Sjálfsbjörg - 01.07.1988, Page 46
Ferlimál
niður undir Hljóðakletta enda
þótt þú hafir komist það eftir
sæmilegum slóðum áður en við
ákváðum hvert fatlaðir ættu að
komast. Stígarnir að þessum
stöðum eiga bara að vera
göngugötur og það helst
þröngar. Hólmatungur. Nei,
heyrðu mig nú. Það er ekki
fyrir þig að hugsa um þær. Það
var nú bara þegar bændurnir í
Kelduhverfi höfðu eitthvað um
þær að segj a að þú og þínir líkir
gátu séð lækinn þar, alla foss-
ana og þetta sérstæða gróður-
samfélag. Menn verða sko að
hafa töluvert fyrir því að fá að
sjá þannig staði. Þú kemst
efinþá niður í Vesturdal og
hann er líka fallegur."
Ég er í þeim hópi sem er ekki
gangandi og hef verið það í 33
ár. Það er að vísu erfitt að
dæma í eigin málum en mér
finnst að hér hafi verið á mér og
mínum brotið. Mér finnst sárt
og ósanngjarnt að við skulum
ekki lengur fá að sjá þær perlur
íslenskrar náttúru sem „al-
menningi" eru sýndar og til
þess að gera auðvelt að sýna
okkur líka ef vilji Nátt-
úruverndarráðs og starfs-
manna þess væri fyrir hendi.
Það er nauðsynlegt að
vernda fallega staði og skipu-
leggja umferð um þá og sjálf-
sagt að banna akstur utan vega
og slóða á slíkum svæðum. Én
ég tel að óþarfar hindranir séu
lagðar á braut okkar með því
að loka fyrir létta rólega
bílaumferð á þegar lögðum
vegum og stígum. Þá finnst
mér að það þurfi ekki að spilla
náttúru landsins neitt að ráði
þótt gangandi þjóðgarðs-
gestum yrði beint í ríkara mæli
á það breiða göngustíga að
léttir bílar kæmust um þá á
hægri ferð. í nágrannalöndum
okkar er fötluðum leyft að aka
sums staðar þar sem velgang-
andi er bannað að aka. Sjálf-
sagður hlutur. Á Akureyri er
fötluðum leyft að aka um
göngugötuna enda finnur
maður sig velkominn þar.
Á síðasta þingi Sjálfsbjargar
var m.a. rætt og ályktað um
aðgengi fatlaðra að þjóð-
görðum og friðlýstum svæðum.
Var samtökum okkar falið að
leita úrbóta í þeim efnum. Ég
vil trúa því að Náttúruverndar-
ráð og aðrir, sem með þetta
hafa að gera, taki málaleitan
okkar manna vel og finni þær
lausnir á hverjum stað sem
öllum er sómi að. Sanngjarnar
og góðar reglur kalla fram já-
kvætt hugarfar og ánægjuleg
samskipti.
Stiginn sem breytist í lyftu,
eða lyftan sem verður að stiga
Við rákumst á þessa hugmynd í sænsku
blaði. Þetta er ákjósanleg lausn þar sem
ekki er um mikinn hæðarmismun að ræða
og takmarkað húsrými.
Á myndinni til vinstri sést stiginn eins og
hann er venjulega, en til hægri hafa tröpp-
urnar verið jafnaðar út með stýribúnaði
sem jafnframt lyftir stiganum upp og niður
eftir þörfum. í þessu tilviki er um að ræða
rúmlega hálfs meters hæðarmismun, lyftan
ber 500 kíló og rúmar hæglega hjólastól.
44 SJÁLFSBJÖRG