Fréttablaðið - 19.03.2022, Side 26
Ég fór að
átta mig á
því að
ástæðan
fyrir því að
það voru
teknir
þarna inn
tveir vest-
rænir
menn til að
stjórna
fjölmiðli
var ekki
endilega sú
að við
værum
svona
ofboðslega
klárir.
Börnin
hans búa
einhvers
staðar í
leyni, en
þau hafa
búið undir
öðru nafni
í Hollandi
og víðar.
Steingrímur Árnason sem
stjórnaði síðustu „frjálsu“
fjölmiðlasamsteypu Rúss-
lands, Afisha Rambler SUP,
árin 2013-2014 upplifði þegar
Pútín og hans menn fóru að
hafa afskipti af ritstjórnar-
stefnunni með beinum hætti
og frjáls fjölmiðlun leið undir
lok í landinu.
Við fengum leyniheim-
sókn frá starfsmanna-
stjóra Pútíns, Sergej
Ívanov, og með honum
komu leyniþjónustu-
menn og lífverðir í stórri bílalest
til þess að hitta okkur sem vorum í
framkvæmdastjórn og ritstjórana.
Þetta var kvöldfundur rétt fyrir
miðnætti, bara vegna þess að Pútín
var nýbúinn að halda einhverja
stefnuræðu og hann vildi vera viss
um að hún skilaði sér með réttum
hætti í öllum fjölmiðlunum daginn
eftir.“
Steingrímur upplifði þegar Pútín
og hans menn fóru að hafa afskipti
af ritstjórnarstefnunni með beinum
hætti og frjáls fjölmiðlun leið undir
lok í landinu.
Rísa fjölmiðlafyrirtæki
„Fyrirtækið heitir Rambler Group
í dag en varð til við sameiningu
þriggja stórra fjölmiðlafyrirtækja
sem gáfu út tímarit og héldu úti
samfélagsmiðli og fjölda vefsíðna,
þeirra á meðal stærstu fréttavefj-
unum Lenta og Gazeta – alls 52
vörumerkjum. Í íslensku samhengi
er þetta svolítið eins og þú værir
með Vísi, Mbl, DV og Viðskipta-
blaðið í einni samsteypu og Mann-
líf. Við vorum með einn raunveru-
legan samkeppnisaðila, hitt voru
nær allt ríkisfjölmiðlar, en ég var
framkvæmdastjóri vöruþróunar
og var staðgengill forstjóra hjá fyrir-
tækinu.“
Hvernig kom það til að þú réðir
þig í þetta starf?
„Það kom nú þannig til að ég var
að vinna verkefni fyrir Apple í Evr-
ópu með stjórnanda sem var frá
Rússlandi og hann var beðinn um
að hjálpa landa sínum sem hafði
keypt stórt fyrirtæki með stafræna
strategíu. Hann hafði ekki tíma til
að gera þetta og benti á mig og ég
sló til.“
Flutti fjölskyldan með þér til Rúss-
lands?
„Nei, það var eitthvað sem við
vildum bíða með og það reyndist
góð ákvörðun. Þetta var stressandi
og mér veitti ekki af einbeitingunni,
vann mikið og var þreyttur á kvöld-
in. En ég flaug til Íslands aðra hverja
helgi. En svo var planið að vinna að
hluta til frá London, þannig að fjöl-
skyldan gæti flutt þangað, sem hún
gerði. Börnin fóru í enska skóla.
Fyrrverandi konan mín kom bara
einu sinni til Rússlands til að heim-
sækja og sjá hvernig þetta allt væri
en sinnti börnunum ein og á heiður
skilinn fyrir.“
Var hægt að reka frjálsan fjölmiðil
í Rússlandi þar sem ekki ríkir skoð-
anafrelsi?
„Á þessum tíma var meira um
það. En það var og er sérstök eftir-
litsstofnun, Roskomnadzor, sem
fylgist með fjarskiptum, inter-
netinu og fjölmiðlum. Þá var í gildi
svokölluð þriggja brota regla, það er
ef þú brýtur þrisvar af þér þá missir
þú fjölmiðlaleyfið. Ég held að allir
miðlarnir okkar hafi verið komnir
á síðasta séns og þá myndast þetta
aðhald, að þú birtir helst ekkert sem
orkar tvímælis því þá getur maður
misst leyfið.“
Pútín sýndi tennurnar
„Magnaðasti atburðurinn var þegar
við vorum komnir á síðasta séns á
einum miðlinum árið 2013. Rit-
stjóranum hafði tekist að fá við-
tal við leiðtoga aðskilnaðarsinna í
Tsjetsjeníu. Það pirraði stjórnvöld
mjög mikið að hann kæmi í viðtal
hjá okkur til að viðra sjónarmið sín.
Og þeir hreinlega stilltu okkur upp
við vegg og sögðu að við myndum
missa fjölmiðlaleyfið ekki bara fyrir
þennan miðil heldur alla miðlana ef
við hættum ekki við viðtalið, en það
var þó birt en síðar fjarlægt. Fjöl-
miðill í þessari stöðu með tugi millj-
óna áhorfenda og lesenda er afar
verðmætt fyrirtæki svo að vegna
viðskiptahagsmuna endaði með því
að sú slæma ákvörðun var tekin að
reka ritstjórann vegna ytri pressu.
