“ Upp á lond... Þau Þórdís og Richard hafa lagt fram sinn skerf til fjölg- unar mannkynsins. Árið 1958 eignuðust þau Hlyn og sex árum síðar fæddist Þorgeir sem býr hjá þeim. Hlynur býr í eigin íbúð Eyjum og er búinn að gera þau að afa og ömmu. „Það er mikil lukka að hafa svona grallaraspóa hjá sér,“ segir Richard um afastrákinn og stoltið leynir sér ekki. Þórdís starfar nú sem matráðs- kona í athvarfi sem rekið er í grunnskólanum. En því er nú þannig varið að þegar viðtal er tekið við fólk sem búið hefur lengi í Vest- mannaeyjum kemur fyrr eða síðar að spurningunni: Hvað varð um þig í gosinu? Og vitan- lega er þá átt við eldgosið á Heimaey sem hófst í janúar 1973. “Þetta hafði verið kyrrlátt kvöld og Þórdís, sem hafði verið í afmælisveislu, var nýsofnuð þegar við vorum vakin og sagt að það væri farið að gjósa. Við urðum ekki mjög bangin, okkur fannst það fjar- stæðukennt að eldur ógnaði bænum. Við litum út um glugg- ann og sáum eldhafið í austri, vöktum síðan drengina og fórum út. Þá blasti við okkur eldurinn og í loftinu var sífelldur hvinur. Við fórum í bát eins og aðrir og sátum þar eins og illa gerðir hlutir á leið- inni til Þorlákshafnar. I Þorlákshöfn var vel tekið á móti okkur og systir mín og mágur fóru með okkur til Hafnarfjarðar þar sem þau bjuggu. Við fengum svo að láni íbúð við Miklubraut sem Ólafur Árnason hjá Al- mennum tryggingum átti. Þar vorum við í nokkra mánuði eða þangað til íbúðin var seld. Þaðan fórum við í Sæviðar- sund, í frekar óhentuga íbúð og vorum þar fram á árið 1974. Loks lentum við í Viðlaga- sjóðshúsi í Garðabæ og það var leiðinlegasti hluti landvistar- innar. Hverfið sem húsið var í var að byggjast upp á þessum tíma, allt sundurgrafið, ekkert SJÁLFSBJÖRG 5
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Sjálfsbjörg

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjálfsbjörg
https://timarit.is/publication/1654

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.