Fréttablaðið - 19.03.2022, Blaðsíða 12

Fréttablaðið - 19.03.2022, Blaðsíða 12
© GRAPHIC NEWSHeimildir: Institute for the Study of War, UK Ministry of Defence, Reuters Innrás í Úkraínu PÓLLAND SLÓVAKÍA UNGVERJALAND RÚMENÍA MOLDÓVA SVARTAHAF Lvív Donetsk Lútsk Dnípro LúhanskKríjvíji Ríh Karkív Kænugarður Súmíj Konotop Sjostka Gomel Tjernív Odesa Míjkolaíjv Kerson Berdíjansk Melítopol Zaporizhzhia Maríupol Ívano- Frankívsk Ú K R A Í N A HVÍTA-RÚSSLAND R Ú S S L A N D KRÍMSKAGI DONBASS- SVÆÐIÐ 100 km 1 2 3 4 5 6 8 7 Borgir undir stjórn Rússa Svæði undir stjórn Rússa Sókn Rússa Umkringdar borgir Átakasvæði Kænugarður: Harðar árásir á borgina. Hersveitir Úkraínu ollu miklum skaða á sveitum Rússa norðvestan við borgina. Kerson: Rússar færðu þyrlu©ota eªir loªárásir Úkraínumanna. Odesa: Rússar hafa fært 810. fótgöngulið sjóhersins til Maríupol, líklegt er að hersveitin eigi að ganga á land nærri Odesa. Lvív: Sex ©ugskeytum skotið á borgina en átökin hafa hingað til ekki náð svo langt vestur. Maríupol: Rússar reyna að komast inn í borgina úr austri og vestri. Meira en tvö þúsund almennir borgarar liggja í valnum. Tjernív: 53 almennir borgarar látnir. Súmíj: Skriðdrekasveitir Rússa fastar í svaði sunnan við borgina. Karkív: Harðar árásir á borgina. Mikið mannfall hjá Rússum, Ígor Níkolaev, ofursti 252. hersveitar, þar á meðal. 1 6 7 8 5 3 4 2 HAFNARFJÖRÐUR, NÓNHAMAR OG HRINGHAMAR Í HAMRANESI Opið fyrir umsóknir vegna nýrra leiguíbúða Bjarg íbúðafélag hefur opnað fyrir umsóknir vegna nýrra leiguíbúða í Hamranesi í Hafnarfirði. Umsóknir og nánari upplýsingar á heimasíðu félagsins www.bjargibudafelag.is Rússar segja að barist sé í mið­ borg Maríupol. Forsvarsmenn Matvælaáætlunar Sameinuðu þjóðanna hafa miklar áhyggj­ ur af fæðuöryggi í landinu. arib@frettabladid.is ÚKRAÍNA Fæðuframboð í Úkraínu er í mikilli hættu að mati Matvæla­ áætlunar Sameinuðu þjóðanna (MSÞ). Innrás Rússa hefur eyðilagt mikilvæga innviði, sem hefur leitt til þess að verslanir og vöruhús eru tóm. „Aðfangakeðjurnar í landinu eru að molna í sundur. Bílstjórar óttast að keyra á milli staða,“ sagði Jakob Kern, verkefnastjóri almannavarna hjá MSÞ, á blaðamannafundi í Genf í gær. Staðan væri þó mun verri í umkringdum borgum á borð við Maríupol þar sem matur er upp­ urinn og borgarar verða sér úti um drykkjarvatn með því að bræða snjó. Innrásin hefur einnig mikil áhrif á matvælaverð í heiminum þar sem MSÞ sjálf kaupir mikið af hveiti frá Úkraínu til að f lytja til annarra staða þar sem neyðin er mikil. Tímaspursmál er hvenær Rússar ná tökum á Maríupol. Rússneska varnarmálaráðuneytið sagði í gær að hermenn væru nú í götubar­ dögum í miðborginni. Ljúdmíla Denisova, umboðsmað­ ur mannréttinda í Úkraínu, sagði að búið væri að bjarga 130 úr leik­ húsinu í Maríupol, þar sem meira en þúsund konur og börn höfðu Fæðuöryggi Úkraínumanna í mikilli hættu Blokk í úthverfi Kænugarðs í rúst í gær eftir loftárás. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY leitað skjóls áður en það varð fyrir flugskeyti. Denisova sagði við NBC að 1.300 væru föst í kjallaranum. Rússar neita því að hafa skotið á leikhúsið. Volodímír Selenskíj, forseti Úkraínu, sagði að allt væri gert til að aðstoða fólkið en árásir Rússa gerðu það ómögulegt að koma hjálpar­ sveitum á vettvang. Rússnesk skip hafa skotið á Odesa og eru líkleg til að reyna að senda fótgönguliða sjóhersins á land nærri borginni til að loka á aðgang Úkra­ ínu að Svartahafi. Innrásarherinn náði miklu landsvæði til að byrja með en hefur átt í erfiðleikum með að halda áfram för sinni. Borgin Súmíj í norðausturhluta landsins er nánast umkringd en Úkraínu­ mönnum hefur tekist að koma í veg fyrir að Rússar loki víglínunni fyrir