Fréttablaðið - 19.03.2022, Blaðsíða 2
Þegar Clayton Echard, pipar-
sveinninn í Bachelor, var í
sárum vegna þess að Susie
hafði farið frá honum, leitaði
hann í Hallgrímskirkju þar
sem kórinn söng lag Þorvalds
Arnar Davíðssonar, Vaktu
minn Jesú, vaktu yfir mér,
sem er texti úr Passíusálmum
Hallgríms Péturssonar.
benediktboas@frettabladid.is
SAMFÉLAG „Við áttum smá spjall um
þetta og komumst að því að sumir
hlutir eru einfaldlega of fyndnir til
að segja nei við,“ segir Steinar Logi
Helgason, kórstjóri Hallgrímskirkju,
en kórinn söng á ögurstundu pipar-
sveinsins Clayton Echard hér á landi,
þar sem hann var að leita að ástinni.
Lokaþættir nýjustu seríu Bachelor
voru teknir upp á Íslandi í haust og
sýndir í sjónvarpi í síðustu og þess-
ari viku. Þegar kórinn hóf upp raust
sína var Clayton í sárum eftir að
einn keppandinn, Susie, hætti með
honum. Hjartað var enn hjá Susie en
lokaþættirnir urðu ótrúlega drama-
tískir og eftirminnilegir.
Clayton leitaði til trúarinnar og
birtist myndskeið í næstsíðasta
þættinum af honum í Hallgríms-
kirkju þar sem hann leitaði svara
við öllum sínum spurningum.
Undir hljómaði lagið Vaktu minn
Jesú, vaktu yfir mér, sem er texti úr
Passíusálmunum, en Þorvaldur Örn
Davíðsson útsetti. Steinar stýrði
kórnum af festu enda mátti ekkert
klikka – slík var spennan. Atriðið er
þegar umtalað í Bachelor-heimum
en aðdáendur þáttaraðarinnar telja
milljónir um heim allan.
„Ég hafði fyrst áhyggjur af að
þetta væri full dramatískt fyrir þátt-
inn en ég hef heyrt að mikið hafi
gengið á þannig að það var kannski
bara viðeigandi að við værum í sálu-
sorgarahlutverki í kirkjunni,“ segir
Steinar, en framleiðendurnir höfðu
séð kórinn flytja lagið og úr varð að
íslenskur Passíusálmur heyrðist í
bandarísku raunveruleikasjónvarpi
eins og það gerist best.
„Þetta kom upp í hendurnar á
okkur, að framleiðendurnir vildu
taka upp í Hallgrímskirkju og vildu
hafa kór. Ég sagði nú að það yrði að
bera undir hópinn,“ segir Steinar,
en hann setti fram kröfuna um að
íslensk tónlist myndi heyrast – svo
eftir var tekið.
„Þau frá Bachelor höfðu séð
myndband frá kórnum þar sem
við syngjum þetta lag sem við og
gerðum.
Maður veit ekki hvort maður eigi
að vera stoltur eða skammast sín að
koma Passíusálmunum inn í Bac-
helor,“ segir hann og hlær, en Steinar
viðurkennir að hafa ekki séð einn
einasta þátt af þáttaröðinni vinsælu
sem sýnd er í Sjónvarpi Símans.
Hann bendir þó á að nokkrir Bac-
helor-sérfræðingar leynist í kórnum
og mikill meirihluti hafi verið sam-
mála um að taka þátt í þessu verk-
efni. „Þetta var ákvörðun sem við
tókum í sameiningu og það var yfir-
gnæfandi meirihluti á því að þetta
væri fyndið og skemmtilegt að fá að
taka þátt í. Ég var sammála því.“
Kór Hallgrímskirkju syngur á
Boðunardegi Maríu á sunnudag á
tónleikum sem hefjast hálf sex og
er nóg að gera. „Svo seinna í vor
erum við með stóra tónleika með
barokkbandinu Brák, sem er mjög
spennandi verkefni.“ ■
Forsetinn fagnaði fjölbreytileikanum
Í tilefni af alþjóðadegi fólks sem er með Downs heilkenni, á mánudag, klæddi Guðni Th. Jóhannesson forseti sig í mislita sokka þegar hann tók á móti sendi-
nefnd félags áhugafólks um Downs heilkennið. Mislitu sokkarnir tákna umburðarlyndi og fjölbreytileika. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
ÚTBOÐ
Borgartúni 7c, 105 Reykjavík
Sími 530 1400
www.rikiskaup.is
Útboð 20191 - Ljósbúnaður fyrir Þjóðleikhúsið
Ríkiskaup fyrir hönd
Þjóðleikhússins óska eftir tilboðum
í eftirfarandi ljósbúnað:
• Hreyfiljós Spot/Profile
• Hreyfiljós Wash
• Fastljós Wash
• Upphengjur fyrir ofangreint
Samið verður við einn aðila um viðskipti þessi.
