Sjálfsbjörg - 01.07.1988, Blaðsíða 51

Sjálfsbjörg - 01.07.1988, Blaðsíða 51
Félagsmál Hátíð í Holstebro Holstebro er jóskur bær sem lét ekki mikið yfir sér fyrr en seint á sjöunda áratugnum. Þá bar það við að ný bæjarstjórn tók við völdum, réði nýjan bæjarstjóra og endurskipu- lagði í samráði við hann allt ytra og innra útlit bæjarins. íbúarnir, sem þá voru um 55.000 sáu bæ sinn gjörbreytast á örskömmum tíma. Gatna- kerfi miðbæjarins stóð á gömlum merg og götur voru þröngar og krókóttar en urðu brátt að hellulögðum göngu- götum og stígum með gróður- skreytingum og útikaffihúsum. Nýir hjólreiða- og göngustígar voru lagðir svo komast mætti leiðar sinnar um bæinn þveran og endilangan á auðveldan og hættulítinn hátt. Leikhús- og tónlistarlíf blómstraði og ekki var óalgengt að einu sýn- ingar þekktra, erlendra lista- manna í Danmörku væru ein- mitt í Holstebro. Sjálftnafnið á bænum á að sögn rætur í fornu máli og þýðir staðurinn á hólnum við þrúna og víst er um það að bærinn stendur á hól við sjálfa Stórána og brúin er yfir besta vaðið. Miklar leifar frá steinöld hafa fundist á þessu svæði og bera þær vitni um bú- skaparlag og háttu þess tíma. Holstebro er þó enginn stein- aldarbær heldur iðandi af lífi og fjöri og þar er fundið upp á nýjungum sem enginn hefur heyrt um fyrr. Æskulýðs- samtök fatlaðra í Danmörku héldu námskeið í Holstebro síðastliðið sumar og nefndu námskeiðið ekki óvirðulegra nafni en „Asnastu núna asninn þinn“. Þetta er að vísu lausleg þýðing. Námskeiðið var haldi á Lýðháskólanum í Holstebro og þátttakendur voru bæði fatl- aðir og ófatlaðir. Þeir störfuðu í tónlistarhóp, leiklistarhóp og búningahóp svo eitthvað sé nefnt og áttu að sögn dýrlega daga og langar vökunætur við undirbúning sýninga og margs- konar prakkaraskaps. Námskeiðið stóð í 13 daga og einn þátttakenda lýsir skemmtilega starfi og leik þennan tíma í septemberút- gáfu blaðs fatlaðra í Dan- mörku. Setið var við sauma- vélar til morguns, saumuð hjólastóladýr og stultubuxur og hattadömur bjuggu til nýstárlega hatta á karla jafnt sem konur. Einn daginn var farið í litríka og fjölbreytilega skrúðgöngu eftir göngu- götunum. Stundum týndust heilu saumavélarnar og karl- leikarar litu út eins og stroku- hermenn frá Prússlandi þegar þeir voru búnir að setja upp nýsaumaða og pressaða hatt- ana. Ekki má heldur gleyma gipsgrímum af ýmsu tagi. Viku eftir að námskeiðinu lauk setti einn þátttakenda niður á blað hugleiðingu um námskeiðið og spurði sig þá m. a. að því hvað væri fötlun og komst að þeirri niðurstöðu að hún gæti ekki gert sér grein fyrir hverjir voru fatlaðir og hverjir ófatlaðir á námskeið- inu. Hún mundi hins vegar vel eftir hverjum henni fannst gaman að starfa með og hverjum ekki. Ein af starfs- stúlkum skólans sagði henni að þau hefðu álitið þetta vera námskeið fyrir fatlaða en reyndin orðið sú að þetta var leik- og tónlistarnámskeið eins og öll önnur námskeið skólans. - Gaman gæti verið að efna til svipaðs námskeiðs hér á landi. SJÁLFSBJÖRG 49
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Sjálfsbjörg

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjálfsbjörg
https://timarit.is/publication/1654

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.