Og það gengu allir út þennan dag.
Allir! Hæðin tæmdist. Samstaðan
var gríðarleg,“ segir Steingrímur.
Aðspurður hvort fyrirtækið hafi
þá verið búið að vera svarar Stein-
grímur því neitandi. „En við þurft-
um að finna einhverja til að skrifa
fréttirnar fyrir Lenta. Hin fyrirtæk-
in og vörumerkin voru ósködduð af
þessu. Sá sem tók við ritstjórninni
var ríkisfulltrúi hjá okkur og fyrr-
verandi ritstjóri hjá Kremlarfjöl-
miðli. Hann tók yfir ritstjórn þarna
og hringdi í vini sína og þeir byrjuðu
að skrifa fréttir á fullu, og reynt var
að láta almenning ekki verða varan
við neitt.“
Pútín er barnalega hefnigjarn
Pútín, ríkið og leyniþjónustan eru
með puttana alls staðar?
„Það verður til þessi hirð óligarka
sem eru bestu vinir aðal, menn sem
urðu ofurauðugir snemma á tíunda
áratugnum þegar þeir fengu að taka
yfir eignir ríkisins í kjölfar falls
kommúnismans. Þetta gerðist þegar
Jeltsín var við völd og síðan tekur
Pútín við og þetta hélt áfram og
virðist bara hafa versnað, því miður.
Þeir hafa fengið að safna þessum
gríðarlegu auðæfum á meðan
almenningur, ég segi ekki sveltur,
en nýtur ekki þess ábata sem hann
ætti ellegar að gera. Það er auðvitað
pirringur í garð þessarar stéttar, en
hún er það valdamikil og fjarlæg
almenningi að lítið breytist.“
En gerir almenningur sér grein
fyrir því að nokkrir einstaklingar
eru búnir að sölsa undir sig þjóðar-
auðinn?
„Vissulega. Þessar afhjúpanir eru
mikið til einum manni að þakka,
lögfræðingnum Alexej Navalníj,
sem er svarinn andstæðingur Pút-
íns. Einn stærsti og elsti bloggvefur
heims, LiveJournal.com, var eitt af
fyrirtækjunum okkar og þar var til
dæmis bloggið hans Navalníjs hýst.
Hann var fremstur í f lokki við að
af hjúpa alla skandalana og spill-
inguna. Hann sýndi loftmyndir
af leynihöll Pútíns og lét fram-
leiða heimildarmyndina „Putin’s
Palace“. Annað sem hann birti var
að loftferðagjöldin, sem þú þarft
að greiða ef f logið er yfir rússneskt
flugumsjónarsvæði, runnu öll inn á
svissneskan bankareikning en ekki
til ríkisins og svo framvegis.
Navalníj hefur verið mjög óþægi-
legur fyrir Pútín, enda var reynt að
eitra fyrir honum nýlega og hann
situr nú í fangelsi. Hann færði
bloggið út fyrir Rússland á þessum
tíma enda erfitt að hýsa slíkt í þessu
umhverfi. Pútín er svo barnalega
hefnigjarn. Annað hvort ertu með
honum eða þú ert svikari.“
Er Pútín sýnilegur eða heldur
hann sig á bak við Kremlarmúrana?
„Pútín er fyrst og fremst stjórn-
málamaður en þó áberandi í fjöl-
miðlum þegar það hentar. Það eru
þá svona PR-myndir af honum að
f ljúga herþotu, glíma við skógar-
björn ber að ofan og fleira sem sýnir
styrk. Þetta eru myndirnar sem við
sjáum og margir hlæja að.
Rússar bera nefnilega eingöngu
virðingu fyrir styrk. Það er kannski
lærdómurinn sem við á Vestur-
löndum verðum að draga, að ef við
sýnum Pútín ekki hörku á móti
þegar hann ræðst inn í önnur lönd,
þá hugsar hann: „Já, ég kemst upp
með þetta.“ Rússlandi verður því að
sýna styrk og festu.“
Harkan gagnvart okkur eykst
Steingrímur segir allt hafa breyst
þegar Pútín réðst inn á Krímskag-
ann í febrúar 2014.
„Það byrjaði með því að við
fórum að finna fyrir mikilli hörku
gagnvart fjölmiðlunum okkar, rétt
fyrir innrásina. Það var til dæmis
þessi leyniheimsókn frá starfs-
mannastjóra Pútíns. Fundurinn var
haldinn rétt fyrir miðnætti í höfuð-
stöðvum okkar og skilaboðin voru
þau að Pútín vildi að ræðan sem
hann var að fara f lytja fengi „full-
nægjandi“ umfjöllun. Mér fannst
þetta alveg stórfurðulegt, en þarna
var farið að sýna valdið. Stór bílalest
fyrir utan starfsstöð okkar rétt
Pútín tók smám saman af okkur völdin
Elín
Hirst
elinhirst
@frettabladid.is
Steingrímur
Árnason segir
að Pútín sé mjög
sótthræddur
og það sé talin
skýringin á því
hvers vegna
hann vilji halda
mönnum í
ákveðinni
fjarlægð með
risastóru
fundarborði.
FRÉTTABLAÐIÐ/
SIGTRYGGUR ARI
26 Helgin 19. mars 2022 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