Fréttablaðið - 19.03.2022, Side 36
Rannsakandi umferðarslysa
Menntunar- og hæfniskröfur:
Rannsóknarnefnd samgönguslysa (RNSA) óskar eftir að ráða til starfa rannsakanda við slysarannsóknir á umferðarsviði með starfsstöð í
Reykjavík. Leitað er að áhugasömum einstaklingi sem vill láta gott af sér leiða til að bæta öryggi í samgöngum. Um fullt starf er að ræða.
RNSA starfar samkvæmt ákvæðum laga um rannsókn samgönguslysa nr. 18/2013 og reglugerðar nr. 763/2013. Nánari upplýsingar má
finna á vefsíðunni www.RNSA.is.
Upplýsingar veita Thelma Kristín Kvaran (thelma@intellecta.is) og Hafdís Ósk Pétursdóttir (hafdis@intellecta.is)
í síma 511 1225.
• Rannsóknir á orsökum umferðarslysa, þar með taldar
vettvangsrannsóknir.
• Stjórnun einstaka rannsókna og umsjón með þeim verkefnum sem
þeim tengjast, s.s. greiningarvinnu, skýrslugerð og eftirfylgni með
þeim tillögum sem lagðar eru fram til úrbóta í öryggismálum.
• Þátttaka í bakvöktum.
Helstu viðfangsefni og ábyrgð:
Umsóknarfrestur er til og með 4. apríl 2022. Umsókn óskast fyllt út á www.intellecta.is og þarf henni að fylgja ferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir
ástæðu umsóknar og rökstuðningi fyrir hæfni viðkomandi í starfið. Vakin er athygli á því að umsóknir gilda í 6 mánuði. Launakjör eru samkvæmt kjarasamningum
við ríkissjóð. Áhugasamir einstaklingar, óháð kyni, eru hvattir til að sækja um starfið.
• Háskólamenntun sem nýtist í starfi er æskileg.
• Þekking eða reynsla af starfrækslu, viðhaldi og búnaði ökutækja.
• Þekking á þeim lögum og reglum sem snerta umferðarmál.
• Reynsla af stjórnun verkefna.
• Gagnrýnin og lausnamiðuð hugsun.
• Færni í mannlegum samskiptum ásamt vilja og hæfni til að koma fram fyrir
hönd RNSA.
• Gott líkamlegt og andlegt atgervi.
• Þekking á opinberri stjórnsýslu er kostur.
• Færni í teymisvinnu ásamt getu til að vinna sjálfstætt.
• Mjög góð þekking og færni í rituðu og töluðu máli á íslensku og ensku.
• Kunnátta í einu Norðurlandamáli er æskileg.
• Mjög góð tölvufærni.
Sérfræðingur í mannauðs-
og fræðslumálum
RARIK ohf. er opinbert hlutafélag í
eigu ríkisins með meginstarfsemi í
dreifingu raforku auk þess að reka
fimm hitaveitur.
Starfsfólk RARIK er um 200 og
starfsstöðvar 20.
RARIK hefur á undanförnum
áratugum unnið jafnt og þétt að
uppbyggingu rafdreifikerfisins og eru
nú um 70% þess jarðstrengir.
Nánari upplýsingar um fyrirtækið má
finna á heimasíðu þess www.rarik.is.
Menntunar- og hæfniskröfur:
RARIK óskar eftir að ráða sérfræðing í mannauðs- og fræðslumálum. Um er að ræða nýtt og spennandi
starf innan fyrirtækisins og gefst viðkomandi frábært tækifæri til að taka þátt í mótun þess í samvinnu
við yfirmann mannauðsmála. Viðkomandi mun sinna fjölbreyttum verkefnum sem snúa að fræðslu,
móttöku nýliða, jafnlaunavottun og fleiri mannauðstengdum verkefnum auk þess að koma að mótun
mannauðsmála, fræðslustarfs og innleiðingu stafrænnar fræðslu.
Upplýsingar veita Thelma Kristín Kvaran (thelma@intellecta.is) og Hafdís Ósk Pétursdóttir
(hafdis@intellecta.is) í síma 511 1225.
• Umsjón með fræðslustefnu og fræðsluáætlun ásamt
eftirfylgni
• Umsjón með fræðslu- og þjálfunarmálum
• Þarfagreining símenntunar og skipulag námskeiða
• Innleiðing, utanumhald og þróun stafrænnar fræðslu
• Nýliðafræðsla og móttaka nýrra starfsmanna
• Þátttaka í mannauðsverkefnum
• Samskipti við starfsmenntasjóði og menntastofnanir
• Aðkoma og eftirfylgni með jafnlaunavottun
Helstu viðfangsefni og ábyrgð:
Umsóknarfrestur er til og með 4. apríl 2022. Umsókn óskast fyllt út á www.intellecta.is og þarf henni að fylgja starfsferilskrá og ítarlegt kynningarbréf þar sem
gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni umsækjanda sem nýtist í starfi. Áhugasamir aðilar, óháð kyni, eru hvattir til að sækja um starfið. Farið verður með
allar umsóknir og fyrirspurnir sem trúnaðarmál og þeim svarað að ráðningu lokinni.
• Háskólamenntun sem nýtist í starfi
• Reynsla af mannauðsmálum, sér í lagi fræðslu og
starfsþróun
• Þekking og/eða reynsla af stafrænni þróun og lausnum
í fræðslustarfi
• Þekking og reynsla af sí- og endurmenntun
• Mjög gott vald á íslensku og ensku í ræðu og riti
• Framúrskarandi samskiptahæfileikar, jákvæðni og
þjónustulund
• Afburða tölvuhæfni, nákvæmni og skipulögð vinnubrögð
• Frumkvæði, sjálfstæði og faglegur metnaður