sunnan borgina. Kænugarður er vel varinn og hefur Rússum ítrekað mistekist að koma mönnum suður fyrir borgina. Hafa hersveitir Rússa verið fastar í rúma viku við bæinn Irpin, 25 kílómetra frá borginni. Hefur þeim ekki tekist að komast yfir Irpin­ána. Fréttaritari BBC í Karkív í austur­ hluta landsins sagði að Rússar væru orðnir pirraðir á því að ná ekki borg­ inni og væru því að beina stórskota­ liði að íbúðahverfum í síauknum mæli. Rússar skutu í gær flugskeyt­ um á Lvív í vesturhluta landsins. Xi Jinping forseti Kína sagði við Joe Biden Bandaríkjaforseta á fjarfundi í gær að átökin í Úkraínu væru ekki til hagsbóta fyrir neinn. „Ástandið í Úkraínu er eitthvað sem við viljum ekki sjá,“ sagði Xi. Þeir ræddu saman í tvo tíma í gær, Biden varaði Kínverja við að veita Rússum efnahags­ eða hernaðaraðstoð. Slíkt myndi koma niður á kínverskum fyrirtækjum. Bandaríkin hafa varið 800 millj­ ónum dala í hernaðaraðstoð til Úkraínu. Meðal þess sem verður sent eru 800 Stinger­flugskeyti sem geta skotið niður flugvélar, 2 þúsund Javelin­sprengjuvörpur til að eyði­ leggja skriðdreka og 6 þúsund AT­4 sprengjuvörpur. Sergei Lavrov, utanríkisráðherra Rússlands, sagði í viðtali við RT að Rússar litu svo á að allar vopna­ sendingar til Úkraínu væru lögleg skotmörk. „Það er skýrt að allir vöruflutningar sem fara inn á yfir­ ráðasvæði Úkraínu og við teljum að innihaldi vopn, eru réttmætt skot­ mark,“ sagði hann. Fór Lavrov einnig yfir nýja heims­ sýn Rússa, tímabilinu eftir Kalda stríðið væri lokið og Rússar myndu miklu frekar horfa austur á bóginn. „Við munum þurfa að treysta á okkur sjálf og þá bandamenn sem yfirgefa okkur ekki,“ sagði hann. „Landið okkar hefur ekki séð svona mikla samstöðu í langan tíma,“ sagði Vladimír Pútín Rúss­ landsforseti, þegar hann kom fram á fjöldafundi á Luzhníkí­þjóðarleik­ vanginum í Moskvu í gær í tilefni af því að átta ár eru frá því að Rússar réðust inn á Krímskaga. Í ræðu sinni hélt Pútín áfram málflutningi um að Úkraínumenn hefðu framið fjölda­ morð á rússneskumælandi íbúum Donbass­héraðsins. Hélt hann því einnig fram að Úkraínumenn tækju innrásarliðinu fagnandi. Samstaðan í landinu er þó töluvert minni en Pútín hélt fram, eins og sjá má í niðurstöðum könnunar sem gerð var meðal almennings nýverið og sjá má hér fyrir ofan. n Heimildir: Rating Group, Survation Myndir: Getty Images Almenningsálit í Rússlandi og Úkraínu Skýrar línur eru að myndast í Rússlandi í afstöðu til innrásarinnar. Á sama tíma er mikil samstaða í Úkraínu en níu af hverjum tíu Úkraínumönnum telja að hægt verði að sigrast á innrásinni R Ú S S L A N D Könnun gerð af Survation, 1.137 svöruðu. Könnunin var gerð 15. og 16. mars. Óákveðnir ekki taldir með. Styður þú innrásina? Áhrif á efnahag Rússlands Stuðningur, 18 til 29 ára Stuðningur, 60 ára og eldri Styð hana, styð að öllu leyti Átökin eru þess virði Átökin eru ekki þess virði Ég tel að Úkraína muni sigrast á innrásinni Til að útrýma úkraínsku þjóðinni Til að koma í veg fyrir herstöðvar NATO Veikja úkraínska herinn Espa NATO til stríðsátaka Til að verja rússneskumælandi íbúa 64% 41% 21% 25% 56% 17% 10% 5% 2% 70% 9% 16% 43% 33% 13% 17% 92% 6% Hvorki styð né er á móti Á móti, á móti að öllu leyti Ég tel að það muni ekki takast Trú á sigri Primary reason for invasion Ú K R A Í N A Könnun gerð af Rating Group, meira en 1.200 svöruðu. Könnunin var gerð 12. og 13. mars. Óákveðnir ekki taldir með. © GRAPHIC NEWS Ástæða fyrir innrásinni Það er skýrt að allir vöruflutningar sem fara inn á yfirráða- svæði Úkraínu og við teljum að innihaldi vopn, eru réttmætt skotmark. Sergei Lavrov, utanríkisráð­ herra Rússlands 12 Fréttir 19. mars 2022 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.