Sjálfsbjörg - 01.07.1988, Síða 41

Sjálfsbjörg - 01.07.1988, Síða 41
99 af hveijum 100 íbuðum eru ekki nothæfar fyrir fatlaða Hvernig er að vekja heyrnarlausan í brennandi hóteli? Hvernig ratar blindur í skyndi að neyðarútgangi? Hvernig á fatlaður að nota steypibað, ef hjólastóll hans kemst ekki í sturtuklefann? Og hvernig á hann að bera sig að á veitinga- stað, ef ekki verður komist á snyrtinguna nema yf ir 15 þrep niður í kjallara? Ofangreind dæmi eru einungis sýnishorn af því, hvernig hönnun bygginga hindrar fatlaða og gerir þeim lífð leitt. Eflaust eru það fyrst og fremst arkitektarnir, sem leggja hindranir á veg fatlaðra með byggingar- háttum sínum. Þó er alls ekki erfitt að byggja „rétt“ með tilliti til fatlaðra. Upplýsinga um einstök atriði er hverjum arkitekt auðvelt að afla sér. Sérfræðistofnun um byggingar fyrir fatlaða í Sviss („Schweizerische Fachstelle fúr behindertengerechtes Bauen“) í Zurich á ágætt gagnasafn með öllum þeim byggingartækni- legu gögnum, sem arkitekt kann að þurfa á að haida til að hanna mannvirki með tilliti til fatlaðra. Þessi grein er eftir arkitektinn Walter Fischer í Zurich í Sviss og birtist upprunalega í tímariti arkitekta og verkfræðinga. Pétur Urbancic þýddi greinina hins vegar upp úr málgagni fatlaðra í Sviss. Umframkostnaður, flóknari hönnun og meiri rýmisþörf eru þau rök, sem oft heyrast nefnd sem mótbárur gegn byggingum fyrir fatlaða. Þar kemur í ljós, að enn ber á mjög óljósum hug- myndum um byggingar fyrir fatlaða. Hönnun mannvirkja, sem henta fötluðum, krefst í fyrsta lagi eðlilegrar afstöðu til fatlaðra. Hversu langt menn eiga hér enn í land, finnur hver og einn, sem ekur hjólastól öðru hverju um götur bæja í landi okkar. Þrátt fyrir þá öld upplýsingar, sem við lifum, þá vekur það eitt að sjá fatlaðan ennþá óþægilegar tiifinningar í hugum margra, sem lýsa sér í vandræðalegri framkomu og meðaumkun, ótta við snert- ingu, bæði í líkamlegum og andlegum skilningi, allt upp í fráhrindandi kenndir og jafn- vel viðbjóð. Að sjálfsögðu vilja menn ekki viðurkenna slíkar kenndir, og einatt eru þær einnig ómeðvitaðar. Nú koma kenndir, þótt bældar séu, ávallt éinhvers staðar upp á yfirborð- ið, og á það eins við um ein- staklinga sem þjóðfélagið í SJÁLFSBJÖRG 39

x

Sjálfsbjörg

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjálfsbjörg
https://timarit.is/publication/1654

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.