Fréttablaðið - 19.03.2022, Page 30
Allt er kynningarblað sem býður auglýsendum
að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og
umfjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið rit
stjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@frettabladid.is, s. 550 5761 | Oddur Freyr
Þorsteinsson, oddurfreyr@frettabladid.is s. 550 5766 | Sandra Guðrún Guðmundsdóttir,
sandragudrun@frettabladid.is, s. 550 5762 | Starri Freyr Jónsson starri@frettabladid.is,
s. 550 5767 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is, s. 550 5768
Útgefandi:
Torg ehf
Ábyrgðarmaður:
Jón Þórisson
Sölumenn: Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652,
Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@frettabladid.is, s. 550 5654, Jóhann
Waage, johannwaage@frettabladid.is, s. 550 5656, Ruth Bergsdóttir,
ruth@frettabladid.is, s. 694 4103.
Gunnar Guðmundsson, einn af
fjórum eigendum Tarandus ehf.,
er sjálfur mikill útivistarmaður.
Honum fannst vanta hjólhýsi sem
hægt væri að nota á fáförnum
vegum og slóðum. Hýsi sem
kæmist út fyrir þjóðveginn og
væri með eldhús, svefnpláss og
salernisaðstöðu. Slík hjólhýsi hafa
ekki fengist hér fyrr en nú. „Þetta
er vagn sem hefur öll þægindi sem
ferðalangar þurfa á ferðalögum
sínum. Nú er hægt að skoða þá
náttúru og skemmtilegu staði sem
ekki var hægt með hefðbundnu
hjólhýsi,“ segir Gunnar.
Áhuginn strax mikill
„Eftir nokkurra ára leit innanlands
án árangurs ákvað Gunnar að
kanna erlenda markaði. „Ég fann
Crawler hjólhýsi í Tyrklandi og fór
út til að skoða þau. Ég heillaðist
strax af smíðinni og notkunar-
möguleikunum og var því stað-
ráðinn í að fá mér svona hýsi. Hug-
myndin þróaðist í það að ég fékk
með mér þrjá félaga, Guðjón, Ara
og Jóhann, til að stofna fyrirtæki
og panta nokkur hýsi til landsins
til þess að kynna þessa frábæru
framleiðslu. Við fengum Crawler
umboðið og gátum hafist handa,“
útskýrir Gunnar. Tarandus ehf. var
stofnað í október þegar þeir hófu
innflutning frá Crawler.
Þeir félagar settu upp Facebook-
síðu undir nafni fyrirtækisins og
hafa verið að kynna Crawler vör-
urnar. Þeir hafa fengið gríðarlega
góðar undirtektir. „Við opnuðum
húsið fyrir þremur vikum með
sýningu og höfðum ekki hug-
mynd um hversu margir myndu
mæta en fjöldinn var langt yfir
væntingum okkar. Fólk var mjög
áhugasamt um hjólhýsin,“ segir
Gunnar og bætir við að hjólhýsin
séu hugsuð fyrir fólk sem ætlar að
fara ótroðnar slóðir, þótt vissu-
lega sé einnig hægt að nota þau á
tjaldsvæðum. „Hjólhýsið kemst
nánast hvert sem er og sæmilegur
jepplingur getur dregið það. Flestir
sem ætla á hálendi eða erfiða staði
eru þó á stærri jeppum enda kemst
maður lengra á þeim,“ segir hann.
Létt hús fyrir erfiða vegi
Hjólhýsin koma í tveimur stærðum.
Það minna er fyrir 4-5 og það stærra
fyrir 5-6 manns. Pallhýsin fyrir
pickup-bíla eru fyrir þrjá. „Hjól-
hýsin eru hærri en þessi venjulegu
sumarhjólhýsi. Lægsti punktur er
46 cm. Húsið er gert úr áli og kemur
á stálgrind á meðan önnur eru úr
plasti. Álið gerir þau léttari og henta
þau sérstaklega vel á íslenskum
vegum. Hægt er að fá hjólhýsin með
alls kyns búnaði og aukahlutum,
til dæmis loftpúðafjöðrun,“ segir
Gunnar.
Húsin eru vönduð og vel búin.
