Sjálfsbjörg - 01.07.1988, Side 44
Lögreglan er greinilega lítt hrifin af
heimsóknum fatlaðra...
Þegar hér var komið sögu,
þurfti arkitektinn ekki nema
smá hugkvæmni til viðbótar til
að gera sér grein fyrir, að þessi
fjögur herbergi voru eiginlega
engin fatlaðraherbergi lengur,
heldur ósköp venjuleg gesta-
herbergi með mjög þægilegum
baðherbergjum, sem enginn
gestur hefur enn séð ástæðu til
að amast við. Og þar sem unnt
var að komast hjá hækkunum á
heildarkostnaði vegna þessa
með snjöllu fyrirkomulagi,
ákvað hann að hanna öll her-
bergin eins. Við hjá ráðgjafar-
stöðinni höfðum það á tilfinn-
ingunni, að maðurinn væri
kominn á rétta braut, væri
aftur farinn að beita arkitekts-
hugkvæmni sinni, þróa eigin
hugmyndir og hafa aftur
ánægju af starfi sínu. Og ekki
er Ioku fyrir það skotið, að sá
góði maður muni við næsta
tækifæri beita árangri þessarar
andlegu og arkitektslegu
kúvendingar sinnar við hönnun
íbúðarhúsnæðis einnig.
Prjár meginreglur
Grundvallaratriðið við bygg-
ingu íbúðarhúsnæðis er mjög
einfalt. Sérhver íbúð, sem er
hönnuð með þeim hætti, að
mikill meirihluti fatlaðra getur
Svona er aðgengið að Félagsmála-
stofnun Reykjavíkurborgar.
komist inn um íbúðardyrnar og
gert þar inni allt, sem ófatlaðir
þurfa einnig að gera, er íbúð,
sem hentar fötluðum, eða
nánar tiltekið „aðlaganleg“
íbúð. Hvað er nú átt við með
því?
Arkitektinn þarf við hönnun
íbúðarinnar að gæta að þremur
einföldum grundvallarreglum:
1. Aðkoma í lóðréttu plani
(hæðarplani) þarf að vera
þreplaus.
2. Aðkoma í láréttu plani þarf
að vera nógu breið (dyr,
gangur).
3. Hreinlætistæki þeirra þurfa
að vera nothæf fyrir fatlaða.
...og þeir eru heldur ekki velkomnir í
Þjóðleikhúsið.
Ef þessum þremur skil-
yrðum er fullnægt, geta flestir
fatlaðir annast vandræðalaust
allt það, sem fylgir eðlilegu
heimilishaldi, og einstaklings-
bundinni aðlögun fyrir sér-
staka fötlun er unnt að koma
við hvenær sem er án óhæfilegs
kostnaðar. Slík „aðlaganleg“
íbúð verður ekki dýrari fyrir
það, sé hún hönnuð með hlið-
sjón af fyrirliggjandi gögnum
og af svolítilli hugkvæmni. Þess
vegna má eins leigja hana
ófötluðum sem ósköp venju-
lega íbúð.
Við viljum skora á alla arki-
tekta, byggingaraðila og þá
sem um byggingarmál fjalla hjá
yfirvöldum, að líta ekki á
þessar fáu grundvallarreglur
sem hindranir, heldur sem
hvatningu. Eins og sérhver
arkitekt hyggur að fyrirmælum
í byggingarreglugerð eða lög-
málum burðarþolsfræði, eins
eðlilegt ætti að vera, að hann
myndi eftir fötluðum, áður en
bygging mannvirkja er hafin.
Komi upp vafaatriði eða vanda-
mál við hönnun, er hjálpar
áleiðis að vænta með símtali
við ráðgjafarstöðina eða við
einhverja af svæðisstöðvum
ráðgjafar- og upplýsingaþjón-
ustunnar.
42 SJÁLFSBJÖRG