Nánari upplýsingar má finna í útboðsgögnum, sem verða
aðgengileg á vef Ríkiskaupa ( www.rikiskaup.is ),
miðvikudaginn 18. nóvember nk.
Tilboðum skal skila til Ríkiskaupa, Borgartúni 7c, 105
Reykjavík þar sem þau verða opnuð 22. desember 2015,
kl. 14.00 að viðstöddum þeim bjóðendum sem þess óska.
Borgartúni 7c, 105 Reykjavík
Sími 530 1400
www.rikiskaup.is
Útboð 21627
BYGGING HJÚKRUNARHEIMILIS Í HVERAGERÐI
Framkvæmdasýslan-Ríkiseignir, Heilbrigðisráðuneytið og Hveragerðis-
bær, auglýsa eftir umsóknum byggingaraðila (aðalverktökum) um þátttöku-
rétt í lokuðu alútboði á fullnaðarhönnun og byggingu 22 rýma hjúkrunar-
heimilis andspænis núverandi dvalar- og hjúkrunarheimilinu ÁS við Hvera-
hlíð 19 í Hveragerði. Hér er um að ræða forval, þar sem aðilar verða valdir
með tilliti til hæfi og reynslu. Leitað er að aðilum, sem geta tekið að sér að
hanna og byggja 22 rýma hjúkrunarheimili fyrir fasta fjárhæð samkvæmt
alútboðsaðferð. Áætluð húsrýmisþörf er 1.430 m2 (BR).
Gögnin eru á útboðsvefnum www.Tendsign.is, útboðsnúmer 21627.
Óski þátttakendur frekari upplýsinga má senda fyrirspurn í útboðskerfinu.
Sálusorgarar á ögurstundu í
ástarleit Clayton hér á landi
Steinar Logi stýrir kórnum á meðan Clayton situr í Hallgrímskirkju og veltir
fyrir sér næstu skrefum. MYNDIR/SKJÁSKOT ÚR SJÓNVARPI SÍMANS
Maður veit ekki hvort
maður eigi að vera
stoltur eða skammast
sín að koma Passíu-
sálmunum inn í Bac-
helor.
Steinar Logi
Helgason,
kórstjóri
Hallgrímskirkju
kristinnhaukur@frettabladid.is
SAMFÉLAG Þeim fækkar sífellt sem
fá íslenskan ríkisborgararétt í sam-
ræmi við ákvörðun stjórnvalda.
Árið 2020 fengu 395 útlendingar
íslenskan ríkisborgararétt, sem er
það minnsta í áratug og innan við
helmingur af fjölda ársins 2015
þegar 801 fékk ríkisborgararétt.
Síðan árið 2015 hefur talan lækk-
að mjög hratt. Niður í 703 árið 2016,
637 árið 2017, 569 árið 2018 og 437
árið 2019.
Meirihluti þeirra sem fengu rík-
isborgararétt árið 2020 koma frá
öðrum Evrópuríkjum, 269 manns.
Þar af 134 frá Póllandi, 27 frá Eystra-
saltsríkjunum, 8 frá Úkraínu og 7 frá
Rússlandi. Nokkur fjöldi kemur frá
Asíu, þar af 19 frá Tælandi og 13 frá
Filippseyjum. ■
Sífellt færri fá
ríkisborgararétt
Alþingi hefur heimild til að veita
ríkisborgararétt. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
olafur@frettabladid.is
VIÐSKIPTI Ársreikningur Íslands-
pósts fyrir 2021 bendir til verulegs
taps á innlendri póstþjónustu.
Erfitt er að meta nákvæmlega hve
mikið tapið er vegna þess að Íslands-
póstur veitir ekki upplýsingar um
sundurliðun þátta.
Hagnaður af rekstri Íslandspósts
var 255 milljónir á síðasta ári. Án
563 milljóna framlags ríkisins vegna
alþjónustuskyldu hefði tapið numið
meira en 300 milljónum.
Fyrir liggur að jákvæð afkoma er
af millilandapóstsendingum.
Tapið af innlendri póstþjónustu
er því líklega meira en 300 milljónir.
Fréttablaðið hefur óskað eftir upp-
lýsingum frá Íslandspósti og Byggða-
stofnun, sem hefur eftirlitshlutverk
gagnvart Íslandspósti, um hvernig
tapið samræmist 3. mgr. 17. gr. laga
um póstþjónustu nr. 98/2019, sem
kveður skýrt á um að gjaldskrár fyrir
alþjónustu skuli taka mið af raun-
kostnaði að viðbættum hæfilegum
hagnaði.
Einnig hefur Fréttablaðið beðið
innviðaráðuneytið, sem fer með
eftirlit gagnvart Byggðastofnun, um
að útskýra afstöðu sína, en því hefur
verið haldið fram að ofangreind lög
séu „óvirk“, hvernig sem svo má vera
með gildandi lög. ■
Ársreikningur bendir til mikils taps
Verulegt tap virðist hafa orðið á inn-
lendri póstþjónustu á síðasta ári.
2 Fréttir 19. mars 2022 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