Fréttablaðið - 19.03.2022, Page 35

Fréttablaðið - 19.03.2022, Page 35
Veraldarvanur stjórnandi á alþjóðlegum vettvangi Við leitum að metnaðarfullum og reynslumiklum einstaklingi í starf sölu- og rekstrarstjóra fyrir BIOEFFECT. Starfið felur í sér skemmtileg, krefjandi og fjölbreytt verkefni sem snúa að sölu og rekstri dótturfélaga BIOEFFECT í Bandaríkjunum og Bret- landi. Sölu- og rekstrarstjóri er ábyrgur fyrir sölu- og markaðs- aðgerðum BIOEFFECT þar ytra. Starfsmaður er ábyrgur fyrir gerð og eftirfylgni sölu- og rekstraráætlana, starfsfólki, birgðahaldi og stýringu í vöruhúsum. Sölu- og rekstrarstjóri tekur þátt í reglulegum sölufundum með erlendum viðskipta- vinum og ber ábyrgð á gerð og framkvæmd markaðsaðgerða inn á viðkomandi markaðssvæði. BIOEFFECT eru margverðlaunaðar íslenskar húðvörur. Vöru- þróun og framleiðsla BIOEFFECT fer að öllu leyti fram í höfuð- stöðvum fyrirtækisins á Íslandi. BIOEFFECT-vörurnar hafa hlotið fjölda alþjóðlegra viðurkenninga fyrir virkni og gæði og eru seldar í um 27 löndum. Menntun, þekking og reynsla Háskólamenntun sem nýtist í starfi Alþjóðleg reynsla af sölu og markaðsmálum Yfirgripsmikil reynsla af sölu og viðskiptastýringu Reynsla af gerð sölu- og markaðsáætlana Mjög gott vald á ritaðri og talaðri ensku Góðir skipulags- og greiningarhæfileikar Frumkvæði, söludrifni og sjálfstæði í starfi Framúrskarandi samskiptahæfileikar Umsóknarfrestur er til og með 4. apríl nk. en umsóknir skal fylla út á vef vinnvinn.is. Umsóknum skal fylgja ferilskrá og ítarlegt kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni umsækjanda til að gegna starfinu er rök- studd. Farið verður með allar upplýsingar sem trúnaðarmál. Umsjón með starfinu hafa: Hilmar Garðar Hjaltason, hilmar@vinnvinn.is Hildur Jóna Ragnarsdóttir, hildur@vinnvinn.is Sölu- og rekstrarstjóri fyrir USA og UK markaði (Sales and Operational Manager for USA and UK) BIOEFFECT I Víkurhvarfi 7 I 203 Kópavogi I bioeffect.com I bioeffect.co.uk I bioeffect.is Við leitum að sérfræðingi í rannsóknar- og þróunarteymi BIOEFFECT. Starfið felur í sér þróun, mótun (formulation) og blöndun húðvörugrunna. Mikilvægt er að viðkomandi hafi gríðarlegan áhuga á húðvörum, fylgist vel með nýjungum á því sviði og geti komið með tillögur að úrbótum og nýjungum í vöruþróun BIOEFFECT. Starfið felur einnig í sér ábyrgð á skjölun og skráningu gæða- og öryggislýsinga í framleiðslu- og gæðakerfi fyrirtækisins sem og í alþjóðlega gagnagrunna. Starfið fellur undir vöruþróunarteymi BIOEFFECT, er fjölbreytt, skapandi og felur í sér samvinnu þvert á allar deildir. BIOEFFECT eru margverðlaunaðar íslenskar húðvörur. Vöruþróun og framleiðsla BIOEFFECT fer að öllu leyti fram í höfuðstöðvum fyrirtækisins á Íslandi. BIOEFFECT-vörurnar hafa hlotið fjölda alþjóðlegra viðurkenninga fyrir virkni og gæði og eru seldar í um 27 löndum. Umsóknarfrestur er til og með 4. apríl nk. en umsóknir skal fylla út á vef vinnvinn.is. Umsóknum skal fylgja ferilskrá og ítarlegt kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni umsækjanda til að gegna starfinu er rök- studd. Farið verður með allar upplýsingar sem trúnaðarmál. Helstu verkefni Þróun, mótun (formulation) og blöndun húðvara Stýra uppskölun og aðstoða við blöndun á nýjum vörum þar til stöðugleika í framleiðslu er náð Framkvæma stöðugleikaprófanir á vörum í þróun Taka þátt í framkvæmd húðrannsókna Ábyrgð á skráningu nýjunga og breytinga í framleiðslu- og gæðakerfi fyrirtækisins Ábyrgð á gagnaöflun og skjalagerð fyrir sölu og markaðs- setningu BIOEFFECT erlendis Menntun, reynsla og hæfni Háskólamenntun á sviði lyfjafræði, líffræði, lífefnafræði eða sambærileg menntun (M.Sc. kostur) Reynsla af rannsóknarvinnu Nákvæm og öguð vinnubrögð Mjög góð enskukunnátta í rituðu og töluðu máli Góð færni í mannlegum samskiptum og góð samstarfshæfni Umsjón með starfinu hafa: Hilmar Garðar Hjaltason, hilmar@vinnvinn.is Hildur Jóna Ragnarsdóttir, hildur@vinnvinn.is Sérfræðingur í þróun og blöndun húðvara (Formulation Development Specialist) Vilt þú töfra fram húðvörur á heimsmælikvarða? BIOEFFECT I Víkurhvarfi 7 I 203 Kópavogi I bioeffect.com I bioeffect.co.uk I bioeffect.is

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.