Sjálfsbjörg - 01.07.1988, Side 27
Útgáfa
Bæklingar um
atvinnumál fatlaðra
Félagsmálaráðuneytið hefur
gefið út tvo bæklinga um
atvinnumál fatlaðra. Bera þeir
heitin Við viljum vinna og Út
að vinna. Þá hefur ráðuneytið
einnig látið gera myndband um
sambýli fatlaðra á íslandi.
Bæklingurinn Út að vinna er
ætlaður fötluðum sem velta því
fyrir sér að fara út á vinnu-
markaðinn. í honum eru upp-
lýsingar um það hvernig fatl-
aðir skuli snúa sér í atvinnuleit,
um réttindi þeirra og skyldur,
laun og bætur, Ferðaþjónustu
fatlaðra, öryrkjavinnu og
verndaða vinnustaði. Loks eru
í bæklingnum nokkur heimilis-
föng hjá stofnunum og samtök
sem geta orðið fötluðum að liði
í atvinnuleitinni.
Bæklingurinn Við viljum
vinna ber undirtitilinn: Góð
ráð til þeirra sem hafa manna-
forráð. Hann er því ætlaður
stjórnendum fyrirtækja. Eins
og í hinum bæklingnum hefur
þessi að geyma upplýsingar um
það hvernig stjórnendur eiga
að snúa sér í því að ráða fatlaða
til starfa sem þeim henta. Einnig
eru ýmsar ábendingar, td. um
það hvernig hægt er að sækja
um styrki frá hinu opinbera til
að gera breytingar á tækjum
eða húsum svo þau henti
fötluðum.
Myndbandið sem áður er
nefnt lýsir sambýli fatlaðra í
Víðihlíð, Reykjavík, Hafnar-
firði, á Akureyri og Selfossi.
Sýndar eru svipmyndir úr lífi
íbúanna og sagt frá þeirri
aðstöðu sem boðið er upp á.
Það var fyrirtækið Sýn hf. sem
gerði myndbandið en félags-
málaráðunytið, nánar tiltekið
deild málefna fatlaðra, annast
útlánþess. Síminner91-25000.
Útgáfuefni um húsnæðis-
og vistunarmál
Sjálfsbjörg, landssamband
fatlaðra hefur á undanförnum
mánuðum átt þátt í útgáfu
tveggja bæklinga um húsnæðis-
mál.
Annar bæklingurinn nefnist
Ný viðhorf og fjallar hann um
námsstefnu sem haldin var í
fyrrahaust á vegum vinnu- og
dvalarheimilisins að Hátúni 12
- Sjálfsbjargarhússins. Birt eru
erindi sem Theodór A.
Jónsson, Margrét Margeirs-
dóttir og Guðrún Ögmunds-
dóttir fluttu um hlutverk og
starfsemi Sjálfsbjargarhússins
og annarra stofnana fyrir fatl-
aða. Það var landssambandið
sem gaf þennan bækling út.
Hinn bæklingurinn kom út á
vegum átta almannasamtaka
sem hafa stofnað með sér sam-
ráðshóp um húsnæðismál.
Samtök þessi eru auk Sjálfs-
bjargar: Öryrkjabandalag
íslands, Landssamtökin
Þroskahjálp, Stúdentaráð
Háskóla íslands, Bandalag
íslenskra sérskólanema, Sam-
tök aldraðra, Búseti - lands-
samband húsnæðissamvinnu-
félaga og Leigjendasamtökin.
Bæklingurinn ber heitið Þak
yfir höfuðið og dregur nafn sitt
af yfirskrift ráðstefnu sem hóp-
urinn efndi til í fyrrahaust en
þar var fjallað um félagslegar
íbúðabyggingar. Það sem fram
kom á þeirri ráðstefnu er stofn-
inn í bæklingnum, td. er þar að
finna drög að frumvarpi til laga
um nýskipan félagslega íbúða-
bygginga á íslandi sem hópur-
inn hefur samið.
Báða þessa bæklinga má
nálgast með því að snúa sér til
skrifstofu Sjálfsbjargar, lands-
sambands fatlaðra, Hátúni 12,
Reykjavík. Síminn er 91-
29133.
SJÁLFSBJÖRG 25