Fréttablaðið - 19.03.2022, Page 33

Fréttablaðið - 19.03.2022, Page 33
www.hrafnista.is eða skannaðu QR-kóðann Vitlu vinna í gefandi og jákvæðu umhverfi í sumar? Við bjóðum þér faglegt starfsumhverfi og spennandi reynslu þar sem hæfileikar allra geta notið sín Sjómannadagsráð leitar að rekstrarstjóra á skrifstofu móðurfélags og samstæðu ráðsins. Starfið felst m.a. í að hafa umsjón með og bera ábyrgð á daglegum rekstri leigufélagsins Naustavarar ehf. og vinna náið með framkvæmdastjóra að þróun og uppbyggingu eignasafns félaga í samstæðunni. Rekstrarstjóri þarf að búa yfir reynslu og þekkingu við greiningar á arðsemi fjárfestinga og geta greint og metið fjárhagslega mælikvarða í afkomu einstakra félaga og samstæðunnar í heild. Viðkomandi er staðgengill framkvæmdastjóra. Helstu verkefni: • Umsjón með daglegum rekstri Naustavarar og eigna Sjómannadagsráðs. • Áætlanagerð fyrir félög í samstæðunni. • Greining og þróun á þjónustu- og vöruframboði fyrirtækja Sjómannadagsráðs. • Stuðningur við þróun og uppbyggingu eignasafna félaga í samstæðunni. • Þróa og fylgja eftir stefnu stjórnar Sjómannadagsráðs. • Aðstoðarmaður og staðgengill framkvæmdastjóra. Hæfniskröfur: • Háskólapróf sem nýtist í starfi. • Reynsla og þekking af áætlanagerð. • Þekking í fjármálum. • Færni í mannlegum samskiptum og hæfileikar til samstarfs. • Greiningarhæfni og gott vald á úrvinnslu og framsetningu upplýsinga. • Þekking og færni til að nýta upplýsingatæknikerfi sem starfinu tengjast. • Hæfni til að tjá sig í ræðu og riti. • Áhugi á að takast á við áskoranir og þróa nýjar lausnir. Við hvetjum áhugasama til að sækja um, óháð kyni og uppruna. Umsóknarfrestur er til og með 29. mars næstkomandi. Sótt er um starfið á www.vinnvinn.is. Umsókn skal fylgja ferilskrá og ítarlegt kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur um færni viðkomandi til að gegna starfinu. Umsjón með starfinu hafa Jensína K. Böðvarsdóttir (jensina@vinnvinn.is) og Auður Bjarnadóttir (audur@vinnvinn.is). Rekstrarstjóri Sjómannadagsráðs & Naustavarar Sjómannadagsráð er leiðandi aðili í öldrunar­ þjónustu á Íslandi. Í gegnum dótturfélög sín, Hrafnistu, Naustavör og Happdrætti DAS, rekur félagið 90.000 m2 af húsnæði og veitir á annað þúsund manns í fimm sveitarfélögum daglega þjónustu. Vinnvinn | Kringlan 7 | 103 Reykjavík Sími 552 1212 | vinnvinn@vinnvinn.is | www.vinnvinn.is Mest lesna atvinnublað Íslands* Atvinnublaðið Sölufulltrúar: Hrannar Helgason, hrannar@frettabladid.is 550 5625, Arna Rut Kristinsdóttir, arnarut@frettabladid.is 550 5621 *Neyslukönnun Gallups 2018, allt land, 18-80 ára

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.