Sjálfsbjörg - 01.07.1988, Síða 52

Sjálfsbjörg - 01.07.1988, Síða 52
Atvinnumál Magnús (t.h.) og Einar Einarsson verkstjóri við nýju vélina sem mótar plastbakka. Ný vinnustofa í Reykjavík Við Dvergshöfða 27 er nú verið að setja á stofn vinnu- stofu á vegum Sjálfsbjargar í Reykjavík. Framkvæmda- stjóri hefur verið ráðinn og heitir hann Magrtús Hall- dórsson, 41 árs reykvík- ingur. Útsendari Sjálfs- bjargar ræddi við Magnús í sumar um reksturinn sem er í þann veginn að hefjast. “ Við erum að fá vél frá Ítalíu sem framleiðir plastöskjur, td. utan um smjör, óg bakka undir egg, hamborgara o.þ.h. Við fáum efnið í umbúðirnar til- búið á filmu og vélin mótar þær. Hún prentar ekki á þær en næsta skrefið yrði einmitt að kaupa ódýra prentvél. Síðan þyrfti að fá búnað til að fram- leiða filmuna því með núver- andi fyrirkomulagi nýtist hún ekki nándar nærri nógu vel. Þetta er stærsta fjárfestingin en vélin kostar um 11 miljónir með mótunum. Auk þess erum við komin með vélar fyrir svo- nefndar skinn- og blister- pakkningar. Þær þekkir fólk td. utan um skrúfur og smá- hluti ýmiss konar. A tveimur vinnustofum fatlaðra er unnið við slíkar pakkningar og því höfum við haldið að okkur höndunum. Við höfum hins vegar fengið verkefni og ætlum að hefjast handa með haustinu við að pakka inn brauði í sjálf- sala fyrir Rauða krossinn." - Hvernig hefur gengið aðfjár- magna þessi vélakaup? “Það hefur nú gengið á ýmsu í þeim efnum. A þessu ári sóttum við um 9 miljónir úr Framkvæmdasjóði fatlaðra en fengum 3. Það setti okkur í verulegan bobba því við vorum búin að skuldbinda okkur gagnvart framleiðendum vélar- innar. Það er búið að setja hlut Reykjavíkurfélagsins í Hátúni 12 að veði fyrir henni og nú vitum við ekki hversu lengi við verðum að greiða skuldina. Við höfum farið á fund fjár- málaráðherra, aðstoðarmanns hans og fjárveitingarnefndar og beðið um aukafjárveitingu en um það er ekki að ræða á 50 SJÁLFSBJÖRG

x

Sjálfsbjörg

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjálfsbjörg
https://timarit.is/publication/1654

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.