Sjálfsbjörg - 01.07.1988, Blaðsíða 37

Sjálfsbjörg - 01.07.1988, Blaðsíða 37
Smásaga stofnun komi og ræði við mig um húsmóður- skyldur mínar. Ég vil ekki bara vera sá sem getur aðstoðað þig. Ég veit að þú vilt líkt og ég lifa eðlilegu lífi. Ég pakka niður í tösku og bý hjá þér- í nokkra daga og þú pakkar stundum niður í tösku og kemur með ferðaþjónustunni til að búa hjá mér helgi og helgi. íbúð mín hentar á engan hátt fötluðum. En það gengur. En aðeins yfir helgi. Ég er komin að Södra Vágen og þung umferðin kemur á móti mér. Ég geng eftir mjórri og skuggsælli gangstéttinni meðfram byggingunni þar sem Læknahúsið er til húsa. Það er stórt skilti yfir innganginum og ég stoppa undir því örstutta stund og geng síðan inn. Ég tek lyftuna upp á fjórðu hæð. Það eru þó nokkrir á undan mér á biðstof- unni og ég fer úr skóm og jakka og fæ mér sæti og bíð. Eftir hverju? Eftir að einhver stjórnmálamaður ranki við sér og sjái að eitthvað er að? Að einhverjir aðrir geri það, sem ég get ekki? Eftir að aðrir vinni það verk sem til þarf áður en þú og ég, ástin mín, getum búið saman? Hvað í helvítinu er það þá sem ég bíð eftir? Að fá þjónustu án þess að leggja neitt af mörkum? Ég stend upp og geng til læknaritarans, lýt fram yfir borðið og segi hátt og skýrt að ég hafi ekki áhuga á þessum tíma fyrir útskröpun. Ég sný mér við blóðrjóð og geng út úr bið- stofunni, fer í jakkann og skóna og tek lyftuna niður. Stoppa fyrir utan bygginguna og litast um eftir símaklefa. Man að þeir eru margir á Ave- nyn. Ég hraða mér þangað. Leita að krónu í handtösku minni og hringi til þín. Ég segi nákvæmlega eins og er, að þú sért að verða faðir og nú verðum við einhvern veginn í fjandanum að finna einhvern stað að búa á. Það verður þögn í símaklefanum, finn að sólin skín aftur, sé hvað sporvagninn númer 4 kemur niður Korsveginn. Ég kveð og legg á. Hleyp á móti vagninum og næ honum. Ég sest við annan glugga. í þetta sinn sé ég allar stoppistöðvarnar. Sé fólk koma inn í vagninn. Ég næ andanum og brosi breitt með sjálfri mér. Það er apríl ástin mín og vor, vor mánuður. Um höfundinn Þetta er það fyrsta sem birtist eftir mig, segir Charlotte. Nú veltir hún fyrir sér að skrifa skáld- sögu um fatlaða. Henni finnst ekki erfitt að skrifa um líf fatlaðra og sem fyrirmynd að sögunni notar hún samlíf sitt og Anders. Mjög persónuleg frásögn, þar sem allt stenst raunveruleikann nema væntanlegt barn, það er skáldskapur. Dómnefnd SHT, blaðs fatl- aðra í Svíþjóð, fannst Char- lotte skrifa fallegan og ljóð- rænan stíl og að hún gefi orð- unum líf. Sjálf segir hún að maður verði að vera næmur á Charlotte Nilsson og vinur hennar, Anders Axelsson, með verðlaunin sem hún tók á móti á þingi DHR, samtaka fatlaðra í Svíþjóö, í september 1987. hljóð lífsins og hræringar og geta túlkað þær með orðum. Hún segist sama og ekkert hafa vitað um málefni fatlaðra þegar hún og Anders kynntust fyrir hálfu öðru ári (sagan birt- ist í september 1987). Draumur þeirra er að kom- ast í húsnæði út af fyrir sig, líkt og hjá persónum sögunnar. Nú eru þau til skiptis í íbúðum hvort annars eftir því sem mögulegt er. Anders tekur þátt í hóp- vinnu í Gautaborg. Tilgangur þeirrar hópvinnu er að gera til- raun með íbúðir fyrir fatlaða úti í bæ. Kannski yrði mögu- leiki að eignast barn þá. En ekki við núverandi aðstæður. Kannski geta smásögur Charlotte og fyrirhuguð skáld- saga hennar haft sömu áhrif og bókmenntir hafa stundum - að breyta raunveruleikanum sem þær eru vaxnar uppúr. SJÁLFSBJÖRG 35
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Sjálfsbjörg

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjálfsbjörg
https://timarit.is/publication/1654

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.