Sjálfsbjörg - 01.07.1988, Side 18

Sjálfsbjörg - 01.07.1988, Side 18
Viðtal_________________ Eg hef alltaf verið trúaður, en varð trúaðri við þessa reynslu, þessa opinberun“. Nei, honn smitor ekki - Hver eru áhugamálþín? “Þau eru mörg. Ég hef mik- inn áhuga á útiveru, þótt ég stundi ekki íþróttaiðkanir lengur, nema þá helst sund. Það er eðlilegt að áherslan breytist aðeins við breyttar aðstæður. Ég hef áhuga á heimspeki og trúarbrögðum og legg mikið upp úr mannlegum samskiptum, fer t.d. mikið í heimsóknir.“ “Já, það er sko óhætt að segja,“ skýtur Rut inní sam- ræðurnar, „Stefán finnur sér alls konar fólk til þess að heimsækja. Hann heldur, að hann geti komist yfir að eiga allan heiminn að kunningjum og vinum.“ Stefán hlær við og hreyfir engum mótmælum. Talið berst nú að viðhorfum gagnvart fötluðum og fram- komu fólks við þá. „Það er hreint ótrúlegt stundum að sjá viðbrögð fólks gagnvart Stef- áni,“ dettur út úr Rut. „Því finnst blátt áfram ósanngjarnt, að svona myndarlegur ungur maður sé í hjólastól. Eins og útlitið ætti að skipta máli.“ Það fer í taugarnar á mér, hvað fólk getur stundum glápt á hann. Það bókstaflega gónir. Þá horfi ég skarpt á móti. Svo hefur oft komið fyrir, að fólk tali við mig um hann. Þá segi ég: „Þú getur alveg talað við hann sjálf, hann er ekki með smitandi sjúkdóm." Ég er ekk- ert að hlífa fólki við að verða eins og aumingjar, það er sjálft að skapa sér þetta.“ Hún uorð kjoftstopp - En er einhver munur á við- brögðum fólks, eftir því hvort fatlaður maður er í hjólastól eða á hækjum? Stefán segist ekki merkja mun á því. Rut er annarrar skoðunar. Hún tekur dæmi af einni vinkonu sinni, sem hitti Stefán heima hjá henni, meðan hann sat enn í hjólastól. „Hún varð kjaftstopp, höfuðið sneri hreinlega aftur. Svo kom það oft fyrir á skemmtunum, að fólk settist hreinlega ofan á Stefán, án þess að spyrja fyrst. Það talaði líka voða mikið við hann eins og barn.“ „Menn sögðu langar sjúkrasögur af sjálfum sér,“ segir Stefán, „rétt eins og þeir væru að reyna að hugga mig.“ Rut finnst, að þetta hafi skánað mikið eftir að Stefán fór að ganga á hækjum. „Enda getur fólk lítið sagt um það, hvort hann er fatlaður, ef það sér hann úr nokkurri fjarlægð. Hann gæti allt eins verið fótbrotinn.“ Þetta leiðir hugann að þeirri viðteknu skoðun, að fötlun sé allt að því óumbreytanlegt ástand. Sá, sem fatlast er og verður fatlaður, nema til komi einhvers konar kraftaverk. En er fótbrotinn maður þá ekki fatlaður, meðan hann er í gifsi? Náttúrufœðon hjálpor mikið Einn er sá þáttur í endurhæf- ingunni, sem Stefán leggur sérstaka áherslu á, en það er heilbrigt og gott líferni. “Ég tek mikið af vítamínum og bætiefnum. Oft hef ég samt lent í vandræðum, vegna þess að ég hef ekki fengið efni, sem ég þarf á að halda.“ Stefán nefnir dæmi um efni, sem er til þess ætlað að styrkja tauga- frumuenda, en þeir sködduð- ust einmitt í honum. Þetta umrædda efni lenti á bannlista hjá Landlæknisembættinu, þó svo að það sé leyft á öðrum Norðurlöndum. „Efnið var bannað, vegna þess að það er geymt í spíra til að halda því fersku. Eins og nokkrum detti í hug að kaupa það til að fara á fyllirí, það væri sjálfsagt lang- dýrasta aðferðin til þess. Nei, manni virðist, að apótekarar og læknastéttin séu hræddir um að missa spón úr aski símim. Þetta með spírann held ég að sé bara fyrirsláttur.“ Stefán tók bílpróf fyrir ári og keyrir nú daglega. Honum finnst mikill munur að vera ekki háður öðrum með flutning. Daginn eftir ætla Stefán og Rut svo að leggja upp í ferð um hringveginn og koma þá meðal annars við á Norð- firði, þar sem fjölskylda Rutar býr. í ferðinni ættu að vera góð tækifæri til útiveru og af því tilefni gefum við Stefáni síð- asta orðið. “Náttúrufæðan hefur hjálpað mér mikið. Ég hef sannfærst um, að rétt fæða og mikil hreyfing eru geysilega mikilvæg fyrir andlega og lík- amlega heilsu manna.“ 16 SJÁLFSBJÖRG

x

Sjálfsbjörg

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjálfsbjörg
https://timarit.is/publication/1654

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.