Fréttablaðið - 19.03.2022, Side 8
KEF-LON AEY-LON
Flugfargjald (fram og til baka) 103.600 114.660
Akstur innanlands 16.000 2.200
Veitingar innanlands 10.000 5.000
Bensín innanlands 15.624 0
Parking KEF (7 dagar) 12.250 0
Gisting KEF (1 nótt) 21.300 0
Vinnutap/orlof (2 dagar) 48.334 0
227.108 116.860
Sparnaður við AEY 110.248
Dæmigerður ferðakostnaður Akureyrings
Forsendur
n Hjón á vikuferðalagi með handfarangur og velja sæti saman
n Slembidagsetningar valdar
n 2 orlofsdagar notaðir til aksturs til og frá Keflavík – laun beggja áætluð 580.000/mánuði
og 24 orlofsdagar á ári
n Meðalverð á gistingu eina nótt í Keflavík
n Akstur og eldsneyti: 800 kílómetrar fram og til baka, 6,3l dísel/100km og 20 kr. viðhald/km
Norðlendingar binda miklar
vonir við betri lífsgæði með
greiðum flugsamgöngum út í
heim. 70% útlendra sem hafa
komið til Íslands vilja út á
land.
bth@frettabladid.is
SAMGÖNGUR „Bókanir hafa farið vel
af stað og eru framar væntingum.
Það er líka áhugavert að heyra af
því að útlendingar séu farnir að
breyta fyrri hótelbókunum sínum
til að aðlaga dvölina að flugáætlun
Niceair,“ segir Þorvaldur Lúðvík
Sigurjónsson hjá Niceair.
Hið norðlenska flugfélag opnaði
bókanasíðu félagsins í fyrradag. Má
sjá af viðbrögðum Norðlendinga á
samfélagsmiðlum að mikil ánægja
hefur skapast bæði með f lugtíma
og verð.
Áætlanaflug hefst frá Akureyrar
flugvelli í byrjun júní. Fyrsta flugið
verður til Kaupmannahafnar en
einnig verður f logið til London og
Tenerife.
Þorvaldur Lúðvík segir áætl
unarf lugið fyrstu reglubundnu
samgöngurnar milli Akureyrar og
umheimsins í meira en hundrað ár.
„Við getum talað um að það þurfi að
fara aftur til þess tíma þegar Gránu
félagið var og hét í siglingum, þegar
síðast voru reglubundnar samgöng
ur við útlönd frá Akureyri,“ segir
Þorvaldur Lúðvík. „Samfélög geta
ekki þroskast að fullu nema hafa
alþjóðasamgöngur, til viðbótar við
fólk, fjármagn, tækni og fjarskipti,“
bætir hann við.
Þorvaldur Lúðvík bendir á að
burtséð frá jákvæðum tækifærum
fyrir heimamenn hagnist Ísland
allt með greiðari aðgangi erlendra
ferðamanna sem víðast um landið.
„Rannsóknir sýna að 70% far
þega sem hafa komið til Íslands og
vilja koma aftur, vilja komast beint
út á land. Þeir eru þá búnir að sjá
Gullfoss, Geysi, suðurströndina og
Reykjavík, sem er fínt, en nú stækk
ar kakan og auðveldara verður að
viðhalda þeim góða árangri sem
náðst hefur í markaðssetningu
Íslands.“
Atli Örvarsson tónskáld er í hópi
fjárfesta Niceair.
„Sannleikurinn er sá að þegar fólk
á þessu svæði vill komast til útlanda
hafa iðulega farið tveir dagar í ferð
ina, sem þýðir vinnutap, kostnað
við að koma sér suður og kostnað
við gistingu í Reykjavík eða í Kefla
vík. Nú munum við vakna á kristi
legum tíma að morgni dags, það
tekur mig fimm mínútur að fara út á
flugvöll, svo lendir maður í London
fjórum tímum síðar. Þetta verður
algjör bylting,“ segir Atli.
Hann segist hafa tekið þátt í
stofnun hlutafélagsins vegna þess
að vandfundið sé gagnlegra verk
efni. Hann nefnir sem dæmi að við
skiptavinir SinfonIa Nord hafi sagt
að ef beint flug væri milli Akureyrar
og London gætu viðskipti aukist til
mikilla muna. Því séu ótalmargir
fletir á jákvæðum áhrifum af stofn
un flugfélagsins og þess vegna hafi
hann ákveðið að taka þátt og sitja í
stjórn félagsins.
„Ég held líka að þegar verður búið
að opna þessa gátt milli umheimsins
og Akureyrar geti orðið mikil jákvæð
menningarleg breyting,“ segir Atli. n
Bókanir Niceair byrja vel
Bókanasíða flugfélagsins norðlenska opnaði í fyrradag og áætlunarflug hefst í byrjun júní. MYND/AÐSEND
Atli Örvarsson,
tónskáld og fjár-
festir í Niceair
arib@frettabladid.is
DÓMSMÁL Héraðsdómur Reykja
víkur vísaði í gær frá máli ÁTVR
gegn Þórgný Thor odd sen, eiganda
áfengisverslunarinnar Bjórlands. Í
gær var einnig vísað frá máli ÁTVR
gegn áfengisversluninni Sante.
Líkt og fram kom í umfjöllun
Fréttablaðsins í september í fyrra
taldi ÁTVR að þar sem það hefði
einkarétt á áfengissölu þá hefði
það aðkomu að málinu, þar að auki
gæti verslunin ekki búið við réttar
óvissuna. Innanríkisráðuneytið
hefur vísað til dómstóla um lög
mæti Bjórlands og Sante
Í úrskurðinum segir að stefnan
beri þess merki að verið sé að reyna
að fá dómstólinn til að skera úr um
hver megi selja áfengi, slíkt sé ekki
á forræði ÁTVR. Þó svo að ÁTVR sé
með einkarétt teljist það ekki meðal
verkefna að viðhalda honum. Var
ÁTVR dæmt til að greiða tæpa millj
ón króna í málskostnað. n
Ekki ÁTVR að verja einkarétt sinn
Parket
Gríðarlegt úrval af viðarparketi ásamt vatnsþolnu harðparketi
og vínylparketi má finna í sýningarsal okkar á Dalvegi 10-14.
Komdu við og ræddu við sérfræðinga
Parka og fáðu faglega ráðgjöf
Dalvegi 10-14, 201 Kópavogi • 595 0570
AÐAL
FUNDUR
Félagið veitir ferða-
styrk til þeirra félags-
manna sem búa í meira
en 40 km fjarlægð frá
fundarstað.
Félags iðn- og
tæknigreina 2022
verður haldinn laugardaginn 26. mars
kl. 11 að Stórhöfða 31, jarðhæð.
Gengið inn Grafarvogsmegin.
Dagskrá:
1. Skýrsla félagsstjórnar um starf félagsins á liðnu
starfsári.
2. Endurskoðaðir reikningar lagðir fram til umræðu
og afgreiðslu.
3. Ákvarðanir teknar um ávöxtun sjóða félagsins.
4. Kjöri stjórnar lýst.
5. Kosning trúnaðarráðs, kjörstjórnar, skoðunarmanna
reikninga, og uppstillinganefndar.
6. Kosning endurskoðenda.
7. Tillögur um fulltrúa á ársfundi lífeyrissjóða sem
FIT er aðili að.
8. Önnur mál.
Hádegismatur
í boði félagsins.
Stjórnin
Athugið að gildandi reglum um sóttvarnir
verður fylgt á fundinum.
8 Fréttir 19. mars 2022 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