Sjálfsbjörg - 01.07.1988, Síða 40

Sjálfsbjörg - 01.07.1988, Síða 40
Tölvumál d) skrá upplýsingar um ráð- stefnur og námskeið á þessu sviði. í dag eru til ýmis hjálpartæki sem byggja á nýtækni og létt geta fötluðu fólki tilveruna. Tölvan getur lesið texta og skilað honum frá sér með „gervitali“. Því miður er þessi búnaður ekki ennþá til fyrir íslenskt mál, en unnið er að gerð íslensks „talgervils“ og mun hann verða mikil búbót fyrir blinda og sjónskerta. Fyrir blinda eru einnig á markaði blindraletursskjáir (BRAILLE), en þeir gera- blindum, sem kunna blindra- letur, kleift að nýta sér kosti tölvutækninnar. Einnig er hægt að fá prentara sem prenta blindraletur. Nú er á boðstólum ýmiss hug- og vélbúnaður til að stækka texta á tölvuskj á þannig að sjónskertir geta nýtt sér tölvutæknina einnig má hér nefna lestrar-skjái fyrir sjón- skerta, en með þeim má stækka upp letrið þannig að sjón- skertir geti lesið það. Einföld tölva með „mótaldi“ getur hjálpað þeim heyrnar- lausu, og þeim sem á erfitt um mál, að hafa samskipti við umheiminn, bæði gegnum síma og svo beint við viðmæl- anda gegnum að skrifa á skjá- inn eða prentara. Hér á landi eru í notkun svokallaðir „TEXTA-símar“, en með þeim geta heyrnarlausir haft samskipti sín á milli eða við heyrandi. Fyrir þroskahefta er til ýmis vél- og hugbúnaður til að auð- velda þeim samskipti við tölvur og rétt er hér að nefna að unnið er að gerð táknmáls-hugbún- aðar (BLISS-máls) hér á landi og eru miklar vonir bundnar við þennan búnað. Hjólastólar í dag byggja þónokkuð á tölvutækni og gerir það mikið fötluðum oft kost á að hreyfa sig um og kom- ast í samband við umheiminn, einnig má fá búnað á stólana svo hægt er að stjórna tölvu beint með stjórntækjum stólsins. Að lokum er rétt að minnast á að mikið er til af mismunandi rofum til að auðvelda fötluðum að nýta sér tölvur og tölvustýrð hjálpartæki. A vegum Norrænu nefndar- innar um málefni fatlaðra er unnið að ýmsum verkefnum tengdum tölvum og fötlun og vil ég hér nefna styrkveitingar til ýmissa verkefna og upp- byggingu gagnabanka yfir hug- búnað, sem nýtist fötluðum og er í notkun á Norðurlöndum. Tölvumiðstöð fatlaðra er ljúft og skylt að veita aðstoð við fatlaða, aðstandendur þeirra, stofnanir og aðra um val á hentugum búnaði, mögu- leikum á lánum eða styrkjum til kaupanna auk annarrar fyrirgreiðslu. í haust mun Tölvumiðstöðin standa fyrir námskeiðum fyrir aðstandur fatlaðra, sem hafa tölvur til umráða, í notkun búnaðarins. Fyrsta námskeiðið verður seinni hlutann í sept- ember og er það grunnnám- skeið í notkun BBC-tölva. Námskeiðið er haldið í sam- vinnu við Japís og verða þátt- takendur um átta talsins. Inn- ritun er hafin hjá Tölvumið- stöðinni. Til að hægt sé að meta þörfina á slíkum námskeiðum, þá þurfum við að heyra frá ykkur sem fyrst. Miðstöðin er nú til húsa hjá Hjálpartækjabankanum í nýbyggingu við Sjálfsbjargar- húsið, Hátúni 12, 105 Reykja- vík og síminn er 689494. Allir þurfa þak yfir höfuðið Sjálfsbjörg, landssamband fatl- aðra vill að ALLIR geti sjálfir ráðið því hvar og í hverskonar húsnæði þeir búa. Húsnæði þarf að vera þannig úr garði gert að fólk geti búið í því frá vöggu til grafar, þó svo að það fatlist ein- hverntíma á lífsleiðinni. Jafnt fatlaðir sem ófatlaðir eiga heima í almennum íbúða- hverfum. öll höfum við ein- hverjar sérþarfir sem ber að uppfylla. Því verður að gera þá kröfu til þjóðfélagsins að það þjóni hagsmunum allra þegna sinna. Endurhæfing fatlaðra og koma þeirra til arðbærrar vinnu og lífs er oft bundin því að geta snúið til baka til þjóðfélags sem hægt er að komast um án hindr- ana. Þeir kostir, sem boðið er upp á í húsnæðismálum, verða að ýta undir sjálfstætt líf hins fatlaða einstaklings. Jafnframt verður að tryggja, að nauðsynleg þjón- usta sé veitt. Kjarni stefnu Sjálfsbjargar, landssambands fatlaðra i þessum málaflokki felst í hug- takinu „blöndun". Með blöndun er átt við að fatlaðir eigi heima innan um ófatlaða. til þess að þetta megi takast verður að upp- fyila ákveðnar kröfur: • húsnæði verður að vera aðgengilegt • skipulag þarf að vera í lagi • grundvallarþjónusta þarf að vera fyrir hendi • sjálfsákvörðunarréttur ein- staklingsins verður að sitja í fyrirrúmi. Úr stefnuskrá Sjálfsbjargar 38 SJÁLFSBJÖRG

x

Sjálfsbjörg

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjálfsbjörg
https://timarit.is/publication/1654

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.