Eldhús er með eldunaraðstöðu,
ísskáp og vaski með heitu og köldu
vatni. Þægilegt rúm, gott skápapláss
og salerni. „Hjólhýsin eru öll úr áli
og gerð til að endast. Frábært hús til
að taka með sér til dæmis á fjalla-
skíði, gönguskíði, í hjólaferðir og í
aðrar ferðir allt árið,“ segir Gunnar.
„Ég er sjálfur mjög spenntur að fara
í slíka ferð í kuldanum því húsið er
hlýtt enda vel einangrað. Vagninn
er einangraður með Isollat ceramic
húðun að innan þar sem 2 mm
samsvara 2 cm af ullareinangrun.
Þetta kemur í veg fyrir raka og
myglu. Isollat einangrunin hefur
reynst vel meðal annars á hertrukk-
um á köldum svæðum. Það má því
segja að þetta sé hálendislúxus,“
segir Gunnar og bætir við að þeir
Guðjón séu miklir ferðafélagar. „Við
hlökkum mikið til að fara með hjól-
hýsið í alls kyns ferðalög á komandi
misserum.“
Þolir mikið álag
Gunnar bendir á að mikið hand-
Hjólhýsin eru gerð úr áli og eru því létt og hafa öll þau þægindi sem ferðalangar þurfa á ferðalögum sínum á fáförnum slóðum. MYNDIR/XXXX
Húsin eru vönduð og vel búin. Eldhús með eldunar
aðstöðu, ísskápur og vaskur með heitu og köldu vatni.
Þægilegt rúm, gott skápapláss og salerni.
Hjólhýsin henta vel í hvers kyns ferðalög um landið,
hvort sem er á fáförnum vegum eða slóðum.
Hjólhýsið er hannað fyrir íslenskar aðstæður og það kemur á grófum BF
Goodrich 33” dekkjum, fjórum dempurum og gormum.
Crawler hjólhýsið lítur vel út enda vandað til allrar gerðar.
Væri ekki notalegt að hafa salerni
með sér í fjallaleiðangurinn?
OPIÐ HÚS UM HELGINA
Crawler hýsin verða til sýnis í sýningarsal Taran
dus ehf. um helgina (laugardag og sunnudag) á
opnu húsi frá klukkan 1316, að Dofrahellu 3,
221 Hafnarfirði.
verk og margar vinnustundir liggi
að baki smíði á vagninum og er
hönnunin og smíðin í algjörum
sérflokki. Crawler hannar sína
vagna til að mæta kröfum og
væntingum notenda. Vagnarnir
eru prófaðir gegn titringi og eru
styrktarprófaðir svo þeir verði
sannarlega öflugir og traustir og
þoli mikið álag. Crawler hefur það
að leiðarljósi að nota hvorki tré né
plast í sína framleiðslu.
Hjólhýsið er hannað fyrir
íslenskar aðstæður og það kemur á
grófum BF Goodrich 33" dekkjum,
fjórum dempurum og gormum,“
segir Gunnar.
Fyrirtækið er opið eftir sam-
komulagi og stundum um helgar.
„Það er alltaf hægt að hafa sam-
band við okkur og panta skoðun,
þar sem áhugasamir geta skoðað
hýsin. Hýsin eru framleidd með
þeim aukabúnaði sem kaupandi
óskar eftir og möguleikarnir eru
ansi margir,“ segir Gunnar.“
Tarandus ehf. er umboðsaðili
Crawler á Íslandi. Crawler fram-
leiðir „off road” hjólhýsi, pallhýsi,
topptjöld og fleira sem hentar
íslenskum aðstæðum einstaklega
vel. n
Nánar má kynna sér hjólhýsin og
pallhýsin á tarandus.is þar sem
eru mjög góðar upplýsingar. Einn
ig á facebook.com/crawlericeland
og instagram.com/crawlericeland
Netfang: tarandus@tarandus,
sími 612 1205.
Þetta er vagn sem
hefur öll þægindi
sem ferðalangar þurfa á
ferðalögum sínum. Nú
er hægt að skoða þá
náttúru og skemmti-
legu staði sem ekki var
hægt með hefðbundnu
hjólhýsi.
Gunnar Guðmundsson
2 kynningarblað A L LT 19. mars 2022 LAUGARDAGUR